Fleiri fréttir Um 57% styðja Ólaf Ragnar Nærri sex af hverjum tíu kjósendum ætla að kjósa Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, í forsetakosningum sem fram fara á morgun. Þetta sýna niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 sem gerð var í gærkvöldi og fyrrakvöld. 29.6.2012 07:00 Ökumaður bifhjóls mældur á 153 km hraða Ökumaður bifhjóls mældist á 153 kílómetra hraða á Ólafsfjarðarvegi í gærkvöldi. Hann missir ökuréttindi í mánuð og þarf að greiða 130 þúsund krónur í sekt. 29.6.2012 06:53 Þurftu að setja bróður ökumanns í járn Þegar Selfoss lögreglan stöðvaði ökumann í gærkvöldi í uppsveitum Árnessýslu, grunaðan um ölvunarakstur, brást bróðir hans ókvæða við, en hann var farþegi í bílnum. 29.6.2012 06:52 Eiginkonan skilin við Dominique Strauss-Kahn Anne Sinclair og Dominique Strauss-Kahn fyrrum forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eru skilin. Þau höfðu verið gift í 20 ár. 29.6.2012 06:46 Senda skriðdreka að tyrknesku landamærunum Sýrlandsstjórn hefur sent 170 skriðdreka og brynvarin hertæki að landamærunum við Tyrkland. 29.6.2012 06:40 Mikið þrumuveður og úrhelli herjar á Dani Mikið þrumuveður og úrhelli gengur nú yfir Danmörku. Í augnablikinu herjar þetta veður á íbúana á Jótlandi en talið er að veður þetta nái til Kaupmannahafnar síðdegis í dag. Hinsvegar er búist við að íbúar á Borgundarhólmi sleppi við veðrið. 29.6.2012 06:36 Fornleifafræðingar fundu elsta leirpott sögunnar Fornleifafræðingar hafa fundið það sem talið er vera brot úr elsta leirpotti í sögunni í helli í suðurhluta Kína. Leirpottur þessi er talinn vera um 20.000 ára gamall eða um 10.000 árum eldri en áður var talið að slíkir pottar voru fyrst búnir til. 29.6.2012 06:34 Marglyttur eru holl og próteinrík matvæli Marglyttur eru bæði hollar og próteinríkar og fólk ætti að borða þær eins og hverja aðra fæðu. Þetta er niðurstaða nýrrar rannsóknar í Kanada. 29.6.2012 06:29 Hróplegur munur á slætti Grasflötin á Eiðisgranda tekur stakkaskiptum við bæjarmörk Reykjavíkur og Seltjarnarness. Flötin Seltjarnarnesmegin er slegin en Reykjavíkurmegin fá njólarnir og úr sér sprottið grasið að vera í friði fyrir sláttuvélunum. 29.6.2012 05:30 Slegin óhug yfir ofbeldisverkum Ísland lýsir yfir óhug og þungum áhyggjum af stöðu mannréttindamála í Sýrlandi og hvetur til þess að mögulegum kerfisbundnum brotum, sem kunni að reynast glæpir gegn mannkyni, verði vísað til Alþjóðlega sakamáladómstólsins. 29.6.2012 05:00 Börsungar gefa áritaða treyju Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF á Íslandi, stendur fyrir happdrætti þar sem einn heppinn þátttakandi fær áritaða treyju Barcelona, knattspyrnuliðsins katalónska. Knattspyrnuliðið gaf landsnefndum UNICEF um allan heim treyjur. Aðeins ein er í boði á Íslandi. 29.6.2012 05:00 Mikilvægt framlag til mannréttinda Stefnt er að því að frumvarp að nýjum heildarlögum um málefni útlendinga verði lagt fram á Alþingi í haust. Þetta kom fram á fundi í gær þar sem skýrsla nefndar, sem fjallað hefur um málefni útlendinga utan Evrópska efnahagssvæðisins, var kynnt. 29.6.2012 04:30 Mót á hverjum föstudegi í júlí
Sjá næstu 50 fréttir
