Fleiri fréttir

ÍSÍ fordæmir ofbeldisfullar busavígslur

„Við munum klárlega senda þá áskorun til okkar sérsambanda að við fordæmum alla slíka hegðun í ljósi þessarar umræðu,“ segir Líney Rut Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Íþróttasambands Íslands (ÍSÍ). „Svona á ekki að eiga sér stað.“

Fyrning hefst við 18 ára aldur

Alþingi hefur samþykkt breytingar á almennum hegningarlögum til að efla varnir gegn kynferðislegrimisnotkun barna. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra lagði fram frumvarp þess efnis.

ESB ætlar að banna allt brottkast á fiskimiðum sínum

Sjávarútvegsráðherrar Evrópusambandsins hafa komist að samkomulagi um nýjar og hertar reglur sem eiga að koma í veg fyrir brottkast á fiski á miðum sambandsins. Bannað verður með öllu að kasta fiski frá borði og þung viðurlög verða sett við slíku.

Tæplega 130 handteknir eftir fótboltaslagsmál í Varsjá

Alls voru tæplega 130 manns handteknir á götum Varsjár í gærkvöldi og 11 liggja slasaðir á sjúkrahúsi eftir mikil slagsmál milli stuðningsmanna pólsku og rússnesku landsliðanna á Evrópumótinu í fótbolta.

Kosið um Vaðlaheiðargöng í dag

Greidd verða atkvæði í dag um hvort fjármálaráðherra fái heimild til að ábyrgjast 8,7 milljarða króna lán vegna Vaðlaheiðarganga. Umræðum um málið lauk í gær, en andstaða við það er í öllum flokkum.

Ísland er friðsælasta ríki heimsins

Ísland er sem fyrr friðsælasta ríki heimsins. Raunar var heimurinn friðsælli í fyrra en hann var árið áður þrátt fyrir átökin í Sýrlandi.

Kona hætt komin er bíll hennar valt á hvolf ofan í Fnjóská

Kona á fimmtugsaldri, sem var ein i bíl sínum, var hætt komin þegar hún missti bíl sinn út af þjóðveginum við Dalsmynni í Fnjóskadal, austan við Akureyri upp úr klukkan eitt í nótt, og bíllinn valt á hvolf ofan í Fnjóská.

Umræðu lokið um göng en afdrif óljós

Alþingi hefur lokið umræðu um fjármögnun Vaðlaheiðarganga og atkvæðagreiðslan ein er eftir. Óljóst er um stuðning og gengur málið þvert á alla flokka. Tekist er á um hvort taka eigi framkvæmdina fram yfir samgönguáætlun.

Banaslysum barna hefur snarfækkað

Ísland fær næstbestu einkunn í rannsókn á slysavörnum barna í Evrópu. Finnland skorar hæst. Umferðarslys er helsta ástæða dauðsfalla vegna slysa ungmenna á Íslandi. Banaslysum barna hefur fækkað um 65 prósent síðan 1991.

Aldrei meira fuglalíf í Vatnsmýri

Gróðurhús sem stendur fyrir utan Norræna húsið var formlega opnað á dögunum. Úr húsinu er gott útsýni yfir Vatnsmýrina en þaðan gefst fólki kostur á að skoða fuglalífið í mýrinni.

Rándýrum gítar stolið úr bíl

Brotist var inn í bíl við Stórholt í Reykjavík á tólfta tímanum í gærkvöldi og úr honum stolið forláta kassagítar, sem metinn er á 850 þúsund krónur.

Stór rotta réðist á farþega í lest í New York

Rannsókn er hafin á umfangi meindýra sem hrjá farþega sem ferðast með járnbrautakerfi New York borgar. Rannsóknin var ákveðin eftir að stór rotta réðist nýlega á fertuga konu sem var farþegi í einni lestinni.

Tvíhleypt vélbyssa stjarnan á vopnasýningu

Vopnaverksmiðja í Ísrael hefur hannað og smíðað nýja tegund af vélbyssu sem er með tvöfalt hlaup og þar af leiðandi tvöfaldan skotkraft á við aðrar vélbyssur.

Útblástur díselvéla veldur krabbameini

Ný rannsókn á vegum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar sýnir að enginn vafi leikur á því að útblástur díselvéla veldur krabbameini. Aðallega er um krabbamein í lungum að ræða og sennilega einnig í þvagblöðru.

Ferðamenn í kröppum dansi í Skyndidalsá

Tveir belgískir ferðamenn komust í hann krappann þegar þeir festu lítinn jeppling sinn í Skyndidalsá á leið sinni eftir lokuðum vegi inn á Lónsöræfi seint í gærkvöldi.

Fordæma árásir á fólk í Sýrlandi

Forsætisráðherrar Norðurlandanna fordæma árásir á óbreytta borgara í Sýrlandi. Þetta var samþykkt á fundi þeirra í Norður-Noregi.

