Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
„Dálítið skrýtin uppákoma“ Þrír pólskir menn sem ákærðir eru fyrir að flytja til landsins tæp níu kíló af amfetamíni í sápubrúsum í apríl tóku sér í gær frest fram í næstu viku til að taka afstöðu til ákærunnar. 30.6.2012 06:00
Konur oftast þolendurnir Þolendur kynferðisbrota presta um allan heim eru í 95 prósentum tilvika konur. Þetta kemur fram í bókinni When Priests and Pastors Prey sem Heimsráð kirkjunnar og kristileg alþjóðasamtök stúdenta gefa út. 30.6.2012 06:00
Náðu stjórn á ómannaðri vél Bandarískum tölvunarfræðingum tókst að hakka sig inn í stjórnkerfi ómannaðrar flugvélar af sömu gerð og bandaríska leyniþjónustan notar til loftárása og ná þannig stjórn á flugvélinni. 30.6.2012 05:00
Byggja nýtt og rífa eftir tíu ár Í Buskerud í Noregi hafa umræður um hvar byggja skuli nýtt sjúkrahús staðið yfir í 20 ár. Nú hafa forstöðumenn sjúkrahússins í Drammen ákveðið að grípa til þeirrar bráðabirgðalausnar að láta reisa tveggja hæða hótel með 24 stofum fyrir sjúklinga, samkvæmt frétt norska ríkisútvarpsins. 30.6.2012 04:30
Níu ára með loftbyssu stal rafmagnsbíl Níu ára dreng tókst að stela rafmagnsbíl í eigu Gautaborgar í Svíþjóð með því að kalla að byssa sem hann bar væri hlaðin. Stráksi settist undir stýri og ók á 30 til 35 km hraða á undan ökumönnum á öðrum rafmagnsbíl og fleiri sem veittu honum eftirför. 30.6.2012 04:00
Einn hefur týnt lífi í eldinum Gróðureldar í Colorado Springs í Coloradofylki í Bandaríkjunum hafa kostað að minnsta kosti eitt mannslíf síðan þeir kviknuðu þann 23. júní. Innan við tíu er saknað vegna eldanna, sem hafa eyðilagt 346 heimili í úthverfum Colorado Springs. 30.6.2012 03:30
Sér hnúfubakinn út um stofugluggann „Það er ódýrt að fara í hvalaskoðun á Patreksfirði skal ég segja þér,“ segir Bríet Arnardóttir sem býr á Patreksfirði. Þar geta vegfarendur hæglega séð hnúfubaka frá götum bæjarins. Bríet telur að um fimm skepnur svamli um fjörðinn. 30.6.2012 03:15
Engar athugasemdir við Þorláksbúð Ríkisendurskoðun hefur lokið athugun sinni á því hvernig félagið utan um byggingu Þorláksbúðar í Skálholti hefur ráðstafað styrkjum sínum. Könnunin gefur ekki tilefni til athugasemda, að því er segir í bréfi Ríkisendurskoðunar til forseta Alþingis. 30.6.2012 03:00
Sprengjuregn í Damascus Hersveitir Assads Sýrlandsforseta létu sprengjum rigna yfir uppreisnarmenn í úthverfum höfuðborgarinnar Damascus í gær. Tólf eru sagðir hafa fallið í sprengjuregninu. 30.6.2012 03:00
Endurvinnslan á Akureyri flutt Endurvinnslustöðin við Réttarhvamm á Akureyri verður flutt að Furuvöllum 11 á næstu dögum. Móttakan lokaði á miðvikudag vegna flutninganna og opnar aftur næsta miðvikudag. 30.6.2012 02:30
Flóttamenn í felum fái hjálp Flokkarnir í sænsku ríkisstjórninni hafa komist að samkomulagi um að flóttamenn sem eru í felum fái niðurgreidda læknishjálp eins og þá sem hælisleitendur hafa rétt á. Þetta tilkynnti félagsmálaráðherra Svíþjóðar, Göran Hägglund, í gær. 30.6.2012 02:30
Fyrsta útskriftin Útskriftarathöfn Döffmenntaskólans fór í gær. Um er að ræða fyrsta námskeið sinnar tegundar á landinu og snýr að símenntun fyrir heyrnarlausa á þeirra móðurmáli, táknmáli. 30.6.2012 02:15