Um 57% styðja Ólaf Ragnar Nærri sex af hverjum tíu kjósendum ætla að kjósa Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, í forsetakosningum sem fram fara á morgun. Þetta sýna niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 sem gerð var í gærkvöldi og fyrrakvöld. 29.6.2012 07:00
Ökumaður bifhjóls mældur á 153 km hraða Ökumaður bifhjóls mældist á 153 kílómetra hraða á Ólafsfjarðarvegi í gærkvöldi. Hann missir ökuréttindi í mánuð og þarf að greiða 130 þúsund krónur í sekt. 29.6.2012 06:53
Þurftu að setja bróður ökumanns í járn Þegar Selfoss lögreglan stöðvaði ökumann í gærkvöldi í uppsveitum Árnessýslu, grunaðan um ölvunarakstur, brást bróðir hans ókvæða við, en hann var farþegi í bílnum. 29.6.2012 06:52
Eiginkonan skilin við Dominique Strauss-Kahn Anne Sinclair og Dominique Strauss-Kahn fyrrum forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eru skilin. Þau höfðu verið gift í 20 ár. 29.6.2012 06:46
Senda skriðdreka að tyrknesku landamærunum Sýrlandsstjórn hefur sent 170 skriðdreka og brynvarin hertæki að landamærunum við Tyrkland. 29.6.2012 06:40
Mikið þrumuveður og úrhelli herjar á Dani Mikið þrumuveður og úrhelli gengur nú yfir Danmörku. Í augnablikinu herjar þetta veður á íbúana á Jótlandi en talið er að veður þetta nái til Kaupmannahafnar síðdegis í dag. Hinsvegar er búist við að íbúar á Borgundarhólmi sleppi við veðrið. 29.6.2012 06:36
Fornleifafræðingar fundu elsta leirpott sögunnar Fornleifafræðingar hafa fundið það sem talið er vera brot úr elsta leirpotti í sögunni í helli í suðurhluta Kína. Leirpottur þessi er talinn vera um 20.000 ára gamall eða um 10.000 árum eldri en áður var talið að slíkir pottar voru fyrst búnir til. 29.6.2012 06:34
Marglyttur eru holl og próteinrík matvæli Marglyttur eru bæði hollar og próteinríkar og fólk ætti að borða þær eins og hverja aðra fæðu. Þetta er niðurstaða nýrrar rannsóknar í Kanada. 29.6.2012 06:29
Hróplegur munur á slætti Grasflötin á Eiðisgranda tekur stakkaskiptum við bæjarmörk Reykjavíkur og Seltjarnarness. Flötin Seltjarnarnesmegin er slegin en Reykjavíkurmegin fá njólarnir og úr sér sprottið grasið að vera í friði fyrir sláttuvélunum. 29.6.2012 05:30
Slegin óhug yfir ofbeldisverkum Ísland lýsir yfir óhug og þungum áhyggjum af stöðu mannréttindamála í Sýrlandi og hvetur til þess að mögulegum kerfisbundnum brotum, sem kunni að reynast glæpir gegn mannkyni, verði vísað til Alþjóðlega sakamáladómstólsins. 29.6.2012 05:00
Börsungar gefa áritaða treyju Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF á Íslandi, stendur fyrir happdrætti þar sem einn heppinn þátttakandi fær áritaða treyju Barcelona, knattspyrnuliðsins katalónska. Knattspyrnuliðið gaf landsnefndum UNICEF um allan heim treyjur. Aðeins ein er í boði á Íslandi. 29.6.2012 05:00
Mikilvægt framlag til mannréttinda Stefnt er að því að frumvarp að nýjum heildarlögum um málefni útlendinga verði lagt fram á Alþingi í haust. Þetta kom fram á fundi í gær þar sem skýrsla nefndar, sem fjallað hefur um málefni útlendinga utan Evrópska efnahagssvæðisins, var kynnt. 29.6.2012 04:30
Fleiri stelpur í hestaíþróttinni Þátttaka stelpna í hestaíþróttum hefur farið vaxandi. Hér á landi hafa strákar verið duglegri við að stunda íþróttina þótt kynjahlutföll skráðra meðlima í hestamannafélögum á Íslandi séu nokkuð jöfn. 29.6.2012 04:15
