Fleiri
Mót á hverjum föstudegi í júlí 29.6.2012 04:30 Fleiri stelpur í hestaíþróttinni Þátttaka stelpna í hestaíþróttum hefur farið vaxandi. Hér á landi hafa strákar verið duglegri við að stunda íþróttina þótt kynjahlutföll skráðra meðlima í hestamannafélögum á Íslandi séu nokkuð jöfn. 29.6.2012 04:15 Forsíðumynd og flugmiðar með Wow-air í fyrstu verðlaun Útivist er þema fyrstu ljósmyndasamkeppni sumarsins sem Fréttablaðið efnir til meðal lesenda sinna. Þeir eru hvattir til að senda sem fjölbreytilegastar myndir af viðfangsefnum sem tengjast útivist með einum eða öðrum hætti. 29.6.2012 04:15 Sjá næstu 50 fréttir
Nasa ekki rifið - ASK vann miðbæjarsamkeppnina Engar byggingar verða rifnar niður við uppbyggingu á Austurvelli og á Ingólfstorgi, samkvæmt tillögu um uppbyggingi í miðborginni sem fékk fyrstu verðlaun í arkitektasamkeppni sem efnt var til. Verðlaunaafhendingin fór fram nú síðdegis. Samkvæmt tillögunni stendur ekki til að rífa veitingastaðinn Nasa en húsinu verður gjörbreytt. 29.6.2012 16:34
Fyrstu myndirnar af Cruise í tökum á Íslandi Ítarleg umfjöllun er um myndina Oblivion á vef Daily Mail í dag. Þar segir frá því að Tom Cruise hafi verið staddur á virku eldfjalli í gær við tökur á myndinni en hann mun vera staddur í nágrenni við Veiðivötn. Í fréttinni segir að Cruise virðist hafa skemmt sér gríðarlega vel við tökurnar. Hann hafi gengið um og spjallað um tökurnar við kvikmyndatökuliðið. Söguþráður myndarinnar er á þá leið að stutt er í að mannkyninu á jörðu verði útrýmt. Persóna Cruise er ein af fáum lifandi og hann verst árásum frá geimverum. 29.6.2012 13:38
Mun stinga upp á þjóðaratkvæðagreiðslu í þriðja sinn Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, mun í haust leggja til að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla um framtíðarskipan fiskveiðistjórnar Íslands. Ólína skrifar grein í Fréttablaðið í dag um málið en hún hefur tvisvar lagt fram slíka tillögu áður. Í bæði skiptin dagaði hún uppi í þinginu. 29.6.2012 19:20
Lýst eftir gulum bát Lögreglan lýsir eftir gulum hraðbát. Bátnum var stolið af bílastæði við Faxafen í Reykjavík í nótt sem leið. Báturinn er 3-4 metrar að lengd og u.þ.b. 1,5 metrar á breidd. Botninn er grámálaður að innverðu, gler dökklitað og mælaborð leðurklætt í svörtum lit. Hann var á bátavagni með bláum brettum. 29.6.2012 17:14
Fæðingarkirkjan viðurkennd Mennta-, vísinda- og menningarsamtök Sameinuðu þjóðanna gáfu út yfirlýsingu í dag og viðurkenndu Fæðingarkrikjuna í Betlehem. 29.6.2012 17:11
Árituð treyja frá Barselóna í styrktarleik UNICEF Íslendingum gefst nú tækifæri til að styrkja UNICEF og taka um leið þátt í happdrætti þar sem árituð treyja frá leikmönnum Barselóna stendur til boða. 29.6.2012 16:49
Obama talinn hæfari að verjast geimverum Samkvæmt nýrri rannsókn er Bandaríkjaforseti Obama talinn líklegri til að verjast innrás geimvera heldur en keppinautur hans Mitt Romney. 29.6.2012 16:28
Slys í reiðtúr efldi ást forsetahjónanna Hesturinn er nátengdur fyrstu kynnum okkar Dorritar, sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sem var á rómantísku nótunum þegar hann ávarpaði Landsmót hestamanna við setningu mótsins í gær. 29.6.2012 16:04
