Fleiri fréttir

Bensínþjófur á sextugsaldri dæmdur

Karlmaður á sextugsaldri var dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun fyrir að hafa stolið bensíni þrisvar sinnum á síðustu þremur árum.

Leiðtogafundur ESB enn í gangi

Fjárhagsvandamál á evrusvæðinu er aðalumræðuefnið og Angela Markel kanslari Þýskalands og Francois Hollande forseti Frakklands reyna að komast að niðurstöðu hvaða leiðir séu bestar til að leysa vandann.

Mál Kim Dotcom í uppnámi - leitarheimildin ógild

Dómstóll í Nýja-sjálandi hefur úrskurðað að leitarheimild sem lögreglan þar í landi notaði til að ráðast inn á heimili Kim Dotcom, stofnanda skráarskiptasíðunnar Megaupload, hafi verið ógild.

Presturinn vill loka á Orkuveituna og grafa eigin skolplögn

Presturinn í Reykholti íhugar að leggja eigin skolp- og vatnsveitu fyrir kirkjuna þar sem megnið af sóknargjöldunum fari í að greiða vatns- og fráveitugjöld. Kirkjur eru undanþegnar fasteignagjöldum, sem dekkuðu áður vatns- og fráveitugjöld, en þegar borgin og Orkuveita Reykjavíkur í fjárhagsvandræðum sínum tóku upp á því í fyrra að rukka gjöldin sérstaklega sat Reykholtskirkja í súpunni.

Gerir mynd um ævintýralegan ástarþríhyrning

Ævintýralegur ástarþríhyrningur merar, knapa og graðhests verður kvikmyndaður í Skagafirði í sumar, við undirleik 150 hestamanna og fjögur hundruð hrossa. Það er Benedikt Erlingsson leikstjóri og hestamaður sem stendur að þessari uppákomu við gerð myndarinnar Hross, sem þegar hefur hlotið styrki frá Kvikmyndamiðstöð Íslands og ýmsum norrænum sjónvarpsstöðvum, að sögn Bændablaðsins.

189 frávik frá starfsleyfum - flest í úrgangs og efnamóttökum

Fulltrúar umhverfisstofnunar fóru á síðasta ári í eftirlit til rúmlega hundrað og tuttugu aðila en í ferðinni komu í ljós tæplega eitt hundrað og níutíu frávik frá starfsleyfum, lögum og reglugerðum. Flest frávik voru í úrgangs- og efnamóttökum en aðeins eitt frávik var hjá álverum.

Laug að dreng að foreldrar hans væru á sjúkrahúsi

Lögreglan á Húsavík leitar karlmanns sem reyndi að tæla átta ára gamlan dreng upp í bíl til sín á mánudagskvöldinu. Talið er nokkuð öruggt að karlmaðurinn hafi haft illt í hyggju en hann laug að drengnum að foreldrar hans væru á sjúkrahúsi og að hann ætti að aka drengnum þangað.

Vantar leikara til að leika á móti Þorvaldi Davíð

Vonarstræti er heiti á nýrri mynd sem Baldvin Z leikstýrir. Þetta er önnur kvikmynd hans, en hann leikstýrði jafnframt myndinni Órói. Um er að ræða mikla dramamynd sem verður tekin upp í byrjun næsta árs á Íslandi og víðar. "Ég er að byrja þetta skemmtilega ferli að finna leikara inn í Vonarstræti," segir Baldvin í samtali við Vísi. Hann bætir því við að hann vanti þrjár 5-8 ára gamlar stelpur og eina 13 - 17 ára til að leika í myndinni.

