Innlent

Maggi kjúklingasúpa með núðlum innkölluð

Ölgerðin hefur í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, ákveðið að innkalla Maggi kjúklingasúpur með núðlum ( 3 súpur í pakka) strikanúmer 2761010030019 sem seld er í Bónus, þar sem ofnæmis- og óþolsvaldar eru ekki nægjanlega vel merktir.

Merkingum á ytri umbúðum vörunnar og innri ber ekki saman en ekki kemur fram á ytri umbúðum að varan innihaldi mjólk.

Dreifing á vörunni sem eingöngu er seld í Bónus hefur verið stöðvuð uns umbúðir hafa verið endurmerktar. Þeir neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að farga henni eða skila til innflytjanda, Ölgerðarinnar á Grjóthálsi 7-11, 110 Reykjavík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×