Forsíðumynd og flugmiðar með Wow-air í fyrstu verðlaun Útivist er þema fyrstu ljósmyndasamkeppni sumarsins sem Fréttablaðið efnir til meðal lesenda sinna. Þeir eru hvattir til að senda sem fjölbreytilegastar myndir af viðfangsefnum sem tengjast útivist með einum eða öðrum hætti. 29.6.2012 04:15
Vill ekki „tákn um sundrungu“ hjá Jóni „Mér finnst að Jón Sigurðsson, okkar sameiningartákn, eigi að fá að vera þarna í friði,“ segir Marta Guðjónsdóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokks í skipulagsráði Reykjavíkur. Marta er andvíg því að listaverkið Svarta keilan verði á Austurvelli. 29.6.2012 04:00
Smygluðu dópi í sápubrúsum Ríkissaksóknari hefur ákært þrjá pólska karlmenn fyrir að flytja til landsins 8,6 kíló af amfetamíni um miðjan apríl. 29.6.2012 04:00
Ráðherrann biður fatlaða afsökunar Sigurður Kári Kristjánsson, þáverandi alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, lagði fram tillögu um miðjan síðasta áratug sem uppfylla átti kröfu fatlaðra um aðstoðarmann að eigin vali í kosningum. Málið fékkst ekki afgreitt frekar en þegar Sigurður ásamt öðrum lagði það fram aftur á þinginu 2010-2011, í aðdraganda kosninga til stjórnlagaþings. 29.6.2012 03:30
Forskot Ólafs Ragnars stórt Ólafur Ragnar Grímsson er líklegur til að hljóta endurkjör til næstu fjögurra ára í embætti forseta Íslands ef marka má niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 sem gerð var í gær og fyrrakvöld. 29.6.2012 03:15
Forsetinn vill getnaðarvarnir Nígeríumenn ættu að takmarka barneignir sínar, segir Goodluck Jonathan, forseti landsins. 29.6.2012 03:00
Fréttaskýring: Refsiaðgerðir frekar ólíkleg framtíðarsýn Eru refsiaðgerðir af hendi Evrópusambandsins yfirvofandi vegna makrílveiða? Nú liggur fyrir samkomulag fulltrúa Evrópuþingsins og ráðherraráðs Evrópusambandsins, þar sem Danir fara með forsæti, um að reglugerð verði sett sem veitir heimild til aðgerða gegn ríkjum sem stunda ósjálfbærar veiðar. Reglugerðin er sett til höfuðs Íslendingum og Færeyingum vegna makrílveiða. Refsiaðgerðir gegn Íslandi hafa hins vegar ekki verið samþykktar, og myndu reynast bitlitlar ef til þeirra kæmi. Framhald málsins ræðst líklega á haustmánuðum. 29.6.2012 02:30
Gamalt sláturhús verður hótel Fosshótel opnar 41 herbergis hótel á Patreksfirði í maí á næsta ári. Samningar þess efnis voru undirritaðir á Patreksfirði í gær. Það verður langstærsta hótelið á svæðinu segir Ásthildur Sturludóttir, bæjarstýra Vesturbyggðar. Hótelið verður í endurbyggðu vinnsluhúsi en í því var áður rekið sláturhús og fiskvinnsla. 29.6.2012 02:15
Risagígur á Grænlandi Gígur, sem er 600 km í þvermál og stærri en Danmörk, myndaðist á Grænlandi þegar loftsteinn, sem var þrír kílómetrar í þvermál, hrapaði þar fyrir þremur milljörðum ára. 29.6.2012 02:00
Krakkar í Kópavogi með hærri laun Unglingar í vinnuskólanum í Kópavogi fá allt að þrjátíu prósent hærri laun en jafnaldrar sínir í vinnuskólanum í Reykjavík. Vinnuskólinn er á vegum sveitarfélagana sem ákveða sjálf laun unglingana. 28.6.2012 23:45
Langar raðir á kjörstað í kvöld Nú klukkan hálf tíu í kvöld voru langar raðir fyrir utan Laugardalshöllina af fólki sem ætlaði að greiða atkvæði fyrir forsetakosningarnar utan kjörfundar. 28.6.2012 22:53
