Fjöldi manna leitar að þúsundum kinda í dag 12. september 2012 07:03
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra lýsti í gærkvöldi yfir neyðarstigi í Þingeyjarsýslum vegna óveðursins sem gengið hefur yfir landið. Talið er að 10 til 12 þúsund kindur séu fastar upp á fjöllum vegna fannfergis. Hættustigin hjá Almannavarnardeild eru þrjú, óvissu-, hættu- og neyðarstig. Í gær voru sex björgunarsveitir við leit að fé í Mývatnssveit. Leitað var á fjórum bæjum og þar af fullleitað á þremur. Í dag verður leit kláruð á fjórða bænum en björgunarsveitamenn hefja leit strax í birtingu. Ekki er vitað hversu mörgum kindum var bjargað en ljóst að þær skipta hundruðum. Ein sveit var við störf á Vaðlaheiði og í Flateyjardal í gær og fram á kvöld. Einnig fór hópur björgunarsveitamanna á Þeistareyki, þar sem ástandið er einna verst, til að grafa fé úr fönn og taka stöðuna. Björgunarsveitamenn á þremur snjósleðum aðstoðuðu svo RARIK við viðgerð á rafmagnslínum. Alls voru um 80 manns frá björgunarsveitum við vinnu á svæðinu í gær að því er fram kemur í tilkynningu frá Landsbjörgu. Meginþungi aðgerða í dag verður á Þeistareykjum, þar sem um 6000 kindur eru úti. Óttast er að mikið af þeim sé undir snjó en svæðið er úfið og erfitt yfirferðar. Vegurinn að Þeistareykjum var mokaður í gærkvöldi svo hægt sé koma tækjum á staðinn nú í morgunsárið. Sömu björgunarsveitir og voru við vinnu í dag munu sinna verkinu auk þess sem sveitir af Austfjörðum munu aðstoða. Þá segir Landsbjörg að verið sé að skoða hvort þörf sé á hjálp frá öðrum landssvæðum.
Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fleiri fréttir „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Sjá meira