Þekktir vísindamenn fræðast um uppruna lífs á Íslandi Nokkrir af fremstu vísindamönnum veraldar á sviði stjörnulíffræði eru væntanlegir til landsins en þeir munu taka þátt í alþjóðlegum sumarskóla sem haldin er í annað sinn hér á landi. 29.6.2012 15:58
Kate Middleton sefur á götunni Kate Middleton ætlar ásamt leikkonu og aðgerðasinnanum Lisu Maxwell að verja nótt á götum London til að styðja herferðina "Sofa úti". Herferðin er til þess að vekja athygli almennings á stöðu heimilislausra. 29.6.2012 15:18
Fimm á slysadeild eftir árekstur í Hafnarfirði Fimm manns voru fluttir á slysadeild nú um þrjúleytið eftir að þriggja bíla árekstur varð á mótum Vífilsstaðavegar og Hafnarfjarðarvegur. Ekki hafa fengist upplýsingar um það hvað olli árekstrinum eða hvort fólkið er alvarlega slasað. Við segjum nánar frá þessu á Vísi síðar í dag. 29.6.2012 15:16
Hræðist skattahækkanir Nikki Haley ríkisstjóri Suður- Karólínu í Bandaríkjunum sagði í gær að niðurstaða hæstaréttar um að framfylgja nýjum lögum um heilbrigðisþjónustu landsins, býður upp á miklar skattahækkanir. 29.6.2012 14:50
Fá ekki upplýsingar frá Seðlabankanum Þórður Snær Júlíusson blaðamaður mun ekki fá afhentar upplýsingar um bókfært virði seljendaláns Seðlabanka Íslands til nýrra eigenda hins danska FIH banka um áramótin 2011 til 2012. Seðlabankinn hafði neitað því að láta blaðamanninum í té þessar upplýsingar og úrskurðarnefnd um upplýsingamál staðfesti þá synjun Seðlabankans í nýjum úrskurði. Þá vísaði úrskurðarnefnd um upplýsingamál frá kæru vegna kröfu um afhendingu afrits af kaupsamningi sem Seðlabankinn gerði um sölu FIH bankans í október 2010. 29.6.2012 14:45
Frú Helför opinberuð í Ísrael Fjórtán konur á aldrinum 74 til 97 tóku þátt í umdeildri fegurðarsamkeppni í Ísrael í gær. 29.6.2012 14:44
Meintir fíkniefnasmyglarar fyrir dóm í morgun Þrír pólverjar, sem ákærðir eru fyrir að flytja 8,6 kíló af amfetamíni, til landsins um miðjan apríl tóku sér allir frest til að lýsa yfir afstöðu til sakarefnisins þegar ákæra gegn þeim var þingfest í morgun. 29.6.2012 14:25
Flugræningjar yfirbugaðir Flugfarþegar hjálpuðu til við að afstýra tilraun flugráns yfir Xinjiang í vesturhluta Kína í dag. 29.6.2012 13:58
"Mannréttindi skulu ávallt vera æðri öllum lagareglum" Öryrkjabandalag Íslands hefur mótmælt því að mannréttindi séu brotin á fötluðu fólki við framkvæmd kosninga. 29.6.2012 13:14
Mikið mannfall í Sýrlandi Mikið mannfall var í gær þegar 190 manns voru drepnir á einum mannskæðasta degi uppreisnarinnar í Sýrlandi. 29.6.2012 13:12
A Clockwork Orange nú í söngleikjaformi Söngleikjaútgáfa skáldsögunnar A Clockwork Orange eftir Anthony Burgess var frumsýnd í Bretlandi í gær. Burgess samdi lögin sjálfur en það gerði hann fyrir rúmlega 26 árum. 29.6.2012 12:53
Ólafur undirritaði lög um veiðileyfagjöld Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, undirritaði lög um veiðigjald á útgerðarfyrirtæki á þriðjudaginn síðastliðinn. Þetta fékkst staðfest í forsætisráðuneytinu í morgun. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu bárust forsetanum nær engar áskoranir um að vísa frumvarpinu í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hin nýsamþykktu lög um veiðigjald þykja umdeild en þau eiga að skila ríkissjóði 12,8 - 13,6 milljarða króna sem útgerðarfyrirtækin þurfa greiða í endurgjald fyrir afnot af sameiginlegri fiskveiðiauðlind þjóðarinnar. 29.6.2012 12:16