Cruise grillaði pylsur í eldfjallagíg Sonur Tom Cruise skemmtir sér stórkostlega á Íslandi og virðist elska land og þjóð. Á þriðjudaginn grillaði hann pylsur ofan í eldfjallagíg. Hann er búinn að fara og kafa í Silfru, fara í jöklaferðir og nú síðast fór hann í river rafting. 28.6.2012 20:59
Heilbrigðislöggjöf Obama stenst stjórnarskrá Meirihluti Hæstaréttar Bandaríkjanna komst í dag að þeirri niðurstöðu að heilbrigðislöggjöf Baracks Obama stenst stjórnarskrá landsins. Því hefur verið varpað að þetta sé eitt stærsta mál dómstólsins í fjölda ára. 28.6.2012 22:36
Vélmenni sem sigrar alltaf í Steinn, skæri, blað Verkfræðingar við háskólann í Tókýó hafa þróað vélmenni sem mun ávallt trompa mannkynið þegar kemur að fingraleiknum Steinn, skæri, blað. 28.6.2012 22:30
Erfiðasta Sudoku-þraut veraldar Vinsældir Sudoku virðast engan enda ætla að taka. Áhugamenn um þessa ávanabindandi talnaþraut ættu nú að ydda blýanta sína því erfiðasta Sudoku þrautin hefur nú verið birt. 28.6.2012 22:00
Fékk heldur ekki að heita Blær og fagnar málaferlum Þuríður Blær, leikaranemi, fagnar málaferlum gegn innanríkisráðherra til að fá úrskurði mannanafnanefndar um að konur megi ekki heita Blær ógilta. Þuríður er einn þeirra stúlkna sem aldrei fékk að heita Blær opinberlega og hefur gegnum tíðina staðið í miklu stappi við mannanafnanefnd vegna þessa. 28.6.2012 21:55
Komst í hann krappan á Esjunni Björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu og Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fóru á Esju nú í kvöld til aðstoðar ungum manni sem veiktist á göngu á fjallinu. Þegar hann var kominn upp að Steini þvarr honum kraftur og komst ekki lengra. Menn frá slökkviliðinu voru fyrstir á staðinn og hjálpuðu þeir honum niður hluta af leiðinni, þangað sem björgunarsveitir biðu með fjórhjól. Aðgerðinni lauk á níunda tímanum. 28.6.2012 21:21
Góð reynsla af að líta ekki á fíkniefnaneyslu sem afbrot Reynsla Portúgala af því að hætta að líta á fíkniefnaneyslu sem afbrot er góð og hefur engar skaðlegar hliðar í för með sér. Fyrir tveimur dögum birtu Sameinuðu Þjóðirnar skýrslu um að fíkniefnastríðið væri tapað og hefði meiri skaðlegar afleiðingar en góðar. Reynsla Portúgala gæti verið vatn á myllu þessa málstaðar. 28.6.2012 20:25
Tyrkir búast til varnar Tyrkir hafa sent hermenn, eldflaugar og önnur hergögn að landamærum Sýrlands samkvæmt fréttastofu Sky News. Forsætisráðherra Tyrklands hefur jafnframt gefið út skipun um að bregðast við ógnum sem kunna að steðja að landamærunum. Hann lýsti því yfir í kjölfar þess að Sýrlendingar skutu niður tyrkneska herflugvél fyrir skömmu. 28.6.2012 18:20
Bein útsending frá setningarathöfn Landsmóts Setningarathöfn Landsmóts hestamanna hefst núna klukkan hálfníu og er sýnd í beinni útsendingu á Vísi. Á athöfninni er meðal annars hópreið, sem þau Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, og Dorrit Moussaief leiða. Smelltu á hnappinn "Horfa á myndskeið með frétt“ til að fylgjast með athöfninni. 28.6.2012 20:02
