Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fjöldi manna leitar að þúsundum kinda í dag Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra lýsti í gærkvöldi yfir neyðarstigi í Þingeyjarsýslum vegna óveðursins sem gengið hefur yfir landið. Talið er að 10 til 12 þúsund kindur séu fastar upp á fjöllum vegna fannfergis. Hættustigin hjá Almannavarnardeild eru þrjú, óvissu-, hættu- og neyðarstig. 12.9.2012 07:03
Evrópa tekur lambið af matseðli í kreppu Útflutningur á íslensku lambakjöti til ESB-ríkja dróst saman um meira en helming fyrstu sex mánuði ársins. Kreppan í Evrópu gerir útflutning erfiðari. Framleiðendur hafa stofnað markaðssamtök fyrir dýrari erlenda markaði. 12.9.2012 07:00
"Þetta eru náttúruhamfarir“ Tugir þúsunda fjár voru enn uppi í snævi þöktum fjöllum Norðurlands í gærkvöld. Ástandið verra en talið var. Hefðu getað náð fénu inn ef veðurspáin hefði verið rétt, segir bóndi. Enn var rafmagnslaust í gærkvöld. 12.9.2012 00:01
Ákærður fyrir ellefu brot á umferðarlögum Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur rúmlega þrítugum manni úr Vogum fyrir stórhættulegt aksturslag undir áhrifum fíkniefna sumarið 2010. 12.9.2012 00:01
Dregið úr fjárframlögum til ættleiðinga á næsta ári Fjárframlög til Íslenskrar ættleiðingar verða hundrað þúsund krónum minni á næsta ári en í ár, samkvæmt fjárlagafrumvarpinu sem kynnt var í gær. Gert er ráð fyrir því að Íslensk ættleiðing fái 9,1 milljón króna á fjárlögum en upphæðin í ár var 9,2 milljónir. 12.9.2012 09:30
Starfshópur um staðgöngu skipaður Kristrún Heimisdóttir, lektor í lögfræði, er formaður starfshóps sem skipaður hefur verið til að gera lagafrumvarp sem heimilar staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni. 12.9.2012 08:00
Kveikt í nýbyggingu fyrir aldraða Kveikt var í einangrun nýbyggingar við Hlaðhamra dvalarheimili aldraðra í Mosfellsbæ í nótt, slökkviliðið var kallað á staðinn en eldurinn náði sér þó aldrei á strik. 12.9.2012 07:20
Stormurinn Leslie nær ekki fellibylsstyrk Töluvert hefur dregið úr styrk hitabeltisstormsins Leslie sem fara mun yfir austurströnd Nýfundnalands í dag og litlar líkur eru nú taldar á því að Leslie nái fellibylsstyrk. Reiknað er með að leyfarnar af Leslie nái til Íslands á næstu dögum en þá sem haustlægð. 12.9.2012 07:00
Bandaríkjamaður féll í árás á sendiráðsskrifstofu í Benghazi Bandarískur sendiráðsmaður féll og annar særðist þegar vopnaðir menn réðust inn í sendiráðsskrifstofu Bandaríkjanna í borginni Benghazi í Líbýu í gærkvöldi. 12.9.2012 06:56
Mikil spenna í þingkosningum í Hollandi í dag Mikil spenna ríkir fyrir þingkosningar sem verða haldnar í Hollandi í dag. Þetta er í annað sinn á tveimur árum sem slíkar kosningar eru haldnar í landinu. 12.9.2012 06:52
Fara sér hægt í framhaldsskóla Á Íslandi ljúka hlutfallslega færri framhaldsskólanemar námi á tilskyldum tíma en í öðrum OECD-löndum. 12.9.2012 04:00
Hvatt til allsherjarverkfalls Þúsundir námuverkamanna fögnuðu ákaft þegar Julius Malema, fyrrverandi leiðtogi ungliðahreyfingar Afríska þjóðarráðsins, hvatti til allsherjarverkfalls námuverkamanna í landinu. 12.9.2012 02:45
Lögreglan með mann í sigtinu vegna morðsins í Tulsa Lögreglan í Tulsa í Oklahoma telur sig vita hver varð Kristjáni Hinrik Þórssyni og John White að bana í borginni um síðustu helgi. 11.9.2012 23:24
"Það eru allir boðnir og búnir að taka höndum saman" "Það gefur auga leið að þegar bústofninn er í hættu þá er þungt yfir mönnum. Svona hefur ekki átt sér stað í mörg mörg ár," segir Svavar Pálsson, sýslumaður á Húsavík, sem hefur fundað með viðbragðsaðilum fyrir norðan í allt kvöld. 11.9.2012 22:49