Tugþúsundir mótmæltu Pútín

Tugir þúsunda mótmælenda komu saman í Moskvu í gær til að mótmæla Vladimír Pútín Rússlandsforseta. Daginn áður hafði lögreglan gert húsleit hjá tíu leiðtogum stjórnarandstöðunnar og þeim var gert að mæta til yfirheyrslu á sama tíma og mótmælin í gær voru áformuð.

Komið í veg fyrir einkarétt Kína

Grænlenska landsstjórnin mun ásamt Evrópusambandinu, ESB, undirrita í Nuuk í dag yfirlýsingu sem á að tryggja að Kínverjar fái ekki einkarétt á sölu fjölda mikilvægra bergtegunda í landgrunni Grænlands, heldur verði þær boðnar út á frjálsum markaði.

"Fólk bregst ekki við fyrr en það sér lík“

Gríðarleg hungursneyð vofir yfir Vestur-Afríku, en þar hafa rigningar brugðist, miklir þurrkar herjað á íbúa og ítrekaður uppskerubrestur fylgt í kjölfarið. Héðinn Halldórsson er á svæðinu og segir viðbrögð við ástandinu langt frá því að vera nógu hröð.

Borgarastyrjöld sögð skollin á í Sýrlandi

Sameinuðu þjóðirnar segja ástandið í Sýrlandi nú þannig að þar sé hafin borgarastyrjöld. Ráðist var á bílalest eftirlitsmanna SÞ við bæinn al-Haffa í gær. Hermenn Assads sagðir bera fyrir sig börn og sagðir hafa pyntað þau og myrt.

Engin niðurstaða um þinglok

Ekki hefur tekist að ná samkomulagi um þinglok en formenn allra stjórnmálaflokkanna funduðu með Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttir, forseta Alþingis, í kvöld. Þetta kom fram í tíu fréttum sjónvarpsins. Þingfundur stendur enn yfir en Ásta Ragnheiður fundar nú með þingflokksformönnum. Ekki er komin niðurstaða eftir þann fund.

Misstu bílinn ofan í sprungu

Tveir erlendir ferðamenn misstu framenda á jeppa, sem þeir voru á, ofan í litla snjósprungu við Hrafntinnusker í kvöld. Björgunarsveitarmenn frá Hellu eru nú á leið til þeirra og aðstoða þá. Ekkert amar að mönnunum en þeir náðu sambandi við Neyðarlínu og óskuðu eftir aðstoð björgunarsveitar. Ef allt gengur að óskum má reikna með að hópurinn verði komin aftur til byggða undir morgun, milli fjögur og fimm.

Vörður nær í vélarvana bát

Vörður, björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Patreksfirði er nú á leið að sækja bát sem er vélarvana. Um er að ræða handfærabát sem er um 17 sjómílur utan við mynni Patreksfjarðar. Báturinn er á reki en spegilsléttur sjór er og því engin hætta á ferðum. Reiknað er með að Vörður komið að bátnum núna á ellefta tímanum. Hann mun taka handfærabátinn í tog og ef allt gengur að óskum munu þeir koma í höfn fyrri hluta nætur.

Ármann með 1,5 milljón á mánuði - launin bara hækkað um 4,4%

Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi, segir að heildalaun bæjarstjóra hafi hækkað um 4,4 prósent frá 1. febrúar árið 2009. Týr, félag ungra sjálfstæðismanna í Kópavogi, gagnrýndu Ármann í dag fyrir þau ummæli sín að 23 prósent hækkun á eigin launum og launum bæjarfulltrúa sé ekki launa hækkun heldur leiðrétting.

Stefna á engin banaslys eftir 2020

Sænski bílaframleiðandinn Volvo hefur það á stefnuskrá sinni að frá árinu 2020 muni enginn láta lífið í nýjum Volvobílum né slasast alvarlega.

Magnaður flugtúr

Það eru ekki bara golfarar og grillsnillingar sem gleðjast þegar sólin hækkar á lofti. Því sumarið er líka tíminn sem flugáhugamenn draga út græjur sínar og fara út að leika. Sigríður Elva í Íslandi í dag hitti Sigurð Ásgeirsson flugmann og fylgdist með mögnuðum flugtúr.

Þrjátíu keyrðu ofhratt á Reykjanesbrautinni í dag

Þrjátíu ökumenn voru teknir fyrir ofhraðan akstur á Reykjanesbrautinni í dag, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu, en þar er 90 kílómetra hámarkshraði. Á Facebook-síðu lögreglunnar segir: "Vonandi þurfum við ekki að hitta svona marga fyrir þessar sakir aftur.“

Gæti leitt til fækkunar ferðamanna

Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, óttast að vandi evruríkjanna muni leiða til fækkunar ferðamanna hér á landi og versnandi viðskiptakjara fyrir íslensk fyrirtæki.

