Innlent

ÍSÍ fordæmir ofbeldisfullar busavígslur

Umfjöllun um ofbeldisfullar busavígslur innan íþróttahreyfinga kom framkvæmdastjóra ÍSÍ verulega á óvart.
Umfjöllun um ofbeldisfullar busavígslur innan íþróttahreyfinga kom framkvæmdastjóra ÍSÍ verulega á óvart. Fréttablaðið/Gva
„Við munum klárlega senda þá áskorun til okkar sérsambanda að við fordæmum alla slíka hegðun í ljósi þessarar umræðu,“ segir Líney Rut Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Íþróttasambands Íslands (ÍSÍ). „Svona á ekki að eiga sér stað.“

Ómar Ragnarsson greindi frá því á bloggsíðu sinni um helgina að busanir nýliða innan íþróttahreyfinga landsins verði oft svo ofbeldisfullar að mennirnir sem fyrir þeim verða geti vart setið eða gengið á eftir, meðal annars eftir að hafa verið hýddir í sturtu. Líney segir fregnirnar hafa komið sér í opna skjöldu og lét sviðsstjóra innan sambandsins, Viðar Sigurjónsson, því kanna málið. Viðar hafði samband við sérsambönd ÍSÍ og segist ekkert hafa heyrt sem rími við frásögn Ómars.

„Ég hef talað við forystumenn sambandanna og þeir kannast ekki við þessi mál með þeim hætti sem Ómar lýsir,“ segir hann. „En það breytir því ekki að við hjá forystusveit hreyfingarinnar tökum allt svona alvarlega. Við munum senda út ábendingar til okkar sambandsaðila um að skoða þessi mál innan sinna raða til að vera viss um að svona tíðkist ekki.“

Viðar segir sömu þróun hafa orðið innan íþróttahreyfinga varðandi nýliðavígslur og hjá framhaldsskólum. Nýliðar í landsliðum séu nú til dags látnir flytja ræður, syngja lög eða bera töskur. Ofbeldi eins og hýðingar tíðkist ekki.

„Val á hugtökum í bloggi Ómars á ekkert skylt við það sem á sér stað innan hreyfingarinnar,“ segir Viðar. - sv




Fleiri fréttir

Sjá meira


×