Fleiri fréttir

Tafir vegna mynda Stillers

Tímabundnar tafir eru á umferð yfir Borgarfjarðarbrú vegna töku á kvikmyndinni The Secret Life of Walter Mitty. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá íslenska kvikmynda- og þjónustufyrirtækinu True North, sem Skessuhorn greinir frá í dag. Auk þess verður aðreinin sem liggur frá Geirabakarí að þjóðveg eitt norðanmegin við brúna lokuð umferð.

Foreldrar reyna að ná sáttum í fólskulegu líkamsárásarmáli

Unnið er að því að finna lausn á alvarlegu líkamsárásarmáli á milli foreldra barna sem í hlut eiga, en Fréttablaðið greindi frá því í morgun að fjórir 12- 13 ára piltar hafi gengið í skrokk á sex ára dreng um helgina, með þeim afleiðingum að hann handleggs- og kinnbeinsbrotnaði. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Kópavogi hefur málið ekki borist embættinu enn þá.

Þriggja pilta leitað eftir hrottalega árás á barn

"Þetta var alveg hræðilegt. Þegar ég kom á svæðið liggur drengurinn blóðugur á jörðinni og þeir hlupu í burtu," segir Þórarinn Engilbertsson knattspyrnuþjálfari. Hann varð vitni að fólskulegri árás fjögurra 12 til 13 ára pilta á sex ára dreng.

Stálin stinn mætast á makrílfundinum í London

Áhrifamenn í norskum sjávarútvegi og starfsbræður þeirra í Evrópusambandinu leggja hart að samningamönnum sínum að gefa Íslendingum og Færeyingum ekkert eftir í makríldeilunni, en deilendur koma saman til fundar í London í dag.

Gráösp valin tré ársins

Skógræktarfélag Íslands útnefnir gráösp Tré ársins 2012 við hátíðlega athöfn að Brekkugötu 8 á Akureyri um daginn. Tréð er í eigu Sigríðar Maríu Hammer og Páls Steindórs Steindórssonar.

Fær þakkir frá fólki úti á götu

Eiður Svanberg Guðnason, fyrrverandi ráðherra og sendiherra, hefur verið iðinn við kolann að benda á það sem betur mætti fara í málfari fjölmiðla.

Sun Myung Moon er látinn

Sun Myung Moon leiðtogi Einingarkirkjunnar í Suður Kóreu er látinn 92 ára að aldri. Banamein hans var lungnabólga.

Smærri lönd líka með

Verkefnið Almannarómur, samstarf tæknirisans Google, Háskólans í Reykjavík (HR) og Máltækniseturs, var frumraun samstarfs sem gerir fólki á smáum málsvæðum kleift að nýta sér raddleit Google (e. Voice Search) í snjallsímum. Íslenska er meðal þrettán nýrra tungumála sem bætt var við raddleitina um miðjan ágúst.

Aðstæðurnar góðar á Íslandi

"Sjósport er vaxandi jaðaríþrótt á Íslandi," segir ofurhuginn Janis Kozlovskis sem hélt sér í flugdreka og stóð á brimbretti við Seltjarnarnes.

Sáning á birkifræi hefur gefið góða raun

Vegna góðs fræárs hjá birkitrjám biðla Hekluskógar til einstaklinga, skóla eða félagasamtaka um að safna birkifræi á höfuðborgarsvæðinu og víðar um sunnan- og vestanvert landið. Að sögn Hreins Óskarssonar, verkefnisstjóra Hekluskóga, hefur verið samið við Endurvinnsluna um að taka við fræinu síðustu vikuna í september.

Sálgæslu barna verður að efla

Aðeins í Reykjavík er bakvaktaþjónustu barnaverndarnefndar haldið úti allan sólarhringinn. Forstjóri Barnaverndarstofu segir þjónustuna víða með öllu óviðunandi. Rætt er um sameiginlega bakvakt alls höfuðborgarsvæðisins.

