Dregið úr fjárframlögum til ættleiðinga á næsta ári 12. september 2012 09:30 Flest börn sem hingað voru ættleidd í fyrra komu frá Kína. Íslensk ættleiðing segir ættleiðingarmál nú afgangsmál. fréttablaðið/ap
Fjárframlög til Íslenskrar ættleiðingar verða hundrað þúsund krónum minni á næsta ári en í ár, samkvæmt fjárlagafrumvarpinu sem kynnt var í gær. Gert er ráð fyrir því að Íslensk ættleiðing fái 9,1 milljón króna á fjárlögum en upphæðin í ár var 9,2 milljónir. „Félagið þarf 44 milljónir til viðbótar við núverandi tekjur til að geta sinnt þeim verkefnum sem lög og reglugerðir leggja því á herðar. Um það er ekki ágreiningur og það hefur verið viðurkennt af hálfu ráðuneytisins að félagið geti ekki farið að lögum ef því verða ekki tryggðar þessar tekjur," segir Hörður Svavarsson, formaður Íslenskrar ættleiðingar. Hann segir ættleiðingarfélagið hafa boðið stjórnvöldum að hækkanir til þess kæmu í skrefum, um fimmtán milljónir kæmu í fjáraukalögum þessa árs, fimmtán milljónir til viðbótar á fjárlögum 2013 og lokaskrefið ári síðar. „Félagið hefur fengið vilyrði fyrir því að lagt verði til framlag sem samsvarar fyrsta skrefinu á fjáraukalögum í haust. Innanríkisráðherra tjáði forsvarsmönnum ættleiðingarfélagins einnig að ráðuneytið gæti ekki lagt til aukna hækkun á næsta ári því það kæmi niður á öðrum fjársveltum málaflokkum sem tilheyra þessu viðamikla ráðuneyti." Að sögn Harðar hafa forsvarsmenn félagsins sagt að tekjur þurfi til að mæta öllum verkefnum sem félaginu eru lagðar á herðar, ekki bara sumum. „Við þurfum því ekki hluta af tekjunum sem standa undir verkefnunum. Engum dettur í hug að bora hálf jarðgöng gegnum Vaðlaheiði," segir Hörður. Að vissu leyti er ánægjulegt að átta sig á því að félagið hafi náð eyrum ráðamanna með þessari röksemdafærslu, segir Hörður. „Stjórnvöld hafa áttað sig á því að það er betur heima setið en af stað farið, ef það á bara að fara hálfa leið. Tillögur að framlagi til Íslenskrar ættleiðingar í nýju fjárlagafrumvarpi eru því rökrétt niðurstaða fjármálaráðherra sem forgangsraðar þannig að ættleiðingar eru afgangsmál." Átján börn voru ættleidd til Íslands frá útlöndum á síðasta ári, flest frá Kína. Íslensk ættleiðing er eina félagið sem hefur umsjón með ættleiðingum erlendis frá. thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fleiri fréttir „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Sjá meira