Herdís gagnrýnir stjórnmálaprófessor harðlega

Herdís Þorgeirsdóttir forsetaframbjóðanda gagnrýnir orð Gunnars Helga Kristinssonar, prófessors í stjórnmálafræði, sem sagði í viðtali við RÚV á þriðjudaginn, að opið bókhald frambjóðenda væri merkingarlítið þar sem upplýsingarnar yrðu ekki sannreyndar af Ríkisendurskoðanda fyrr en eftir kosningar. Hann benti jafnframt á að krafa annarra frambjóðanda um að opna bókhaldið væri eðlileg taktík fyrir þá sem hafa minna fé milli handanna í kosningunum og til þess fallið að snúa veikleikum slíkra frambjóðanda í styrk.

Nýja brúin stendur ónotuð - veginn vantar

Þorpin tvö í Reykholtsdal í Borgarfirði, Kleppjárnsreykir og Reykholt, fá betri tengingu með nýrri brú yfir Reykjadalsá, sem er að verða tilbúin. Brúin verður þó ekki opnuð fyrr en eftir rúmt ár þar sem fjárveitingu vantar í vegagerð að henni. Gamla brúin er mjó og einbreið en verður leyst af hólmi með nýrri brú sem risin er um eitthundrað metrum austar.

Fyrsta slætti víða lokið

Fyrsta slætti er lokið víða á Suðurlandi. Sigurður Ágústsson bóndi í Birtingaholti í Hrunamannahreppi og slátturverktaki segir í samtali við Dagskrána að hann hafi klárað fyrsta slátt þann 15. júní hjá sér og ellefu öðrum bændum í nágrenninu.

Meira en 1.300 á biðlistum eftir félagslegum íbúðum

Meira en 1.300 manns eru á biðlistum eftir íbúðum innan félagslegra kerfa stærstu sveitarfélaga landsins. Algengasti biðtími eftir íbúðum er á bilinu eitt til tvö ár og eru hlutfallslega flestir á biðlista hjá Kópavogsbæ miðað við fjölda íbúða í boði.

Vélarvana hraðfiskibátur dreginn til hafnar

Björgunarsveitarmenn Landsbjargar í Neskaupstað mönnuðu í skyndi harðbotna björgunarbát og héldu út, eftir að beiðni um aðstoð barst frá yfirbyggðum hraðfiskibáti, sem varð vélarvana aðeins hálfa sjómílu út af Barðneshorni við Norðfjörð.

Samkomulag um Sýrlandstillögur Kofi Annan

Rússar og leiðtogar Vesturveldanna hafa náð samkomulagi um að standa á bakvið tillögur Kofi Annan um þjóðstjórn í Sýrlandi til að reyna að binda endi á átökin þar í landi.

Leiðtogafundur ESB hefst í dag

Leiðtogafundur Evrópusambandsins hefst í dag þar sem vandamálin á evrusvæðinu verða enn og aftur aðalumræðuefnið.

Biskup segir af sér eftir faðmlög á baðströnd

Páfinn hefur fallist á afsögn biskups í Argentínu en biskupinn ákvað að segja af sér eftir að myndir birtust á sjónvarpsstöð af honum í áköfum faðmlögum við konu á baðströnd í Mexíkó.

Endurheimti stolnar tölvur

Farangri kanadísks ferðamanns var stolið á hóteli í miðborginni um síðustu helgi. Í farangrinum var töluvert um verðmæti, meðal annars fartölva og Ipad-spjaldtölva.

Eiturlyf hamla þúsaldarmarkmiðum

Efla þarf aðgerðir gegn ólöglegum eiturlyfjum og skipulagðri glæpastarfsemi, eigi að takast að styðja við þróunarlöndin. Þetta segir Yury Fedotov, framkvæmdastjóri stofnunar Sameinuðu þjóðanna sem berst gegn eiturlyfjum og glæpum (UNODC).

Björguðu börnum frá vændi

Bandaríska alríkislögreglan, FBI, hefur greint frá því að 79 unglingum, sem neyddir höfðu verið til að stunda vændi, hafi verið bjargað í síðustu viku frá hótelum og börum víða um Bandaríkin. Unglingarnir, 77 stúlkur og tveir drengir, voru á aldrinum 13 til 17 ára.

