Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Obama vill breyta skotvopnalögum Bandaríkjanna Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur loksins tjáð sig um skotvopnalög landsins. Obama segir að embætti hans sé að vinna að endurbótum á skotvopnalögunum sem m.a. eiga að koma í veg fyrir að geðveikt fólk geti keypt sér skammbyssur eða önnur skotvopn. 26.7.2012 06:49
Sjö fórust í námuslysi í Mexíkó Sjö námumenn fórust og nokkrir slösuðust þegar sprenging varð í námu í Coahulia-héraðinu í norðurhluta Mexíkó. Talið er að gasleki hafi valdið sprengingunni. 26.7.2012 06:38
Fundu brjóstahaldara frá 15. öld Fornleifafundur í Austurríki sýnir að brjóstahaldarar voru til á 15. öld og eru því mun eldri en áður var talið. 26.7.2012 06:35
Appelsínuguli dagurinn í gær lAppelsínuguli dagurinn er nú haldinn 25. dag hvers mánaðar til höfuðs ofbeldi gegn konum. UNiTE heitir herferð framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna og UN Women. Þá er skorað á fólk hvarvetna í heiminum að klæðast appelsínugulu. 26.7.2012 06:00
Rannsóknarleyfi í Stóru Laxá gefið út Orkustofnun hefur veitt Landsvirkjun rannsóknarleyfi vegna áætlana um virkjun í Stóru Laxá. Iðnaðarráðherra vill að um óflokkuð landsvæði gildi það sama og svæði í biðflokki. Best væri ef hið opinbera stæði fyrir rannsóknum. 26.7.2012 06:00
Tyrkir loka landamærum Sýrlands Sýrlandsher beinir nú afli sínu einkum gegn uppreisnarmönnum í Aleppo, stærstu borg landsins, en virðist hafa náð að mestu valdi á höfuðborginni Damaskus. Nýr yfirmaður friðargæsluliðs SÞ reynir að vera bjartsýnn. 26.7.2012 05:30
Óttast að fé rústi skógrækt í Þórsmörk Landgræðslustjóri og Skógrækt ríkisins óttast að sauðfé sem rekið er á Almenninga álpist inn í Þórsmörk og eyðileggi áratuga starf við skógrækt. Bændur telja að Skógræktinni beri að girða svæðið af. 26.7.2012 05:15
Obama talsvert sigurstranglegri Um 65% líkur eru á sigri Baracks Obama forseta í forsetakosningunum í Bandaríkjunum, að því er kemur fram á vef tölfræðisérfræðingsins Nates Silver. Þó munurinn á fylgi Obama og Mitts Romney, frambjóðanda repúblikana, sé aðeins rúm tvö prósent á landsvísu ber nokkuð þeirra á milli sé tekið tillit til fylgis í einstökum ríkjum. 26.7.2012 00:00
Strætisvagn sem gerir armbeygjur Tékkneski listamaðurinn David Cerny hefur útbúið tveggja hæða strætisvagn, sem getur gert armbeygjur. Vagninn verður til sýnis á meðan ólympíuleikarnir fara fram í Lundúnum. Cerny útvegaði sér sex tonna strætó og hefur dundað sér síðustu vikur að breyta honum í listaverk. Það sem er óvenjulegt við þetta listaverk hans er að vanginn getur gert armbeygjur. Hann segir að hugmyndin hafi komið vegna þess að armbeygjur sé sú æfing sem allir íþróttamenn geta gert. Vagninn verður til sýnis fyrir utan ólympíuþorp tékkneska liðsins í Islington og vonast Cerny að vagninn gefi keppendum landsins innblástur til þess að vinna til verðlauna. 25.7.2012 21:06
16 mánaða fangelsi fyrir að þykjast vera lögga Maður sem þóttist vera lögreglumaður í Svíþjóð í apríl hefur verið dæmdur í sextán mánaða fangelsi. 25.7.2012 20:58
