Innlent

Endurheimti stolnar tölvur

Mynd af tölvu úr gömlu safni.
Mynd af tölvu úr gömlu safni.
Farangri kanadísks ferðamanns var stolið á hóteli í miðborginni um síðustu helgi. Í farangrinum var töluvert um verðmæti, meðal annars fartölva og Ipad-spjaldtölva.

Ferðamanninum létti verulega í gærmorgun því að þá hafði lögreglunni tekist að endurheimta flesta stolnu munina, þar á meðal tölvurnar tvær.

Maðurinn sótti eigur sínar og hélt svo rakleiðis út á flugvöll, enda átti hann bókað flug vestur um haf síðdegis í gær. - sh




Fleiri fréttir

Sjá meira


×