Efling: Klárt brot á finnsku stelpunni eins og hún lýsir því VG skrifar 12. júní 2012 13:42 Stúlkunni var gert að vinna lengur en var samið um auk þess sem yfirmaðurinn vildi ráða því hvenær hún fengi frí. „
Eins og þessu er lýst þá er þetta klárt brot," segir Harpa Ólafsdóttir, forstöðumaður kjaramálasviðs Eflingar um málefni finnsku stúlkunnar Maiju. Hún réði sig á bóndabæ í gegnum Nordjobb sem herbergisþerna í ferðaþjónustuhluta bæjarins en félagsmenn Eflingar starfa meðal annars sem herbergisþernur. Samkvæmt samningi átti Maija að vinna átta tíma vaktir og eiga tvo frídaga í viku. Í rauninni þurfti hún að vinna 12 tíma vaktir án þess að fá borgaða yfirvinnu og bóndinn tjáði henni að hann myndi sjálfur ákveða hvenær hún fengi að taka út frídagana. Þetta segir Harpa ekki standast skoðun. Hún segir það til að mynda ekki boðlegt að yfirmaður ákveði eftir eigin geðþótta hvenær starfsmaður taki sér frí. Harpa segir að mikið af erlendum ungmennum leiti til stéttarfélagsins á sumrin vegna viðskipta þeirra við vinnuveitendur sem reyni að hagnýta sér vinnuafl þeirra með ólögmætum hætti. Hún segir vandamálin af öllum toga og í raun leiti íslensk ungmenni líka mikið til þeirra á sumrin af sömu ástæðum. Hún segir Eflingu hafa áhyggjur af þessu, þá ekki síst vegna viðkvæmra stöðu útlendra ungmenna sem kunna ekki tungumálið og hafa ekkert félagslegt net í kringum sig hér á landi. Verkefnastjóri Nordjobb á Íslandi, Stefán Vilbergsson, sagði í samtali við Vísi í morgun að málið horfði ekki við honum sem „sá skandall sem það virðist vera í þessari frétt" eins og hann orðaði það sjálfur. Þannig sagði Stefán að samkvæmt sínum upplýsingum hefði vinnuveitandinn ekki verið nógu skýr um það hvernig ástandið var á þessum tíma á sveitabænum, í byrjun sumars. Hann hafi ekki komið nógu hreint fram um það. „Það er skiljanlegt að það kraumi óánægja þegar svo verður. En við sjáum ekki annað en að það hafi verið tímabundið," sagði Stefán og bætti við að starfsemin hefði bara verið nýhafin, og þá finnist sér skiljanlegt að það séu aðeins lengri vaktir. „Með betri samskiptum hefði þetta ekki verið neitt mál," ítrekaði Stefán svo. Maija hafnaði þessum skýringum alfarið þegar haft var samband við hana á ný. Þannig sagði hún að það hefði síður en svo verið fullbókað í ferðaþjónustunni þegar hún hóf vinnu þar í vor. „Samt var ég látin vinna tólf tíma en ekki átta tíma eins og ráðningarsamningur minn kvað á um," sagði Maija. „Ég sá því fram á svipað vinnulag þegar yrði fullbókað á bænum og því ákvað ég að hætta strax." Maija segir að það hafi einnig ráðið miklu um að hún hætti að önnur erlend starfsstúlka á staðnum hafði svipaða sögu að segja af samskiptum sínum við bóndann, það er að vinna yfirvinnu án þess að fá borgað fyrir það.
Tengdar fréttir Maija segir engan misskilning í samskiptunum við bóndann Finnska stúlkan Maija segir að enginn misskilningur hafi verið í gangi í samskiptum sínum við bóndann sem hún hætti að starfa fyrir eftir vikudvöl sem herbergisþerna í ferðaþjónustu hans. Þar að auki hafi allt traust hennar til bóndans verið horfið þegar hún fór af staðnum. 12. júní 2012 11:03 Finnsk stúlka hafnaði þrælahaldi á íslenskum bóndabæ Finnsk stúlka sem réði sig á bóndabæ þar sem ferðaþjónusta er í boði hér sunnanlands segir farir sínar ekki sléttar í samskiptum við bóndann. 12. júní 2012 07:11 Samskiptaleysi olli því að finnska stúlkan flúði vinnuna Mál Maiju, finnsku stúlkunnar sem fór ósátt frá starfi á bóndabæ á Íslandi, skýrist fyrst og fremst af samskiptaleysi, segir Stefán Vilbergsson, verkefnastjóri Nordjobb á Íslandi. Vísir sagði frá málinu í morgun. "Mér finnst óeðlilegt að það hafi ekki verð haft samband við okkur við vinnslu fréttarinnar vegna þess að þetta horfir ekki við okkur 12. júní 2012 10:18 Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Fleiri fréttir „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Sjá meira
Maija segir engan misskilning í samskiptunum við bóndann Finnska stúlkan Maija segir að enginn misskilningur hafi verið í gangi í samskiptum sínum við bóndann sem hún hætti að starfa fyrir eftir vikudvöl sem herbergisþerna í ferðaþjónustu hans. Þar að auki hafi allt traust hennar til bóndans verið horfið þegar hún fór af staðnum. 12. júní 2012 11:03
Finnsk stúlka hafnaði þrælahaldi á íslenskum bóndabæ Finnsk stúlka sem réði sig á bóndabæ þar sem ferðaþjónusta er í boði hér sunnanlands segir farir sínar ekki sléttar í samskiptum við bóndann. 12. júní 2012 07:11
Samskiptaleysi olli því að finnska stúlkan flúði vinnuna Mál Maiju, finnsku stúlkunnar sem fór ósátt frá starfi á bóndabæ á Íslandi, skýrist fyrst og fremst af samskiptaleysi, segir Stefán Vilbergsson, verkefnastjóri Nordjobb á Íslandi. Vísir sagði frá málinu í morgun. "Mér finnst óeðlilegt að það hafi ekki verð haft samband við okkur við vinnslu fréttarinnar vegna þess að þetta horfir ekki við okkur 12. júní 2012 10:18