Lést eftir að hafa verið nauðgað af sex konum Velauðugur kaupsýslumaður frá Nígeríu fannst látinn á heimili sínu í morgun eftir að hafa verið nauðgað af eiginkonum sínum. Hann átti sex eiginkonur og svo virðist vera sem afbrýðissemi á milli þeirra hafi verið ástæða dauða hans. 25.7.2012 20:40
Jóhannes í Bónus verður Jóhannes í Iceland á laugardaginn Jóhannes Jónsson kaupmaður segist ætla að halda áfram að bjóða upp á lægsta vöruverð á Íslandi, eins og hann hefur gert í tuttugu ár, í nýrri verslun sinni Iceland. Áætlað er að búðin opni á laugardaginn. 25.7.2012 19:54
Tveggja ára á leið í sína fjórðu hjartaaðgerð Þrátt fyrir að vera einungis tveggja og hálfs árs hefur Matthildur Haraldsdóttir gengist undir þrjár stórar hjartaaðgerðir og er útlit fyrir að sú fjórða verði gerð á næstu dögum. Vinir hafa tekið höndum saman og stefna á að halda styrktartónleika í tveimur löndum. 25.7.2012 19:45
Fimm skattahæstu greiddu samtals 680 milljónir í opinber gjöld Fimm skattahæstu einstaklingar landsins greiða samtals yfir sexhundruð og áttatíu milljónir króna í opinber gjöld. Það er níutíu milljónum meira en í fyrra. 25.7.2012 19:08
Tveir danskir spilarar fá 60 milljónir Tveir Danir voru með allar tölurnar réttar í Víkingalottóinu í kvöld og fær þeir tæpar 60 milljónir króna í sinn hlut. Tveir Íslendingar voru með fjórar jókertölur í réttri röð og fá þeir 100 þúsund krónur á mann. 25.7.2012 18:55
Konan komin um borð í björgunarsveitarbíl Konan sem slasaðist á fæti á gönguleiðinni milli Reykjahlíðar og Kröflu er komin um borð í björgunarsveitarbíl sem mun flytja konuna á Heilsugæsluna á Mývatni. Konan er ekki alvarlega slösuð. 25.7.2012 18:52
Fatlaðir þurfa að skera upp herör Úrskurður Hæstaréttar á kröfu öryrkja er hrollvekjandi. Þetta segir formaður Örykjabandalagsins, en kröfu fatlaðra um ógildingu forsetakosninganna var vísað frá í dag. Lögmaður bandalagsins segir fatlaða þurfa að skera upp herör. 25.7.2012 18:47
Intouchables að slá öll met - 35 þúsund hafa séð myndina "Það er í raun ómögulegt að sjá hvar þetta endar en miðað við stöðuna í dag og ganginn í þessu, er sennilegt að hún fari yfir 50 þúsund manns og fari yfir 60 þúsund manns í aðsókn," segir Ísleifur B. Þórhallsson, oft kallaður Ísi hjá Græna Ljósinu, um velgengni frönsku myndarinnar Intouchables sem hefur slegið í gegn hjá landanum á síðustu vikum. 25.7.2012 18:04
Sækja slasaða konu Björgunarsveitin Stefán við Mývatn hefur verið kölluð út vegna slasaðrar konu á gönguleiðinni frá Reykjahlíð að Kröflu. Konan er slösuð á fæti, en veður á svæðinu er gott og er hún vel útbúin. 25.7.2012 17:36
Allt verði gert til að þrýsta á um vopnahlé í Sýrlandi Borgarastyrjöld í Sýrlandi bitnar helst á óbreyttum borgurum en nú þegar er talið að um tuttugu þúsund manns hafi fallið í átökum stríðandi fylkinga, segir í ályktun samstöðufundar með almenningi í Sýrlandi. Fundurinn lýsir yfir hryggð sinni vegna þess hörmungarástands sem nú ríkir í Sýrlandi og stuðningi sínum með almenningi í landinu. 25.7.2012 16:52
Hundrað áhrifamestu konur landsins Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis og Agnes Sigurðardóttir, nýkjörinn biskup Íslands eru efstar á lista yfir 100 áhrifamestu konur landsins árið 2012. Tímaritið Frjáls Verslun birti listann í nýju tölublaði í síðustu viku. 25.7.2012 16:05
