Iceland Express mun stundvísari en áður 28. júní 2012 05:30 Fríið getur tekið nýja stefnu ef flugferð seinkar svo mikið að tengiflugi verður ekki náð. „
Niðurstaðan er fyrst og fremst sú að Iceland Express hefur bætt sig mjög mikið á þessu eina ári. Stundvísi Icelandair rokkar aðeins en er alla jafna góð,“ segir Kristján Sigurjónsson sem byrjaði fyrir ári síðan að taka saman upplýsingar um stundvísi íslenskra flugfélaga. Hann segir meginniðurstöður eftir árið sýna miklar breytingar á starfsháttum Iceland Express. Útreikningana birtir Kristján á heimasíðunni Turisti.is, sem fær hátt í tuttugu þúsund heimsóknir í hverjum mánuði. Kristján segir að um mikið hagsmunamál neytenda sé að ræða. „Það vita allir hversu leiðinlegt það er að dúsa úti á flugvelli í marga klukkutíma, sérstaklega ef maður á pantað tengiflug. Fólk getur tapað flugmiðanum sínum ef það kemur of seint, því margir panta miðana hvern í sínu lagi og þá ber flugfélagið sem seinkar enga ábyrgð á tengifluginu.“ Að sögn Kristjáns geta ferðalangar orðið af miklum fjármunum vegna þessa. „Þetta getur verið spurning um hundruð þúsunda fyrir fólk sem á til dæmis flug til Kaupmannahafnar og þaðan til Asíu.“ Mikil vinna fer í útreikningana, en Kristján þarf að reikna út seinkanir fyrir hvert flug fyrir sig. „Þetta er ærið verkefni og getur tekið tíu til tuttugu klukkutíma á viku. Sérstaklega á sumrin þegar flugferðirnar eru margar. Ég hef til dæmis fengið þær upplýsingar frá Keflavíkurflugvelli að þar sé jafn ítarlegum gögnum ekki safnað nema af og til, vegna þess að verkefnið er svo tímafrekt.“ Fyrr á árinu hóf Kristján einnig að gera verðkannanir. Þar reiknar hann út hvað það kostar að bóka flug með fjögurra eða tólf vikna fresti. „Samkvæmt þessum tölum er sá sem borgaði miða með tólf vikna fresti hjá Iceland Express og Wow til London, að borga meira en sá sem bókaði flug með fjögurra vikna fyrirvara.“ katrin@frettabladid.is
Mest lesið Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Innlent Fleiri fréttir „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Sjá meira