Neyðarstigi lýst yfir fyrir norðan - 12 þúsund kindur fastar upp á fjöllum Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra lýsti í kvöld yfir neyðarstigi í Þingeyjarsýslum vegna óveðursins sem gekk yfir landið í gær. Talið er að 10 til 12 þúsund kindur séu fastar upp á fjöllum vegna fannfergis. Hættustigin hjá Almannavarnardeild eru þrjú, það er að segja óvissu-, hættu- og neyðarstig. 11.9.2012 21:30
Heimsmeistaramótið í reiptogi Sautján þúsund manns fylgdust með því um helgina þegar heimsmeistaramótið í reiptogi utanhúss fór fram í Appenzell í Sviss. 11.9.2012 23:30
Verkþekking Íslendinga byggir upp innviði Grænlands Virkjunarframkvæmdir Ístaks, sem nú standa yfir við Diskóflóa á Grænlandi, skila 6-8 milljarða króna tekjum til íslenskra fyrirtækja. Íslensk verkþekking byggir um leið upp innviði Grænlands og segir orkumálastjóri landsins smíði vatnsaflsstöðva hafa gríðarlega þýðingu. Þetta kom fram í þættinum Ísland í dag á Stöð 2 í kvöld, þeim síðari um störf Íslendinga á Grænlandi, en sá fyrri var í gærkvöldi. Virkjunin við Ilulissat telst kannski ekki stór á íslenskan mælikvarða, hún verður 22,5 megavött eða um fjórðungur af stærð Búðarhálsvirkjunar, sem nú er í smíðum. 11.9.2012 23:00
Ástarlásar fjarlægðir af brúnni Verið er að fjarlægja þúsundir hengilása af brúnni Ponte Milvio sem liggur yfir ánna Tíber í Róm á Ítalíu. Lásarnir eru kallaði ástarlásar en það hefur verið venja hjá ungum pörum í Róm að hengja þessa lása utan á brúna undanfarin ár til þess að lýsa yfir eilífri ást sinni á hvort öðru. 11.9.2012 22:00
Forsprakki The Pirate Bay sendur til Svíþjóðar í lögreglufylgd Yfirvöld í Kambódíu hafa sent Svíann Gottfrid Svartholm Warg aftur til síns heima en hann hefur verið eftirlýstur frá árinu 2009. 11.9.2012 21:30
Hvetja knapa til að sækja verðlaunin Nokkrir knapar sem kepptu á Landsmótinu í sumar hafa ekki náð í verðlaun sín sem þeir unnu á mótinu. 11.9.2012 21:00
Nágranni sagði mömmu Hinriks frá því að hann hefði verið skotinn Amma Kristjáns Hinriks Þórssonar sem skotinn var til bana í Tulsa í Bandaríkjunum aðfaranótt laugardags segja hann hafa verið einstaklega ljúfan, listrænan dreng sem stundum hafi verið óöruggur með sjálfan sig. Morðingjans er enn leitað. 11.9.2012 19:40
Fjármálaráðherra: Ríkið er að sigla örugglega út úr kreppunni Fjármálaráðherra vill hækka barnabætur, lengja fæðingarorlofið og stendur við átján prósenta hækkun virðisaukaskatts á gistingu. Þetta er meðal þess sem hún kynnti í nýjum fjárlögum sem hún segir að megi líta á sem kosningafjárlagafrumvarp. Hún segir ríkið vera að sigla örugglega út úr kreppunni. 11.9.2012 18:45
Virkjunin gæti breyst í ísklump Virkjanagöng, sem Ístaksmenn bora á Grænlandi langt norðan heimskautsbaugs, liggja í svo köldu bergi að það virkar eins og frystikista. Það er því raunveruleg hætta á því að virkjunin geti frosið og orðið að ísklumpi. Þetta kemur fram í þættinum Ísland í dag á Stöð 2 laust fyrir klukkan sjö í kvöld en þar verður fjallað um þær miklu áskoranir sem mæta íslenskum verktökum og verkfræðistofum við hönnun og smíði virkjunar skammt frá bænum Ilulissat við Diskóflóa. 11.9.2012 17:45
Skorið verulega niður hjá sérstökum saksóknara Áætlað er að lækka framlög ríkisins til sérstaks saksóknara um 516,3 milljónir króna samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisins sem var kynnt í dag. Gert er ráð fyrir því að veltan dragist saman eftir því sem rannsóknum embættisins vindur áfram. Þá er áætlað að skorið verði ennfrekar niður, eða um þrjú hundruð milljónir króna, árið 2014. 11.9.2012 17:26