Siðareglur háðar túlkunum Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar ítrekar athugasemd sína um nauðsyn þess að settur verði á fót vettvangur til umræðu um siðareglur starfsmanna og borgarfulltrúa Reykjavíkurborgar. Þetta kemur fram í svari við fyrirspurn Vinstri grænna og Sjálfstæðismanna í borgaráði. 30.6.2012 02:15
Uppþvotturinn veitir hamingju Karlar sem þvo upp og sinna öðrum almennum heimilisstörfum eru hamingjusamari en aðrir karlar. Þetta er niðurstaða könnunar sem starfsmenn við Cambridge-háskólann í Englandi gerði á viðhorfum karla. 30.6.2012 02:00
Tæplega fjögur þúsund greitt atkvæði í Suðvesturkjördæmi Tæplega fjögur þúsund manns, eða 3837 höfðu greitt atkvæði í Suðvesturkjördæmi klukkan ellefu í morgun. Á kjörskrá eru rétt rúmlega 62 þúsund manns. Kjörsóknin er því 6,2 prósent sem er um prósenti minna en í síðustu þjóðaratkvæðagreiðslu sem snérist um Icesave. Og töluvert minna en í síðustu tveimur þingkosningum. 30.6.2012 11:41
Sprelligosi handtekinn á Landsmóti - myndir Á miðri ræktunarbússýningu á Landsmóti hestamanna í kvöld hljóp maður inn á reiðvöllinn með spýtu milli lappanna og þóttist vera á hesti. Hann lét öllum illum látum á vellinum við mikinn fögnuð áhorfenda og knapa. Hann vakti hins vegar ekki jafnmikla lukku hjá lögreglunni sem handtók hann fyrir uppátækið. Ljósmyndarinn Daníel Rúnarsson náði bráðskemmtilegum myndum af atvikinu. 29.6.2012 22:46
Vegurinn að Látrabjargi þarfnast viðhalds Ferðafélag V-Barðastrandasýslu skorar á Vegagerð Ríkisins að sjá til þess að viðgerð á veginum út að Látrabjargi verið kláruð. 29.6.2012 22:20
Hannes á ferð og flugi Hannes Bjarnason segir mikla hörku hafa verið í bloggheimum í aðdraganda kosninganna. Mikilvægt sé að þeir eldri sýni gott fordæmi því börn geti lesið það sem skrifað er. Hann notaði síðasta daginn fyrir kosningar til að hitta starfsfólk nýsköpunarfyrirtækis. 29.6.2012 21:44
Krummakaup er gleðisprengja fyrir Norðfjörð Verslunin Krummakaup var opnuð í Neskaupstað á dögunum. Verslunin er á vef Fjarðabyggðar nefnd stemningsverslun en þar er boðið upp á fjölbreytt vöruúrval og skemmtilega þjónustu. 29.6.2012 21:31
Ástþór ætlar ekki að kjósa Ástþór Magnússon ætlar ekki að kjósa á morgun og lítur svo á að kosningarnar séu skrípaleikur. 29.6.2012 18:00
Nasa ekki rifið - ASK vann miðbæjarsamkeppnina Engar byggingar verða rifnar niður við uppbyggingu á Austurvelli og á Ingólfstorgi, samkvæmt tillögu um uppbyggingi í miðborginni sem fékk fyrstu verðlaun í arkitektasamkeppni sem efnt var til. Verðlaunaafhendingin fór fram nú síðdegis. Samkvæmt tillögunni stendur ekki til að rífa veitingastaðinn Nasa en húsinu verður gjörbreytt. 29.6.2012 16:34
Fyrstu myndirnar af Cruise í tökum á Íslandi Ítarleg umfjöllun er um myndina Oblivion á vef Daily Mail í dag. Þar segir frá því að Tom Cruise hafi verið staddur á virku eldfjalli í gær við tökur á myndinni en hann mun vera staddur í nágrenni við Veiðivötn. Í fréttinni segir að Cruise virðist hafa skemmt sér gríðarlega vel við tökurnar. Hann hafi gengið um og spjallað um tökurnar við kvikmyndatökuliðið. Söguþráður myndarinnar er á þá leið að stutt er í að mannkyninu á jörðu verði útrýmt. Persóna Cruise er ein af fáum lifandi og hann verst árásum frá geimverum. 29.6.2012 13:38
