Fleiri fréttir

Ráðist á heimasíðu Útlendingastofnunar

"Við erum búin að kæra þetta til lögreglu og þetta er komið í ferli þar,“ segir Kristín Völundardóttir, forstjóri Útlendingastofnunar. Ráðist var á heimasíðu stofnunarinnar í morgun en þetta er í annað skiptið á tæpri viku sem það gerist.

Mun ræða Clint Eastwood hjálpa Mitt Romney?

Stjórnmálaskýrendur í Bandaríkjunum velta því nú fyrir sér hvernig ræða leikstjórans Clint Eastwood, á flokksþingi Repúblikana á dögunum, falli í kramið hjá kjósendum.

Ráðuneytið skoðar málið

Verið er að fara yfir úrskurð kærunefndar jafnréttismála í innanríkisráðuneytinu, eftir að nefndin úrskurðaði að Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefði brotið gegn jafnréttislögum. Engin ákvörðun hefur enn verið tekin um framhaldið.

Hamraborgarhátíð í Kópavogi

Fjölmargir hafa lagt leið sína á Hamraborgarhátíðina í Kópavogi í dag en þetta er í þriðja sinn sem hátíðin er haldin. Hamraborginni hefur verið breytt í göngugötu þar sem m.a. er hægt að gera góð kaup á svokölluðum skottmarkaði þar sem bæjarbúar selja gömul föt og notaði muni beint úr skottinu á bílnum sínum.

Harður árekstur strætisvagna

Að minnsta kosti tuttugu og níu létust þegar tveir strætisvagnar skullu saman á þjóðvegi í norðausturhluta Nígeríu í gærkvöldi. Eldur kom upp í strætisvögnunum og brunnu margir farþeganna inni. Þjóðvegir í Nígeríu eru á meðal þeirra hættulegustu í heimi, samkvæmt alþjóðlegu heilbrigðisstofnuninni. Lögreglan rannsakar nú áreksturinn, en ekki hefur verið hægt að bera kennsl á alla þá látnu.

Vill fund vegna fjárframlaga til stjórnmálaflokka

Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, hefur óskað eftir því að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis fái ríkisendurskoðenda á fund sinn hið fyrsta til að ræða fjárframlög fyrirtækja sem telja má tengda aðila til stjórnmálaflokka.

Vöffluilmur eftir undirskrift kjarasamnings

Vöffluilminn lagði frá Karphúsinu í gærkvöldi, venju samkvæmt, eftir að skrifað var undir kjarasamning milli Framsýnar- stéttarfélags og Landssambands smábátaeigenda vegna sjómanna á smábátum að 15 brúttótonnum.

Henti glerflösku í gegnum rúðu á skemmtistað

Dyraverðir á skemmtistað í miðborginni óskuðu eftir aðstoð lögreglu um eittleytið í nótt eftir að maður henti glerflösku í gegnum rúðu á staðnum. Þeim tókst að halda honum þar til aðstoðin barst en maðurinn var mjög æstur og streittist á móti handtöku þegar lögreglu bar að garði. Hann gistir nú fangageymslur og verður yfirheyrður í dag.

Ætlaði að ná fram hefndum - ruddist inn í vitlausa íbúð

Maður á fimmtugsaldri ruddist inn í íbúð á Akureyri um þrjúleytið í nótt og hafði þaðan á brott með sér tölvu. Húsráðanda var verulega brugðið og kallaði til lögreglu sem hafði upp á hinum seka og endurheimti þýfið. Svo virðist sem maðurinn hafi ætlað að jafna sakir við annan mann með athæfinu en fór inn í ranga íbúð. Hann var undir áhrifum áfengis en málið telst nú upplýst.

Biluð dæla brýtur á höfundarrétti Rúríar

"Enginn listamaður er sáttur við að verk hans séu sýnd í öðru en sínu rétta formi enda kveða lög á um að sé listaverk haft til sýnis í skemmdu eða biluðu ástandi, sé það brot á sæmdarrétti,“ segir myndlistarkonan Rúrí.

