Vill láta kanna vanvirkni samheitalyfja 28. júní 2012 03:45 Samheitalyfin virka ekki sem skyldi Lyfjastofnun hafa borist tólf ábendingar í ár varðandi virkni þriggja samheitalyfja flogaveikislyfsins Keppra.Fréttablaðið/Valli
Brynhildur Arthúrsdóttir, formaður Landssambands áhugafólks um flogaveiki, er ósátt við að vanvirkni samheitalyfja flogaveikilyfsins Keppra hafi ekki komist í umræðuna fyrr en nú. Hún heyrði fólk fyrst tala um málið sín á milli í kringum síðustu áramót. „Lyfjafræðingar apóteka urðu þess áskynja nokkuð fljótt að það væri eitthvað á ferðinni. En maður heyrði ekkert opinberlega fyrr en nú,“ segir hún. „Það er mín ósk að málið verði kannað. Það á ekki að æða áfram með eitthvað sem er ekki rétt, heldur eiga menn að afla upplýsinga og setja þær fram.“ Fréttablaðið greindi frá því í gær að þrjú samheitalyf við flogaveiki sem hafa verið á markaði síðustu mánuði hafi ekki nægilega virkni. Sjúklingar sem áður voru á flogaveikislyfinu Keppra og hafa ekki fengið flog svo árum skiptir eru sumir hverjir að fá lífshættuleg flog eftir að hafa skipt um lyf. Sjúkratryggingar hafa veitt læknum leyfi til að sækja um undanþágur frá samheitalyfjunum og hafa um 150 slíkar verið veittar síðan í mars. „Ég hef verið að heyra af fólki sem hrynur bara allt í einu niður og hefur ekki hugmynd um af hverju,“ segir Brynhildur. „Svo ég er auðvitað alls ekki sátt með hvað þessi útskýring kemur seint fram í umræðuna.“ Lyfjastofnun hafa borist 12 ábendingar vegna lyfjanna það sem af er ári. Um er að ræða þrjú samheitalyf Keppra við flogaveiki; Zelta, Mataver og Levetiracetam Actavis. Ekki náðist í Geir Gunnlaugsson landlækni í gær. - sv
Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fleiri fréttir Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Sjá meira