Blind móðir hætti við að kjósa forseta og hélt á braut 28. júní 2012 04:00 Enginn fær að fara með öðrum inn í kjörklefa í kosningum hér á landi nema hann sé alls ófær um að greiða atkvæði sitt sjálfur. Þá er í boði að fá aðstoð kjörstjóra sem bundinn er trúnaði. „
Kona sem ætlaði að kjósa utankjörfundar í síðustu viku og fór með dóttur sína var meinað að nota hana sem aðstoðarmann og hún gekk burt án þess að kjósa,“ segir Kristinn Halldór Einarsson, formaður stjórnar Blindrafélagsins, sem skorar á alþingismenn að breyta lögum svo þeir sem þurfi aðstoð í kjörklefum geti valið eigin aðstoðarmann en séu ekki háðir liðsinni starfsmanna kjörstjórnar. Kristinn segir langflesta blinda ekki þurfa aðstoðarmann í hefðbundnum kosningum því þeir geti nýtt sér ýmis hjálpartæki. Kosningar til stjórnlagaþings árið 2010 hafi hins vegar verið svo flóknar að allir blindir hafi þurft aðstoð. Samkomulag hafi náðst við stjórnvöld um að hver og einn mætti taka aðstoðarmann að sínu vali með sér í klefann. Hæstaréttardómur sem fallið hafi í kjölfarið hræði hins vegar innanríkisráðuneytið frá því að heimila slíkt í forsetakosningunum á laugardag. Kristinn segir þetta þrönga lagatúlkun sem Blindrafélagið sé ósammála. Kristinn kveðst ekki vita hvernig þessum hlutum sé háttað í öðrum löndum. „Okkar afstaða tekur í sjálfu sér ekkert mið af því, hún tekur mið af ákvæðum í sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks,“ segir Kristinn og ítrekar að málið lúti ekki aðeins að blindum heldur öllum sem þurfi aðstoð í kjörklefunum. Það eigi til dæmis við um hreyfihamlaða, aldraða og heilabilaða. „Það þótti kannski ekkert athugavert við þetta fyrir einhverjum árum en frá því að sáttmáli Sameinuðu þjóðanna kemur til eru viðhorf breytt. Þetta eru atriði sem varða að fólk geti lifað sjálfstæðu lífi og tekið eigin ákvarðanir,“ segir formaður Blindrafélagsins. Freyja Haraldsdóttir, sem sat í stjórnlagaráði, segir alvarlegt að neita fötluðu fólki sem þarf aðstoð í kjörklefa að velja sína eigin aðstoðarmanneskju í leynilegum kosningum. „Það er ólíðandi að innanríkisráðuneytið, sem ber meðal annars ábyrgð á þróun mannréttindamála, skuli skýla sér á bak við lagatexta sem brýtur mannréttindaákvæði,“ segir Freyja sem einnig skorar á alþingismenn að breyta lögunum svo þau verði í samræmi við sáttmála Sameinuðu þjóðanna um að ef nauðsyn krefji eigi fatlaðir að geta notið aðstoðar einstaklinga að eigin vali við að greiða atkvæði. Í svari sem Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður Sjálfstæðisflokks, sendi Freyju í gær þakkar hann henni fyrir að vekja athygli á óréttlætinu. Guðlaugur kveðst reiðbúinn að flytja tillögu um lagabreytingu á næsta þingi. „Ég er sannfærður um að margir þingmenn eru tilbúnir til að vera með á slíku máli,“ segir þingmaðurinn. gar@frettabladid.is
Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Sjá meira