Kínversku geimfararnir komnir heim Þrír kínverskir geimfarar lentu heilu og höldnu í Mongólíu í nótt eftir að hafa dvalið í 13 daga í geimnum. 29.6.2012 12:11
Gera heimildarmynd um Guðmund Felix Danska ríkissjónvarpið og RÚV hafa keypt sýningarrétt á íslenskri heimildarmynd um Guðmund Felix Grétarsson, sem er á leiðinni til Frakklands í handaágræðslu. Fleiri erlendir aðilar hafa sýnt verkefninu áhuga. 29.6.2012 12:06
Fór hágrátandi heim frá Gillzenegger Stelpan sem kærði Egil Einarsson fyrir nauðgun í haust fór hágrátandi af heimili Egils nóttina sem hún fullyrðir að hann hafi nauðgað sér. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem réttargæslumaður stúlkunnar hefur sent fjölmiðlum. 29.6.2012 11:25
Hryðjuverk á Ólympíuleikunum Tveir menn hafa verið handteknir fyrir grun um að skipuleggja hryðjuverkaárás á leikvang Ólympíuleikanna. 29.6.2012 11:21
Vita ekki hvað Hitler gerði Helmingur táninga í Þýskalandi vita ekki að Hitler var einræðisherra. 29.6.2012 10:23
Hugsanlega hætt að refsa hælisleitendum Horfið verður frá því að refsa hælisleitendum á Íslandi fyrir að framvísa fölsuðum skilríkjum, verði tillögur starfshóps innanríkisráðherra sem fjallað hefur um málefni útlendinga utan evrópska efnahagssvæðisins að veruleika. Tillögurnar voru kynntar blaðamönnum í gær. Hópurinn leggur að auki til að komið verði á laggirnar sjálfstæðri úrskurðarnefnd í málefnum hælisleitenda, sem hugsanlega nái til allra kærumála á grundvelli útlendingalaga. 29.6.2012 10:01
Eldur í sorpgeymslu Eldur kom upp í sorpgeymslu við Hótel Marínu, sem er við Slippinn í Reykjavík, um klukkan níu í morgun. Sem betur fer var eldurinn lítill og varðstjóri hjá slökkviliðinu segir að slökkvistarfið hafi einungis staðið yfir í skamma stund. Engar upplýsingar hafa fengist um skemmdir af völdum elds eða reyks. 29.6.2012 09:55
Spánverjar fá aðgang að neyðarsjóði Evrópusambandsins Spánverjar fá aðgang að neyðarsjóði Evrópusambandsins án þess að auka skuldir landsins. 29.6.2012 09:49
Obama lýsir yfir neyðarástandi í Colorado Barack Obama bandaríkjaforseti hefur lýst yfir neyðarástand í Colorado vegna mikilla skógarelda sem herjað hafa á íbúa ríkisins að undanförnu. 29.6.2012 07:55
Erill hjá björgunarsveitum Sjúkraflutningamenn og björgunarsveitarmenn komu í gærkvöldi ungum manni til hjálpar í hlíðum Esjunnar, sem hafði veikst skyndilega rétt við svonefndan Stein. Þeir báru manninn niður og fluttu hann á Landsspítalann. 29.6.2012 07:20
Um 57% styðja Ólaf Ragnar Nærri sex af hverjum tíu kjósendum ætla að kjósa Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, í forsetakosningum sem fram fara á morgun. Þetta sýna niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 sem gerð var í gærkvöldi og fyrrakvöld. 29.6.2012 07:00
Ökumaður bifhjóls mældur á 153 km hraða Ökumaður bifhjóls mældist á 153 kílómetra hraða á Ólafsfjarðarvegi í gærkvöldi. Hann missir ökuréttindi í mánuð og þarf að greiða 130 þúsund krónur í sekt. 29.6.2012 06:53