Gormlaga dýr fannst í sjónum

Leiðangursmenn frá Hafrannsóknastofnun urðu margs vísari eftir að hafa nýtt neðansjávarmyndavélina á allt að 730 metra dýpi fyrr í sumar. Í leiðangrinum tókst meðal annars að mynda svokallaðan þyrnikóral í fyrsta skipti hér við land, segir Steinunn Hilma Ólafsdóttir leiðangursstjóri.

Bæjarstjórinn biður undirmanni vægðar

Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri á Hornafirði, vill að starfsmaður sveitarfélagsins sem sendur var í leyfi vegna gríðarlegrar umframeyðslu bæjarsjóðs í tengslum við gerð sjónvarpsþátta fái að snúa aftur.

Frábært hvað börn eru klár

Eva María Jónsdóttir situr ekki aðgerðalaus þó hún hafi horfið af skjáum landsmanna og öldum ljósvakans um sinn. Fram undan er fyrsta verkefnið í tvö ár utan heimilis og það snýst um börn. Börn eru alltumlykjandi í lífi hennar núna, þar sem hún og sambýlismaður hennar eiga samtals sjö, á aldrinum tveggja til þrettán ára. Gunnþóra Gunnarsdóttir hitti samt á Evu Maríu eina heima.

Sjö ráðherrar brotið jafnréttislög

Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, segist ekki hafa íhugað að segja af sér vegna brota hans á jafnréttislögum. Sjö ráðherrar hafa í gegnum tíðina gerst brotlegir við lögin vegna ráðningar karls í stað konu.

Strætó keyrir út á land

Strætó bs. stækkaði í dag þjónustusvæði sitt þegar akstur hófst til Stykkishólms, Búðardals, Hólmavíkur og Reykhóla.

Það gerist varla krúttlegra - tvíburar slá í gegn á netinu

Þessi ellefu mánaða gömlu tvíburar eru aðeins of krúttlegir. Myndskeið af þeim dansa við gítarspila föður síns tröllríður nú internetinu. Yfir sjö milljónir hafa horft á þá á tæplega mánuði. Sjón er sögu ríkari, eins og sést á meðfylgjandi myndskeiði.

Ekki verið að kjósa um aðskilnað ríkis og kirkju

Ekki er verið að kjósa um aðskilnað ríkis og kirkju í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu, segir lögfræðimenntaður stjórnlagaráðsmaður. Ef meirihluti kjósenda vill ákvæði um þjóðkirkju úr stjórnarskrá, þýðir það einfaldlega að kirkjan missir stjórnarskrárvernd sína.

Fá að snúa aftur heim

Um fjögur þúsund íbuar í bænum Marbella á Costa Del Sol, sem flúðu heimili sín vegna mikilla skógarelda í síðustu viku, hafa nú snúið aftur til síns heima. Slökkviliðsmenn náðu töku um á eldinum í gær en eldur logaði á tólf kílómetrasvæði. Miklir þurrkar hafa verið á svæðinu undanfarnar vikur og hefur hitinn verið gríðarlega. Um fjögur hundruð slökkviliðsmenn hafa barist við eldana með flugvélum og þyrlum síðustu vikur.

Ákærurnar felldar niður

Saksóknarar í Suður-Afríku hafa fellt niður ákærur á hendur tvö hundruð og sjötíu námuverkamönnum í landinu. Mennirnir voru ákærðir á dögunum fyrir að bera ábyrgð á dauða þrjátíu og fjögurra samstarfsfélaga sinna sem lögreglan skaut til bana um miðjan mánuðinn.

Stofnandi Pirate Bay handtekinn í Kambódíu

Gottfrid Svartholm, einn af stofnendum skráarsíðunnar Pirate Bay, var handtekinn í Kambódíu á dögunum. Alþjóðleg handtökuskipun var gefin út á hendur honum í apríl síðastliðnum.

