Innlent

Snjallsímaforrit getur bjargað lífi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Nýja snjallsímaforritið var kynnt í morgun.
Nýja snjallsímaforritið var kynnt í morgun. mynd/ sigurjón.
Nýtt snjallsímaforrit sem gerir fólki kleyft að hafa samband við Neyðarlínuna getur bjargað mannslífum. Þetta segir Tómas Gíslason, aðstoðarframkvæmdastjóri Neyðarlínunnar. Með forritinu geta ferðalangar látið vita um nákvæma staðsetningu sína með því að smella á einn hnapp og þá er sambandi náð við Neyðarlínuna. Með GPS hnitum er hægt að staðsetja snjallsímann með 2 metra skekkju.

„Þetta getur klárlega bjargað mannslífum," segir Tómas í samtali við Vísi. Honum er minnisstætt slys sem varð á Sólheimajökli. Þar náði viðkomandi aðili sambandi við Neyðarlínu og komð þeim skilaboðum skýrt áleiðis að eitthvað amaði þar að. Það var hins vegar ekki hægt að staðsetja viðkomandi. Tómas segist ekki geta fullyrt með vissu að þetta nýja forrit hefði dugað til að bjarga mannslífi í umræddu tilfelli. Hins vegar sé mjög auðvelt að hugsa sér aðstæður þar sem það gæti gerst.

Frá og með þriðjudegi í síðustu viku var hægt að hala niður forritinu, en hins vegar var það kynnt formlega í morgun í fyrsta skipti. Tómas segir að á þessu vikutímabili hafi 400 manns halað niður forritinu.

Hægt er að finna 112 snjallsímaforritið á vefnum www.safetravel.is, í gegnum iPhone App Store eða á Play Store hjá Google fyrir þá sem eru með Android síma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×