Um 20% stunda nám erlendis Tæplega fimmtungur íslenskra háskólanema stundaði nám erlendis árið 2010. Það er hærra hlutfall en í nokkru öðru ríki sem tilheyrir Efnahags- og framfarastofnunni að Lúxemborg undanskildu. 11.9.2012 14:06
Skorið niður hjá hælisleitendum en Útlendingastofnun efld Gert er ráð fyrir 3,4 milljóna króna niðurskurð í málaflokki hælisleitenda samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar sem var kynnt í dag. Í útskýringum í frumvarpinu segir að umönnunarkostnaður vegna hælisleitenda hafi vaxið mikið á liðnum misserum og má gera ráð fyrir því að fyrir árið 2012 muni útgjöld vegna málaflokksins fara verulega fram úr fjárheimildum gildandi fjárlaga, sem eru 77 milljónir króna. 11.9.2012 17:28
Umboðsmaður setur ofan í við Persónuvernd Umboðsmaður Alþingis komst nýverið að þeirri niðurstöðu að úrskurður Persónuverndar hefði ekki verið verið í samræmi við lög. Persónuvernd hafði úrskurðað að tveir sálfræðingar hefðu brotið lög um persónuvernd þegar þeir unnu skýrslu um einelti á ákveðinni stofnun. 11.9.2012 16:51
Gera ráð fyrir stórauknum framlögum til þróunarmála og alþjóðastofnana Ríkisstjórnin stóreykur framlög til þróunarmála og alþjóðastofnana gangi frumvarp til fjárlaga eftir. Í frumvarpinu sem fjármálaráðherra kynnti í dag kemur fram að ríki muni hækka framlög ríkisins í heild um 1,3 milljarð frá árinu 2012 til 2013. 11.9.2012 16:31
Dýrasta sendiráðið í Brussel - framlög lækka um 20 milljónir Dýrasta sendiráð Íslendinga er í Brussel, þar sem framkvæmdastjórn Evrópusambandið hefur aðstöðu og fleiri stofnanir. 11.9.2012 16:15
Tilkynning frá Almannavörnum: Ástandið verra en í fyrstu var talið Áhlaupið sem gengið hefur yfir Norðurland síðasta sólarhringinn hefur valdið ófærð og rafmagnsleysi allt frá Vatnsskarði í vestri, austur á Melrakkasléttu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavörnum. 11.9.2012 15:29
Björgunarstarf umfangsmeira en talið var - um 5000 kindur enn úti Björgunarsveitamenn á Norðausturlandi og Húnavatnssýslum vinna nú hörðum höndum við að bjarga fé undan snjó samkvæmt tilkynningu frá Landsbjörg. Svo virðist sem umfang vandans sé mun meira en áður var talið. 11.9.2012 15:23
Níu þingmenn viðstaddir hugvekju Siðmenntar Níu þingmenn mættu til hugvekju Siðmenntar sem haldin var á Hótel Borg í stað þess að mæta í hefðbundna guðsþjónustu í Dómkirkjunni við setningu Alþingis. Það var Svanur Sigurbjörnsson, læknir og stjórnarmaður í Siðmennt, sem hélt hugvekju um "heilbrigði þjóðar“. 11.9.2012 15:18
Braust inn á eigið heimili - lögreglan fann svo kannabis í skúrnum Lögreglan á Suðurnesjum hafði um helgina afskipti af manni, sem var að reyna að brjótast inn í hús með barefli. Í ljós kom að þarna var að verki húsráðandi sem hafði læst sig úti. Hann var kominn inn í inngang að bílskúr húsnæðisins þegar lögreglumenn komu á vettvang og fundu þeir sterka kannabislykt þar. 11.9.2012 14:43
Sitja fastir á 38 tommu dekkjum Tveir bílar frá Björgunarsveitinni á Hellu voru sendir upp að Gæsavötnum á hálendinu um tvö leytið í dag til að sækja hóp erlendra ferðamanna sem sitja þar fastir vegna veðurs. 11.9.2012 14:31
Alþingi í vanda vegna skorts á trausti Alþingi stríðir við vanda vegna skorts á trausti, sagði Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands við þingsetningu í Alþingishúsinu í dag. 11.9.2012 14:22
Stal samloku og heyrnartólum Héraðsdómur Reykjavíkur sakfelldi karlmann fæddan 1987 fyrir að hafa stolið samloku og heyrnartólum. Maðurinn stal samlokunni í janúar síðastliðnum og svo heyrnartólunum, sem voru að gerðinni Sennheiser, í mars. Maðurinn játaði sök. Brotaferill mannsins hófst árið 2005 en hann hefur fjórum sinnum gengist undir sáttir vegna brota á ávana- og fíkniefnalöggjöfinni. 11.9.2012 14:00