Mun stinga upp á þjóðaratkvæðagreiðslu í þriðja sinn Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, mun í haust leggja til að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla um framtíðarskipan fiskveiðistjórnar Íslands. Ólína skrifar grein í Fréttablaðið í dag um málið en hún hefur tvisvar lagt fram slíka tillögu áður. Í bæði skiptin dagaði hún uppi í þinginu. 29.6.2012 19:20
Lýst eftir gulum bát Lögreglan lýsir eftir gulum hraðbát. Bátnum var stolið af bílastæði við Faxafen í Reykjavík í nótt sem leið. Báturinn er 3-4 metrar að lengd og u.þ.b. 1,5 metrar á breidd. Botninn er grámálaður að innverðu, gler dökklitað og mælaborð leðurklætt í svörtum lit. Hann var á bátavagni með bláum brettum. 29.6.2012 17:14
Fæðingarkirkjan viðurkennd Mennta-, vísinda- og menningarsamtök Sameinuðu þjóðanna gáfu út yfirlýsingu í dag og viðurkenndu Fæðingarkrikjuna í Betlehem. 29.6.2012 17:11
Árituð treyja frá Barselóna í styrktarleik UNICEF Íslendingum gefst nú tækifæri til að styrkja UNICEF og taka um leið þátt í happdrætti þar sem árituð treyja frá leikmönnum Barselóna stendur til boða. 29.6.2012 16:49
Obama talinn hæfari að verjast geimverum Samkvæmt nýrri rannsókn er Bandaríkjaforseti Obama talinn líklegri til að verjast innrás geimvera heldur en keppinautur hans Mitt Romney. 29.6.2012 16:28
Slys í reiðtúr efldi ást forsetahjónanna Hesturinn er nátengdur fyrstu kynnum okkar Dorritar, sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sem var á rómantísku nótunum þegar hann ávarpaði Landsmót hestamanna við setningu mótsins í gær. 29.6.2012 16:04
Þekktir vísindamenn fræðast um uppruna lífs á Íslandi Nokkrir af fremstu vísindamönnum veraldar á sviði stjörnulíffræði eru væntanlegir til landsins en þeir munu taka þátt í alþjóðlegum sumarskóla sem haldin er í annað sinn hér á landi. 29.6.2012 15:58
Kate Middleton sefur á götunni Kate Middleton ætlar ásamt leikkonu og aðgerðasinnanum Lisu Maxwell að verja nótt á götum London til að styðja herferðina "Sofa úti". Herferðin er til þess að vekja athygli almennings á stöðu heimilislausra. 29.6.2012 15:18
Fimm á slysadeild eftir árekstur í Hafnarfirði Fimm manns voru fluttir á slysadeild nú um þrjúleytið eftir að þriggja bíla árekstur varð á mótum Vífilsstaðavegar og Hafnarfjarðarvegur. Ekki hafa fengist upplýsingar um það hvað olli árekstrinum eða hvort fólkið er alvarlega slasað. Við segjum nánar frá þessu á Vísi síðar í dag. 29.6.2012 15:16
Hræðist skattahækkanir Nikki Haley ríkisstjóri Suður- Karólínu í Bandaríkjunum sagði í gær að niðurstaða hæstaréttar um að framfylgja nýjum lögum um heilbrigðisþjónustu landsins, býður upp á miklar skattahækkanir. 29.6.2012 14:50
