Innlent

Ráðherrann biður fatlaða afsökunar

Ögmundur Jónasson Innanríkisráðherra boðar lagabreytingar sem koma eiga til móts við kröfur fatlaðra.
Fréttablaðið/Valli
Ögmundur Jónasson Innanríkisráðherra boðar lagabreytingar sem koma eiga til móts við kröfur fatlaðra. Fréttablaðið/Valli
Sigurður Kári Kristjánsson, þáverandi alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, lagði fram tillögu um miðjan síðasta áratug sem uppfylla átti kröfu fatlaðra um aðstoðarmann að eigin vali í kosningum. Málið fékkst ekki afgreitt frekar en þegar Sigurður ásamt öðrum lagði það fram aftur á þinginu 2010-2011, í aðdraganda kosninga til stjórnlagaþings.

„Þeir sem ábyrgð bera á því verða að útskýra fyrir sig hvers vegna það var ekki gert þá og hvers vegna ekki er búið að kippa þessu í liðinn og gera nauðsynlegar lagabreytingar fyrir þessar forsetakosningar,“ segir Sigurður Kári.

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segist hafa talið að sú tilhögun sem höfð var við kosningar til stjórnlagaþings 27. nóvember 2010 gæti haldið áfram. Þá gátu fatlaðir valið eigin aðstoðarmann sem undirritaði sérstakt heit hjá kjörstjóra.

„Þetta skýrir andvaraleysi mitt gagnvart nauðsyn lagabreytinga strax,“ segir Ögmundur. Hæstiréttur hafi hins vegar dæmt í janúar 2011 að stjórnvöld geti ekki vikið frá fyrirmælum laga um framkvæmd kosninga.

„Af þessum sökum er því miður ekki unnt að verða við kröfum um að fatlað fólk sem þarf aðstoðar við í kjörklefa fái þá aðstoð á annan hátt en skilgreint er í lögum,“ segir ráðherrann sem kveðst í haust munu flytja frumvarp um breytingar. „Af þessu tilefni vil ég biðja fatlaða einstaklinga sem telja nú á sér brotið afsökunar á því að lögunum hafi ekki þegar verið breytt en framangreint er skýring á því hvers vegna málum er háttað eins og raun ber vitni.“ - gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×