Dæmdur fyrir kannabisrækt Karlmaður fæddur 1986 var sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir að staðið að ræktun á fimm til tíu kannabisplöntum og haft í vörslum sínum rúmlega fimmtán hundruð grömm af kannabislaufum. Maðurinn játaði brot sitt skýlaust en hann hafði staðið að ræktun plantnanna um nokkurt skeið. Plönturnar fundust á heimili mannsins í maí á síðasta ári. 11.9.2012 13:55
Ekki flókið að texta fréttatíma Gísli Ásgeirsson, skjalaþýðandi og fyrrverandi starfsmaður Ríkissjónvarpsins, segir að hvorki sé flókið né kostnaðarsamt að texta sjónvarpsfréttatíma svo heyrnarskertir geti fylgst með. Félag heyrnarskertra telur mikið réttindamál að öll íslensk sjónvarpsdagskrá verði textuð og hyggst berjast ötullega fyrir því á 75 ára afmælisári félagsins sem nú stendur yfir. 11.9.2012 13:40
Guðsþjónusta hafin Hefðbundin guðsþjónusta í Dómkirkjunni vegna þingsetningar er hafin. Séra Kristján Valur Ingólfsson vígslubiskup prédikar og séra Hjálmar Jónsson, sóknarprestur í Dómkirkjunni, þjónar fyrir altari ásamt biskupi Íslands, Agnesi M. Sigurðardóttur. 11.9.2012 13:35
Bændur kunna að bjarga sér Bændur á Norðurlandi sem sjá fram á rafmagnsleysi næstu daga finna leiðir til að bjarga sér. Flestir eru með litlar rafstöðvar við býlin sín og þeir sem ekki búa svo vel geta sótt slíkar rafstöðvar og ekið þeim á milli bæja. Þannig er komið í veg fyrir mikið tjón sem rafmagnsleysi getur valdið í landbúnaði. 11.9.2012 12:23
Borgarís við Hornbjarg Borgarís er 16 sjómílur norðvestur af Hornbjargi, en TF SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar, flaug yfir hann á leið sinni til æfingar á austurströnd Grænlands. Segir Landhelgisgæslan að gera megi ráð fyrir að borgarísinn reki nær landi undan norðan-áttinni. Ísinn er um 160 metrar á breidd. 11.9.2012 11:56
Norðlendingar sennilega rafmagnslausir í tvo daga Búast má við því að íbúar á norðausturlandi þurfi að búa við rafmagnsleysi í tvo daga til viðbótar á sumum svæðum. Örlygur Jónasson framkvæmdastjóri Rekstrarsviðs RARIK segir að allur tiltækur mannskapur sé nú við viðgerðir eftir að miklar skemmdir urðu á raflínum á Norðausturlandi í gær. Verið er að vinna við línur í Skagafirði, Bárðardal, Laxárdal og í Mývatnssveit. Þungfært er enn í Mývatnssveit og því erfitt um vik fyrir viðgerðarmenn. Ljóst er að um áttatíu staurar hafa brotnað í óveðrinu. 11.9.2012 11:44
Alþingi girt af Lögreglan er búin að girða Alþingi af og er töluverður viðbúnaður vegna þingsetningarathafnar sem hefst klukkan hálf tvö í dag með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. 11.9.2012 11:33
Mannréttindi að fá texta á íslenskt efni Félagsmenn Heyrnarhjálpar, félags heyrnarskertra, setja textun á íslensku sjónvarpsefni fram sem eitt helsta réttlætis- og baráttumálefni heyrnarskertra hér á landi. Heyrnarhjálp er 75 ára á þessu ári og í nýútkomnum afmælisbæklingi miða tvær greinar að þessu málefni. Þar er sagt að efling textunar verði eitt æðsta markmið afmælisársins. 11.9.2012 11:26
Breytingar á Alþingi - Ásbjörn og Þuríður hætta Þuríður Backman, þingmaður VG í norðausturkjördæmi, ætlar að láta af þingmennsku í lok kjörtímabilsins. Hún hefur verið þingmaður VG frá því árið 1999. Hún segir það ekki liggja fyrir hvað hún muni starfa eftir að þingmennsku lýkur, en hún er menntuð hjúkrunarfræðingur og starfaði við það áður en hún var kjörin á þing. Þá upplýsti vefurinn Skessuhorn í gær að Ásbjörn Óttarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hyggðist ekki gefa kost á sér áfram til þingsetu. 11.9.2012 11:23