Verið að gera stjórnvöld að blóraböggli Sjávarútvegsráðherra segir Vinnslustöðina í Vestmannaeyjum reyna að gera stjórnvöld að blóraböggli í rekstravanda fyrirtækisins. Útskýringar stjórnenda gangi ekki upp. 28.6.2012 19:48
Aðeins einn forsetaframbjóðandi lagði á Esjuna Hannes Bjarnason var eini forsetaframbjóðandinn sem mætti í viðtal í Reykjavík síðdegis á Esjunni í dag. Þáttarstjórnendurnir sendu þáttinn út af toppi Esjunnar í dag og buðu öllum forsetaframbjóðendunum að koma í viðtal. 28.6.2012 19:07
Í sjöunda himni eftir heimsókn til lögreglunnar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu bjargaði degi konu nokkurrar sem kom á stöðina til að tilkynna um týnda Sony videotökuvél. Konan var að vonum niðurdregin og gerði sér engar vonir um að vélina væri að finna hjá lögreglunni, kom bara á stöðina til að fylla út þar til gert eyðublað eins og ber að gera í tilvikum sem þessum. 28.6.2012 17:41
Breytingar í Egyptalandi Eiginkona Morsi, forseta Egyptalands, vill ekki láta kalla sig „helsta konan" (e. first lady). Ef hún þarf að bera einhvern titil vill hún heldur vera kölluð „helsti þjónn" (e. first servant) landsins. 28.6.2012 16:40
„Þetta er gríðarlega þungt högg fyrir okkur" "Þetta er gríðarlega þungt högg fyrir okkur. Það sem er kannski verst er að sjá þennan helkalda veruleika berast fyrir framan sig eftir að hafa fengið það ítrekað í andlitið frá þingmönnum að við séum að stunda hræðsluáróður." 28.6.2012 16:27
Krummi krunkaði með börnunum Hann Krummi var kátur þegar hann hitti krakkana í sumarskóla Ísaksskóla í Skaftahlíðinni í morgun. Krummi, sem er heimaalningur í húsi í nágrenni við skólann og 365 miðla, þáði kex og brauðmylsnu úr hendi krakkanna og foreldrarnir fylgdust spenntir með. Krummi krunkaði síðan til þeirra allra í þakklætisskyni. Samkvæmt upplýsingum frá Ísaksskóla er sumarskólinn rekinn fyrir 5 og 6 ára gömul börn. 28.6.2012 16:13
Kærasti Amy Winehouse kærður fyrir nauðgun Kærasti söngkonunnar Amy Winehouse hefur verið kærður fyrir nauðgun, samkvæmt heimildarmanni sem talaði við Huffington Post. 28.6.2012 15:42
Ögmundur biðst afsökunar Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra biður fólk með fötlun afsökunar á því að hafa ekki breytt kosningalöggjöfinni á þann hátt að fólk geti valið sér aðstoðarmenn þegar það fer inn í kjörklefa. Freyja Haraldsdóttir, ötull talsmaður fyrir réttindum fólks með fötlun, vakti athygli á því í tölvupósti til þingmanna og fjölmiðla í gær að löggjöfinni hafi ekki verið breytt. Nokkrir þingmenn hafa þegar brugðist við og lofað því að flytja þingmál á næsta þingi. 28.6.2012 15:20
Reykjavík síðdegis á Esjunni Þeir félagarnir í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni munu standa skör hærra í þættinum í dag en venjulega því þeir ætla að senda þáttinn út ofan af Esjunni. 28.6.2012 15:12
Heilbrigðislöggjöf Obama stendur Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur komist að þeirri niðurstöðu að heilbrigðislöggjöf Baracks Obama, Bandaríkjaforseta, og Demókrata sé í samræmi við stjórnarskrá landsins. 28.6.2012 15:05
Maður frá Eritríu óskaði eftir hæli Í morgun knúði maður dyra á lögreglustöðinni á Egilsstöðum. Hann kvaðst hafa komið með ferjunni Norrænu til Seyðisfjarðar frá Danmörku fyrr um morguninn og óskaði eftir hæli á Íslandi. 28.6.2012 15:02