Innlent

Minnast 22. júlí í Vatnsmýrinni

Grunnur verður lagður að minningarlundi um fjöldamorðin í Ósló og Útey við Norræna húsið á morgun.

Í kjölfar gróðursetningar trjáa í lundinum verður haldið í Norræna húsið þar sem norsku feðginin Siri og Erik Sönstelie kynna bók sína „Ég er á lífi, pabbi", sem fjallar um voðaverkin. Þau ræða síðan við Boga Ágústsson, formann Norræna félagsins í Reykjavík.

Að lokum verður gestum boðið upp á léttar veitingar. Athöfnin stendur frá klukkan 17 til 19. -sv




Fleiri fréttir

Sjá meira


×