Tvö kísilver og tvær virkjanir í pípunum í Þingeyjarsýslum

Fyrirtækið Thorsil áformar þrjátíu milljarða króna uppbyggingu kísilvers á Bakka og stefnir nú í að tvær slíkar verksmiðjur taki samtímis til starfa við Húsavík eftir þrjú ár. Thorsil ætlaði upphaflega reisa verksmiðjuna í Þorlákshöfn og kaupa rafmagn af Orkuveitu Reykjavíkur og var samningsrammi undirritaður um verkefnið fyrir tveimur árum.

Rofar til í vatnsmálum í Reykholti

Gengið hefur verið frá öllum nauðsynlegum leyfum frá einkaaðilum vegna lagningar nýrrar vatnsveitu í Reykholtsdal. Gott vatnsból hefur fundist og áætlað að er að ljúka framkvæmdum næsta sumar.

Maggi kjúklingasúpa með núðlum innkölluð

Ölgerðin hefur í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, ákveðið að innkalla Maggi kjúklingasúpur með núðlum ( 3 súpur í pakka) strikanúmer 2761010030019 sem seld er í Bónus, þar sem ofnæmis- og óþolsvaldar eru ekki nægjanlega vel merktir.

Ungir sjálfstæðismenn gagnrýna ummæli Ármanns

Týr, félag ungra sjálfstæðismanna í Kópavogi, gagnrýnir Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóra og oddvita sjálfstæðismanna í Kópavogi, fyrir þau ummæli sín að 23% hækkun á eigin launum og launum bæjarfulltrúa sé ekki launahækkun heldur leiðrétting.

Snjallsímaforrit getur bjargað lífi

Nýtt snjallsímaforrit sem gerir fólki kleyft að hafa samband við Neyðarlínuna getur bjargað mannslífum. Þetta segir Tómas Gíslason, aðstoðarframkvæmdastjóri Neyðarlínunnar. Með forritinu geta ferðalangar látið vita um nákvæma staðsetningu sína með því að smella á einn hnapp og þá er sambandi náð við Neyðarlínuna. Með GPS hnitum er hægt að staðsetja snjallsímann með 2 metra skekkju.

Atvinnuleysið á Íslandi lægra en í flestum evruríkjum

Skráð atvinnuleysi í maí var 5,6% og lækkar um 0,9 prósentustig á milli mánaða, samkvæmt nýjum tölum Vinnumálastofnunar. Spá stofnunarinnar fyrir júní er að atvinnuleysi fari undir 5% og verði á bilinu 4,6-5%. Atvinnuleysi á Íslandi er orðið með því lægsta í Evrópu, en meðalatvinnuleysi í evruríkjunum er um 11%. Atvinnuleysi í Bandaríkjunum er um 8%. Runólfur Ágústsson, stjórnarformaður Vinnumálastofnunar, segir að stærstan þátt í þessari lækkun eigi verkefnið vinnandi vegur, sameiginlegt átaksverkefni stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins um sköpun starfa. Einnig spili árstíðabundin sveifla þarna inn.

Efling: Klárt brot á finnsku stelpunni eins og hún lýsir því

"Eins og þessu er lýst þá er þetta klárt brot,“ segir Harpa Ólafsdóttir, forstöðumaður kjaramálasviðs Eflingar um málefni finnsku stúlkunnar Maiju. Hún réði sig á bóndabæ í gegnum Nordjobb sem herbergisþerna í ferðaþjónustuhlutann á bænum. Samkvæmt samningi átti hún að vinna á átta tíma vöktum og eiga tvo frídaga í viku.

Minnast 22. júlí í Vatnsmýrinni

Grunnur verður lagður að minningarlundi um fjöldamorðin í Ósló og Útey við Norræna húsið á morgun. Í kjölfar gróðursetningar trjáa í lundinum verður haldið í Norræna húsið þar sem norsku feðginin Siri og Erik Sönstelie kynna bók sína „Ég er á lífi, pabbi", sem fjallar um voðaverkin. Þau ræða síðan við Boga Ágústsson, formann Norræna félagsins í Reykjavík.

Hófu sumarvinnu í sól og blíðu

Um eitt þúsund ungmenni úr 9. og 10. bekkjum grunnskóla hófu sumarvinnu sína hjá Vinnuskólanum í gær og má með sanni segja að veðrið hafi leikið við þau.

Embættismenn pissi sitjandi

Vinstri flokkurinn í Sörmland í Svíþjóð leggur til að karlkyns embættismenn verði skyldaðir til að sitja þegar þeir kasta af sér vatni á salernum lénsþingsins.

Sjá næstu 50 fréttir