Innlent

Milljónamæringurinn enn ófundinn - stundum þurfa þeir að ná áttum

Enn bólar ekkert á nýbökuðum milljónamæringi en samkvæmt Stefáni Konráðsson hjá íslenskri getspá hefur eigandi sigurmiðans í Lotto ekki gefið sig fram.
Enn bólar ekkert á nýbökuðum milljónamæringi en samkvæmt Stefáni Konráðsson hjá íslenskri getspá hefur eigandi sigurmiðans í Lotto ekki gefið sig fram.
Enn bólar ekkert á nýbökuðum milljónamæringi en samkvæmt Stefáni Konráðsson hjá íslenskri getspá hefur eigandi sigurmiðans í Lotto ekki gefið sig fram. Eins og margir vita þá rann vinningurinn út um helgina, en þá var potturinn orðinn sjöfaldur.

„Þeir láta nú yfirleitt vita af sér á fyrstu dögum, en stundum þarf fólk að ná smá áttum," sagði Stefán sem lýsir hér með eftir milljónamæringnum sem vann rúmar 73 milljónir. Vinningsmiðinn var keyptur í Leirunesti við Leiruveg á Akureyri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×