Lenti í "venjulegum útistöðum"

Maður var sleginn um í úthverfi Reykjavíkur um þrjúleytið og var árásarmaðurinn handtekinn en sá hafði einnig brotið rúðu í fyrirtæki skammt frá. Við yfirheyrslur bar hann því við að hafa lent í "venjulegum útistöðum" en hann fær að útskýra mál sitt frekar fyrir lögreglu þegar af honum rennur.

Kirkjuþing hófst í morgun

Auka-kirkjuþing hófst með helgistund klukkan níu í morgun. Þá tók við umræða um þjóðaratkvæðagreiðslu um endurskoðun stjórnarskrárinnar og ákvæðis um þjóðkirkjuna. Reglulegt kirkjuþing fer fram í nóvember en til þessa þings var sérstaklega boðað vegna atkvæðagreiðslunnar. Á dagskrá þingsins er einnig tillaga til þingsályktunar um hækkun sóknargjalda. Gert er ráð fyrir að þinginu ljúki í dag.

Hyggjast selja þyrluna hérlendis

Matthias Vogt, þyrlueigandi og flugmaður, ætlar að selja fisþyrlu sína hérlendis. Hann flaug henni ásamt Markusi Nescher, félaga sínum, hingað til lands í lok júlí og hafa þeir ferðast um landið síðan.

Sífellt fleiri í karlaklippingu

Í fyrra gekkst 581 undir ófrjósemisaðgerð hér á landi, 424 karlar og 157 konur, samkvæmt samantekt embættis Landlæknis. Það eru heldur færri aðgerðir en 2010, en nokkuð fleiri en 2004 til 2009.

ÍLS vill auðvelda gjaldfellingu

Sigurður Erlingsson, forstjóri Íbúðalánasjóðs (ÍLS), segir allt of marga lánþega sjóðsins hafa danglað í lánafrystingu í upp undir þrjú ár án þess að gera nokkuð í sínum málum. Ef menn ekki leiti til umboðsmanns skuldara þurfi að einfalda og stytta ferlið til gjaldfellingar lána.

Sjómælingabátur við eftirlit

Eftirlits- og sjómælingabáturinn Baldur hefur í sumar verið notaður við sameiginlegt fiskveiðieftirlit Landhelgisgæslunnar og Fiskistofu. Eftirlitinu er þannig háttað að eftirlitsmenn Fiskistofu fara um borð í bátana, fara yfir veiðarfæri, afla, lögskráningu, samsetningu afla og afladagbækur. Hjá grásleppubátum er einnig kannaður netafjöldi, sem má vera 100 net á hvern lögskráðan skipverja um borð.

Skipt um áhöfn á sex herþotum

Flugsveit portúgalska flughersins hefur nú í tvær vikur annast loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins við Ísland. Um helgina verður skipt um áhöfn Portúgala hér á landi en verkefnið er í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland.

Sumarið skilaði 11.500 tonnum

Búið er að frysta um 11.500 tonn af afurðum í uppsjávarfrystihúsi HB Granda á Vopnafirði frá því í sumarbyrjun. Uppistaðan, eða 8.700 tonn, er makríll. Nú í vikunni brá svo við í fyrsta skipti að gera varð hlé á vinnslunni vegna hráefnisskorts, en fyrstu haustbrælunum er um að kenna, segir í frétt á heimasíðu fyrirtækisins.

Ekkert mark tekið á Berezovskíj í London

"Mér þykir fyrir því að segja það en niðurstaða greiningar minnar á trúverðugleika herra Berezovskíjs er að hann myndi segja nánast hvað sem er til að styðja mál sitt,“ sagði Elizabeth Gloster, dómari í London, þegar hún kvað upp dóm í deilumáli tveggja rússneskra auðkýfinga.

25 milljónir manna án atvinnu

Atvinnuleysi eykst lítillega í ríkjum Evrópusambandsins, samkvæmt nýjum tölum frá hagstofu Evrópusambandsins. Rúmlega 25 milljónir manna voru án atvinnu í júlí.

Sjá næstu 50 fréttir