Iceland Express mun stundvísari en áður

„Niðurstaðan er fyrst og fremst sú að Iceland Express hefur bætt sig mjög mikið á þessu eina ári. Stundvísi Icelandair rokkar aðeins en er alla jafna góð,“ segir Kristján Sigurjónsson sem byrjaði fyrir ári síðan að taka saman upplýsingar um stundvísi íslenskra flugfélaga. Hann segir meginniðurstöður eftir árið sýna miklar breytingar á starfsháttum Iceland Express.

Gagga eftir hvolpafóðri um nætur

„Við ætlum að hafa þau hérna hjá okkur í sumar. Þau eru öll að braggast, borða vel og leika sér úti í grasinu, þó þau séu nú enn óttalega ósjálfbjarga,“ segir Andri Johnsen, annar skálavarðanna í Langadal.

Tókust í hendur á N-Írlandi

Elísabet Englandsdrottning hitti Martin McGuinness, sem er varaforsætisráðherra Norður-Írlands og var foringi í írska lýðveldishernum IRA, í gær. Þau tókust í hendur og þykja það ákveðin tímamót í samskiptum Norður-Íra við Breta.

Stonehenge-ráðgátan leyst

Stonehenge var byggt til að sameina stríðandi fylkingar. Þessu hafa enskir vísindamenn komist að eftir tíu ára rannsóknir.

Eldhætta af völdum brunavarnabúnaðar

Neyðarlínunni barst tilkynning um eld á þriðju hæð í húsi við Laugaveg í Reykjavík á þriðjudagskvöld. Slökkvilið var sent á staðinn og slökkti og reykræsti. Þar var ekki mikill eldur en töluverður reykur. Talið er að kviknað hafi í neyðarútgangsljósi í húsinu.

Yfir 900 teknir

Vikuna 11. til 17. júní voru 484 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur eftir að hafa myndast í hraðamyndavélum sem staðsettar eru víða um land, en lesið er af þeim í Stykkishólmi. Skessuhorn.is segir frá.

Spurt og svarað um Evrópumál

Fréttablaðið hefur efnt til samstarfs við Evrópuvefinn, sem rekinn er í samstarfi Alþingis og Vísindavefjar Háskóla Íslands, um að birta stuttar greinar um Evrópumál. Greinarnar eru unnar upp úr svörum sérfræðinga Evrópuvefjarins við spurningum almennings um Evrópusambandið og aðildarferli Íslands.

Bleikjan bjargaði Blöndutúr

Sjö manna holl sem var við veiðar á tveimur efstu svæðum Blöndu um síðustu helgi kom þaðan laxlaust. Bleikjan í Rugludalshyl bjargaði andliti hópsins.

Blind móðir hætti við að kjósa forseta og hélt á braut

„Kona sem ætlaði að kjósa utankjörfundar í síðustu viku og fór með dóttur sína var meinað að nota hana sem aðstoðarmann og hún gekk burt án þess að kjósa,“ segir Kristinn Halldór Einarsson, formaður stjórnar Blindrafélagsins, sem skorar á alþingismenn að breyta lögum svo þeir sem þurfi aðstoð í kjörklefum geti valið eigin aðstoðarmann en séu ekki háðir liðsinni starfsmanna kjörstjórnar.

Vill láta kanna vanvirkni samheitalyfja

Brynhildur Arthúrsdóttir, formaður Landssambands áhugafólks um flogaveiki, er ósátt við að vanvirkni samheitalyfja flogaveikilyfsins Keppra hafi ekki komist í umræðuna fyrr en nú. Hún heyrði fólk fyrst tala um málið sín á milli í kringum síðustu áramót.

Ábyrgðin hjá húsfélögunum

Nokkrir númerslausir bílar hafa staðið óhreyfðir á bílastæðaplani við Veghús í Grafarvogi. Lesandi Fréttablaðsins benti á bílana og sagði þá hafa staðið á planinu í nokkur ár.

Sjá næstu 50 fréttir