Álfheiður mun líklega ekki sitja þegar Ólafur setur þing Álfheiður Ingadóttir, þingmaður Vinstri Grænna, býst ekki við því að hún sitji undir ræðu Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta, þegar hann setur Alþingi í haust. Þrátt fyrir það segist hún bera slíka virðingu fyrir forsetaembættinu sem slíku að hún muni sitja undir því þegar forsetinn verður settur í embætti 1. ágúst. 25.7.2012 15:32
Ólafur og Katrín verða viðstödd setningu Ólympíuleikanna Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra verða viðstödd setningu Ólympíuleikanna, sem hefjast í London á föstudag. 25.7.2012 15:09
Ekki nóg af íslenskum sveppum á landinu Flúðasveppir anna ekki eftirspurn Íslendinga eftir ferskum sveppum. Nú eru hollenskir og pólskir sveppir víða í verslunum. 25.7.2012 14:53
Dópaður innbrotsþjófur gripinn glóðvolgur Brotist var inn í heimahús í austurborginni í morgun, en engu var stolið. Innbrotsþjófurinn sást hlaupa á brott frá vettvangi. Sá grunaði fannst nokkru seinna, en hann var undir áhrifum fíkniefna. Hann var handtekinn og fluttur á lögreglustöðina við Hverfisgötu þar sem hann gistir nú í fangaklefa. Tekin verður skýrsla af viðkomandi þegar víman er runnin af honum. 25.7.2012 14:25
Telja alvarlegt að Valitor hóti almenningi Talsmenn Wikileaks og Datacell segja Valitor hóta almenningi með því að segja að ef það fari að niðurstöðu héraðsdóms um að því beri að opna fyrir greiðslugátt fyrir kreditkort til DataCell setji það þjónustu við viðskiptavini í hættu. Fyrirtækið eigi þá á hættu að vera útilokað frá viðskiptum við erlendar kortasamsteypur. 25.7.2012 14:24
Leiðtogi Norður Kóreu genginn út Ríkisfjölmiðlar í Norður Kóreu hafa fengið staðfest í fyrsta skipti að Kim Jong-un, hinn ungi leiðtogi landsins, hafi gift sig. Samkvæmt frásögnum miðlanna sást hann með konu sinni við opnun skemmtigarðs. Miklar vangaveltur hafa verið uppi að undanförnu um einkalíf Kims eftir að óþekkt kona sást á myndum með honum. Kim Jong-un tók við sem leiðtogi Norður Kóreu þegar faðir hans. Kim Jong-il, lést í desember á síðasta ári. Hér má sjá umfjöllun BBC um konuna í lífi Kims Jong-un 25.7.2012 13:49
Strandveiðimenn óttast lágt fiskverð Strandveiðimenn á Vesturlandi eru óánægðir með fyrirkomulag strandveiða fyrir verslunarmannahelgina og búast við að það skili sér í lágu fiskverði. Þeir vilja að veiðarnar byrji á öðrum degi. 25.7.2012 13:48
Illa gengur að manna við grunnskólann á Ísafirði Bæjarráð Ísafjarðarbæjar hefur hafnað öllum umsóknum um starf námsráðgjafa við Grunnskólann á Ísafirði. Þetta var í annað sinn sem starfið var auglýst til umsókna. 25.7.2012 13:22
Niðurstöður kosninganna sigur fyrir lýðræðisþróun Niðurstöður forsetakosninganna eru sigur fyrir lýðræðisþróun á Íslandi frekar en persónulegur sigur minn, sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, í samtali við frönsku sjónvarpsstöðina France 24. Viðtalið var birt í dag. Í viðtalinu þverneitaði hann því að forsetaembættið á Íslandi væri einungis táknrænt. Það hefði verið skipað þannig frá upphafi að forsetinn ætti að vera mótvægi ef þjóðin væri óánægð með ákvarðanir sem þingið tæki. 25.7.2012 13:21