Glæsileg þýsk skúta við Reykjavíkurhöfn

Þýska skólaskútan Alexander von Humboldt II liggur nú við Reykjavíkurhöfn. Skipið kom hingað frá Dublin í gærdag og heldur heim á leið til Þýskalands á fimmtudag. Tæplega 80 manns komu með skipinu, þar af eru 54 nemar. Samkvæmt bæklingi um skipið, sem fréttastofa fékk við höfnina, mega nemarnir vera á aldrinum 14 til 75 ára.

Biskup Íslands segir upplýsingavef ekki áróðursvef

Biskupsstofa opnar síðar í þessum mánuði sérstakan upplýsingavef vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar þar sem kjósendur taka afstöðu til þess hvort ákvæði um þjóðkirkju eigi að vera í stjórnarskrá Íslands. Biskup Íslands segir þetta ekki verða áróðursvef heldur til að auðvelda almenningi aðgang að upplýsingum.

Ögmundur ætlar ekki að biðjast afsökunar

Ögmundur Jónasson segist í góðri trú hafa ráðið karl í embætti sýslumanns á Húsavík þó niðurstaða kærunefndar jafnréttismála sé að hann hafi brotið jafnréttislög. Þrátt fyrir harða gagnrýni sér Ögmundur ekki ástæðu til að biðjast afsökunar.

Guðbjartur í Lundúnum: Ólympíumótið stórkostleg upplifun

"Mér finnst skipta máli að sýna þessu áhuga ekki síður en hinum Ólympíuleikunum. Þetta eru að mínu mati stórkostlegri Ólympíuleikar- það er alveg makalaust að fylgjast með því hvað fólk getur," segir Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, sem er nú staddur í Lundúnum að fylgjast með Ólympíumóti fatlaðra.

Engin mótmæli vegna Ísaks

Vegna fellibylsins Ísaks urðu mótmælin sem skipulögð voru fyrir utan landsþing Repúblikanaflokksins í Tampa í Flórída aldrei að veruleika. Á landsþingi Demókrataflokksins í Charlotte sem hefst í þessari viku er hins vegar búist við miklum mótmælum.

Bílsprengja í Damaskus

Fimmtán létust þegar bílsprengja sprakk í nágrenni við palestínskar flóttamannabúðir í Damaskus, höfuðborg Sýrlands, seint í gærkvöldi. Nokkrir eru særðir eftir sprenginguna en hún olli miklum skemmdum á byggingum. Ríkisfréttastöð landsins segir vopnaða hryðjuverkamenn hafa verið að verki og vísar þar til andstæðinga Bashar Assad Sýrlandsforseta.

Stúlka slegin í miðborginni

Karlmaður var fluttur með höfuðáverka á slysadeild eftir slagsmál í miðborginni rétt fyrir klukkan fimm í morgun. Ekki er vitað hversu alvarlegir áverkarnir eru á þessari stundu en lögregla hefur ekki haft hendur í hári árásarmannsins.

20 þúsund á flugeldasýningu

Um tuttugu þúsund gestir Ljósanætur í Reykjanesbæ fylgdust með flugeldasýningu í gærkvöldi sem markaði lok hátíðarinnar.

Sóknargjöld verða hækkuð á ný

Kirkjuþing samþykkti ályktun þar sem þess er krafist að sóknargjöld verði hækkuð að nýju. Í ályktuninni segir að leiðrétting sóknargjalda sé nauðsynleg og að sóknir landsins hafi tekið á sig skerðingu sem sé 25% umfram aðrar stofnanir sem heyra undir innanríkisráðuneytið.

Spá útgáfuhrinu erótískra bóka

Fimmtíu gráir skuggar er íslenskt heiti erótísku skáldsögunnar Fifty Shades of Grey kemur út í íslenskri þýðingu í næstu viku. Upplagið er þrefalt samkvæmt upplýsingum útgefanda bókarinnar, Forlagsins, sem verst fregna um nákvæmar upplagstölur.

Sjá næstu 50 fréttir