Innlent

Vélarvana hraðfiskibátur dreginn til hafnar

Björgunarsveitarmenn Landsbjargar í Neskaupstað mönnuðu í skyndi harðbotna björgunarbát og héldu út, eftir að beiðni um aðstoð barst frá yfirbyggðum hraðfiskibáti, sem varð vélarvana aðeins hálfa sjómílu út af Barðneshorni við Norðfjörð.

Óttast var að bátinn gæti rekið að landi, en taug var komið á milli bátanna. Síðan kom björgunarskip Landsbjargar frá Neskaupsstað og dró bátinn til hafnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×