Bæjarins Bezta torg opnar Opnunarhátíð verður á torginu framan við pylsubar Bæjarins Bestu á föstudag. Hönnunarhópurinn Rúmmetri (M3) hefur unnið að breytingum á torginu og stendur fyrir hátíðinni í dag. 25.7.2012 13:01
Umdeildar umferðareyjar teknar niður Vegagerðin hefur ákveðið að taka niður umdeildar umferðareyjar í þéttbýlishliðum inn í þjóðgarðinn á Þingvöllum. Vegagerðin viðurkennir að hafa gert mistök og biðst afsökunar á þeim. Þéttbýlishliðin verða áfram en með annarri útfærslu. Umræddar umferðareyjar vöktu nokkra furðu eftir að myndir tóku að birtast á Netinu. Vegagerðin er staðráðin í því að vinna áfram af krafti að umferðaröryggismálum, jafnt í þjóðgarðinum á Þingvöllum sem annarsstaðar. 25.7.2012 12:55
Hæstiréttur að búa til nýja meginreglu? Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður öryrkjanna þriggja sem kærðu forsetakosningarnar, er harður á því að Hæstiréttur sé í ákvörðun sinni að víkja frá fordæmi sem hann setti þegar hann ógilti stjórnlagaþingskosningarnar á sínum tíma. 25.7.2012 12:35
Kröfum um ógildingu forsetakosninganna hafnað Hæstiréttur hefur synjað kröfu þriggja öryrkja og Ástþórs Magnússonar um ógildingu forsetakosninganna. Þetta kemur fram í tveimur ákvörðunum Hæstaréttar sem fjölmiðlar fengu sendar fyrir stundu. 25.7.2012 11:13
Gagnaverið í Keflavík meðal umhverfisvænustu á heimsmælikvarða Gagnaver Verne Global sem stendur að Ásbrú í Reykjanesbæ var valið eitt af 100 bestu sjálfbærnilausnum til framtíðar á umhverfisráðstefnunni Sustania Ríó +20 sem fram fór í síðasta mánuði. 25.7.2012 10:51
Braut kajak sinn nálægt Látrabjargi Hollenskur kajakræðari var hætt kominn þegar hann náði landi rétt við Látrabjarg. Enginn vissi af ferðum hans fyrr en hjón í sumarbústað sáu til hans þar sem hann reri í vonskuveðri í átt að mestu hættuslóðum við Íslandsstrendur. 25.7.2012 09:30
Forseti Argentínu afboðar komu sína á Ólympíuleikana Pólitík blandast inn í Ólympíuleikana í London eins og oft hefur gerst áður. Cristina Kirchner forseti Argentínu hefur afboðað komu sína á opnunarhátíð leikanna á föstudaginn kemur. 25.7.2012 07:05
Bændur höfðu ekki leyfi til að beita sauðfé í Þórsmörk Komið er í ljós að bændurnir úr Rangárþigni eystra, sem nýverið slepptu fé til beitar á viðkvæma afrétti í grennd við Þórsmörk, höfðu ekki leyfi sveitarstjórnar til þess, eins og þeir héldu fram við Fréttastofu í gær. 25.7.2012 06:59
Veiddi stærsta fisk sem veiðst hefur á stöng í N-Ameríku Michael Snell 65 ára gamall Breti sem var í sumarfríi í Kanada um síðustu helgi náði að veiða stærsta fisk sem veiðst hefur á stöng í Norður Ameríku. 25.7.2012 06:47
Vopnasala stóreykst í Denver eftir skotárásina á Batman myndinni Vopnasala hefur stóraukist í borginni Denver í Colorado í kjölfar árásarinnar á forsýningu nýjustu Batman myndarinnar sem kostaði 12 mannslíf og tugi særða. 25.7.2012 06:37
