Innlent

Rússar í hart vegna laxveiði í net

Veitt á Kólaskaga Hér er hinn þekkti veiðimaður Árni Baldursson með stórlax sem hann veiddi í Yokanga-ánni á Kólaskaga.
Veitt á Kólaskaga Hér er hinn þekkti veiðimaður Árni Baldursson með stórlax sem hann veiddi í Yokanga-ánni á Kólaskaga.
Ríkisstjóri Múrmansk-héraðs í Rússlandi hefur ákveðið að vísa ágreiningi um laxveiðar Norðmanna í net á hafsvæði undan ströndum Finnmerkur til öryggisráðs Rússlands. Samningaviðræður Norðmanna og Rússa síðastliðin tvö ár hafa engan árangur borið, og því er þessi leið nú valin.

Öryggisráðið er forsetanum til ráðuneytis um öryggi ríkisins og skipað ráðherrum og fleiri háttsettum embættismönnum.

Ríkisstjórinn, Marína Kovtun, boðaði vegna þessa Orra Vigfússon, formann NASF, Verndarsjóðs villtra laxastofna, nýlega á fund á Kólaskaga þar sem þau ræddu ítarlega um hrun laxastofnsins í N-Atlantshafi. Ríkisstjórinn sagði eftir fundinn að meira en hundrað rússneskar laxveiðiár á svæðinu væru mikilvægar ferðaþjónustu Rússlands og að sögn Orra er það skoðun ríkisstjórans að ótækt sé að laxanet Norðmanna skaði laxastofninn.

Á milli 60–70% af þeim laxi sem veiddur er í netin eru hinn verðmæti vorlax sem stendur undir meginhrygningunni í rússneskum ám á þessum slóðum, að sögn Orra. Bent hefur verið á að veiðar Norðmanna séu brot á 66. grein Hafréttarsáttmála Sameinuðu Þjóðanna, en alþjóðleg nefnd vísindamanna hefur staðfest að laxinn sem um ræðir sé af rússneskum uppruna.

Þess utan hefur Nils Pettersen, formaður norskra veiðiréttareigenda, sagt að ef netaveiðar Norðmanna verði aflagðar hefði það góð áhrif á norskar laxveiðiár en ástand þeirra margra er bágborið. - shá



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×