Þurftu að setja bróður ökumanns í járn Þegar Selfoss lögreglan stöðvaði ökumann í gærkvöldi í uppsveitum Árnessýslu, grunaðan um ölvunarakstur, brást bróðir hans ókvæða við, en hann var farþegi í bílnum. 29.6.2012 06:52
Eiginkonan skilin við Dominique Strauss-Kahn Anne Sinclair og Dominique Strauss-Kahn fyrrum forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eru skilin. Þau höfðu verið gift í 20 ár. 29.6.2012 06:46
Senda skriðdreka að tyrknesku landamærunum Sýrlandsstjórn hefur sent 170 skriðdreka og brynvarin hertæki að landamærunum við Tyrkland. 29.6.2012 06:40
Mikið þrumuveður og úrhelli herjar á Dani Mikið þrumuveður og úrhelli gengur nú yfir Danmörku. Í augnablikinu herjar þetta veður á íbúana á Jótlandi en talið er að veður þetta nái til Kaupmannahafnar síðdegis í dag. Hinsvegar er búist við að íbúar á Borgundarhólmi sleppi við veðrið. 29.6.2012 06:36
Fornleifafræðingar fundu elsta leirpott sögunnar Fornleifafræðingar hafa fundið það sem talið er vera brot úr elsta leirpotti í sögunni í helli í suðurhluta Kína. Leirpottur þessi er talinn vera um 20.000 ára gamall eða um 10.000 árum eldri en áður var talið að slíkir pottar voru fyrst búnir til. 29.6.2012 06:34
Marglyttur eru holl og próteinrík matvæli Marglyttur eru bæði hollar og próteinríkar og fólk ætti að borða þær eins og hverja aðra fæðu. Þetta er niðurstaða nýrrar rannsóknar í Kanada. 29.6.2012 06:29
Hróplegur munur á slætti Grasflötin á Eiðisgranda tekur stakkaskiptum við bæjarmörk Reykjavíkur og Seltjarnarness. Flötin Seltjarnarnesmegin er slegin en Reykjavíkurmegin fá njólarnir og úr sér sprottið grasið að vera í friði fyrir sláttuvélunum. 29.6.2012 05:30
Slegin óhug yfir ofbeldisverkum Ísland lýsir yfir óhug og þungum áhyggjum af stöðu mannréttindamála í Sýrlandi og hvetur til þess að mögulegum kerfisbundnum brotum, sem kunni að reynast glæpir gegn mannkyni, verði vísað til Alþjóðlega sakamáladómstólsins. 29.6.2012 05:00
Börsungar gefa áritaða treyju Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF á Íslandi, stendur fyrir happdrætti þar sem einn heppinn þátttakandi fær áritaða treyju Barcelona, knattspyrnuliðsins katalónska. Knattspyrnuliðið gaf landsnefndum UNICEF um allan heim treyjur. Aðeins ein er í boði á Íslandi. 29.6.2012 05:00
Mikilvægt framlag til mannréttinda Stefnt er að því að frumvarp að nýjum heildarlögum um málefni útlendinga verði lagt fram á Alþingi í haust. Þetta kom fram á fundi í gær þar sem skýrsla nefndar, sem fjallað hefur um málefni útlendinga utan Evrópska efnahagssvæðisins, var kynnt. 29.6.2012 04:30
Fleiri stelpur í hestaíþróttinni Þátttaka stelpna í hestaíþróttum hefur farið vaxandi. Hér á landi hafa strákar verið duglegri við að stunda íþróttina þótt kynjahlutföll skráðra meðlima í hestamannafélögum á Íslandi séu nokkuð jöfn. 29.6.2012 04:15
Forsíðumynd og flugmiðar með Wow-air í fyrstu verðlaun Útivist er þema fyrstu ljósmyndasamkeppni sumarsins sem Fréttablaðið efnir til meðal lesenda sinna. Þeir eru hvattir til að senda sem fjölbreytilegastar myndir af viðfangsefnum sem tengjast útivist með einum eða öðrum hætti. 29.6.2012 04:15