Innlent

Slys í reiðtúr efldi ást forsetahjónanna

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Hesturinn er nátengdur fyrstu kynnum okkar Dorritar, sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sem var á rómantísku nótunum þegar hann ávarpaði Landsmót hestamanna við setningu mótsins í gær.

„Ef einhver er í vafa þá get ég fullvissað ykkur um það að ekkert eflir ástina eins og að detta af baki og sjá hina heittelskuðu fella tár vegna fórnanna sem ég færði og axlarbrotið bar vitni um," sagði Ólafur Ragnar. Frægur er reiðtúrinn sem Ólafur og Dorrit fóru í með þeim afleiðingum að Ólafur féll af baki og slasaði sig síðan. Ólafur sagðist síðan hafa axlarbrotnað aftur tíu árum síðar til að sanna ást sína. „Geri aðrir betur," sagði Ólafur.

Ólafur Ragnar Grímsson axlarbrotnaði á hestbaki.mynd/ gva.
Ólafur sagði að það hefði verið sér og Dorrit mikill heiður að sækja Landsmót hestamanna hingað til. „Að koma í Skagafjörðinn á sínum tíma með heimsfræga hestakonu sem oft hefur nefnt þessa heimsókn þegar við höfum hitt hana síðar," sagði Ólafur Ragnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×