Björgunarskip á leið að vélarvana 100 tonna línuveiðibáti Björgunarskip Landsbjargar frá Rifi er nú á leið að rúmlega hundrað tonna línuveiðibáti, með sjö manna áhöfn, sem er vélarvana um 80 sjómílur vestur af Breiðafirði, eftir að báturinn fékk veiðarfærin í skrúfuna í nótt. 25.7.2012 06:31
Mesta bráðnun á Grænlandsísnum í áratugi Bráðnun Grænlandsíssins í þessum mánuði er sú mesta síðan mælingar á henni hófust. Þetta sýna gervihnattamyndir sem NASA, geimsvísindastofnun Bandaríkjanna hefur sent frá sér. 25.7.2012 06:29
Verkfalli afstýrt á Heathrow Komið hefur verið í veg fyrir verkfall starfsfólks á Heathrow flugvelli sem átti að hefjast á morgun. Morgundagurinn verður að öllum líkindum sá stærsti í sögu flugvallarins. 25.7.2012 16:20
Sýna Sýrlendingum stuðning Tuttugu þúsund manns hafa nú fallið í Sýrlandi, eða tvöþúsund fleiri en búa á Akureyri. Boðað hefur verið til samstöðufundar á Ingólfstorgi í dag með almenningi í Sýrlandi. Samstöðu- og mótmælafundurinn hefst klukkan þrjú í dag. Til fundarins er boðað vegna þeirra stigmagnandi átaka og borgarastríðs sem geisað hefur í landinu undanfarin misseri. Á fundinum ætlar Jóhanna Kristjónsdóttir blaðamaður sem þekkir ástand mála í þessum heimshluta betur en flestir aðrir Íslendingar flytja ávarp og tónlistarmennirnir Bjartmar Guðlaugsson og Rúnar Þór flytja nokkur lög við hæfi. Fundarstjóri er Heimir Már Pétursson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Hinseginn daga. "Síðan verður borin upp stutt ályktun með áskorun til stjórnvalda um að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að þrýsta á um friðsamlega lausn mála þarna. Auðvitað er Ísland ekki gerandi þarna en við getum þá lagt okkar litla lóð á vogarskálarnar og sýnt að almenningur hér er að hlusta og þrýstir á," segir Heimir. Heimir hvetur fólk til að mæta og sýna samstöðu með börnum, konum og körlum í Sýrlandi. Morð á saklausum óbreyttum borgurum fái aðeins þrifist ef umheimurinn standi þögull hjá og leyfi þeim að gerast. Þess vegna sé nauðsynlegt að almenningur um allan heim láti í sér heyra og krefjist þess að morðöldunni linni. "Núna hafa 20.000 manns fallið í valinn í Sýrlandi, það er 2000 fleiri en búa á Akureyri," segir Heimir til að setja mannfallið í íslenskt samhengi. Í gærkvöldi bárust fréttir af því að einhverjir hafa sett sig í samband við Jóhönnu Kristjónsdóttur vegna mótmælanna og haft uppi hótanir. "Það er einstaklega ósmekklegt að vera að Jóhönnu Kristjónsdóttur, sem er ákaflega vönduð kona og hefur ekki lagt annað til málanna en uppbyggilega hluti. Auðvitað eru alltaf einhverjir vanstilltir einstaklingar sem ekki geta setið á sér en þetta er friðsamlegur fundur sem er ætlað að hvetja til friðar í landi sem mikill ófriður ríkir í," segir Heimir. Þeir sem vilja styðja stríðshrjáð börn í Sýrlandi er svo bent á að fulltrúar Fatímusjóðsins, taka á móti styrktarframlögum á fundarsvæðinu. Fatímusjóðinn stofnaði Jóhanna Kristjónsdóttir árið 2005 og er honum ætlað að styrkja fátæk börn. 25.7.2012 14:04
Útgefnum vegabréfum fjölgaði um 22,5% milli ára í júní Í júní s.l. voru gefin út 6.932 íslensk vegabréf. Til samanburðar voru gefin út 5.658 vegabréf í júní í fyrra. Fjölgar því útgefnum vegabréfum um 22,5% milli ára. 25.7.2012 10:36