Fá ekki upplýsingar frá Seðlabankanum Þórður Snær Júlíusson blaðamaður mun ekki fá afhentar upplýsingar um bókfært virði seljendaláns Seðlabanka Íslands til nýrra eigenda hins danska FIH banka um áramótin 2011 til 2012. Seðlabankinn hafði neitað því að láta blaðamanninum í té þessar upplýsingar og úrskurðarnefnd um upplýsingamál staðfesti þá synjun Seðlabankans í nýjum úrskurði. Þá vísaði úrskurðarnefnd um upplýsingamál frá kæru vegna kröfu um afhendingu afrits af kaupsamningi sem Seðlabankinn gerði um sölu FIH bankans í október 2010. 29.6.2012 14:45
Frú Helför opinberuð í Ísrael Fjórtán konur á aldrinum 74 til 97 tóku þátt í umdeildri fegurðarsamkeppni í Ísrael í gær. 29.6.2012 14:44
Meintir fíkniefnasmyglarar fyrir dóm í morgun Þrír pólverjar, sem ákærðir eru fyrir að flytja 8,6 kíló af amfetamíni, til landsins um miðjan apríl tóku sér allir frest til að lýsa yfir afstöðu til sakarefnisins þegar ákæra gegn þeim var þingfest í morgun. 29.6.2012 14:25
Flugræningjar yfirbugaðir Flugfarþegar hjálpuðu til við að afstýra tilraun flugráns yfir Xinjiang í vesturhluta Kína í dag. 29.6.2012 13:58
"Mannréttindi skulu ávallt vera æðri öllum lagareglum" Öryrkjabandalag Íslands hefur mótmælt því að mannréttindi séu brotin á fötluðu fólki við framkvæmd kosninga. 29.6.2012 13:14
Mikið mannfall í Sýrlandi Mikið mannfall var í gær þegar 190 manns voru drepnir á einum mannskæðasta degi uppreisnarinnar í Sýrlandi. 29.6.2012 13:12
A Clockwork Orange nú í söngleikjaformi Söngleikjaútgáfa skáldsögunnar A Clockwork Orange eftir Anthony Burgess var frumsýnd í Bretlandi í gær. Burgess samdi lögin sjálfur en það gerði hann fyrir rúmlega 26 árum. 29.6.2012 12:53
Ólafur undirritaði lög um veiðileyfagjöld Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, undirritaði lög um veiðigjald á útgerðarfyrirtæki á þriðjudaginn síðastliðinn. Þetta fékkst staðfest í forsætisráðuneytinu í morgun. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu bárust forsetanum nær engar áskoranir um að vísa frumvarpinu í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hin nýsamþykktu lög um veiðigjald þykja umdeild en þau eiga að skila ríkissjóði 12,8 - 13,6 milljarða króna sem útgerðarfyrirtækin þurfa greiða í endurgjald fyrir afnot af sameiginlegri fiskveiðiauðlind þjóðarinnar. 29.6.2012 12:16
Kínversku geimfararnir komnir heim Þrír kínverskir geimfarar lentu heilu og höldnu í Mongólíu í nótt eftir að hafa dvalið í 13 daga í geimnum. 29.6.2012 12:11
Gera heimildarmynd um Guðmund Felix Danska ríkissjónvarpið og RÚV hafa keypt sýningarrétt á íslenskri heimildarmynd um Guðmund Felix Grétarsson, sem er á leiðinni til Frakklands í handaágræðslu. Fleiri erlendir aðilar hafa sýnt verkefninu áhuga. 29.6.2012 12:06
Fór hágrátandi heim frá Gillzenegger Stelpan sem kærði Egil Einarsson fyrir nauðgun í haust fór hágrátandi af heimili Egils nóttina sem hún fullyrðir að hann hafi nauðgað sér. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem réttargæslumaður stúlkunnar hefur sent fjölmiðlum. 29.6.2012 11:25
Hryðjuverk á Ólympíuleikunum Tveir menn hafa verið handteknir fyrir grun um að skipuleggja hryðjuverkaárás á leikvang Ólympíuleikanna. 29.6.2012 11:21
Vita ekki hvað Hitler gerði Helmingur táninga í Þýskalandi vita ekki að Hitler var einræðisherra. 29.6.2012 10:23