Innlent

Ferðamenn í kröppum dansi í Skyndidalsá

Tveir belgískir ferðamenn komust í hann krappann þegar þeir festu lítinn jeppling sinn í Skyndidalsá á leið sinni eftir lokuðum vegi inn á Lónsöræfi seint í gærkvöldi.

Þeir komust út um glugga bílsins og upp á þak, og hringdu eftir hjálp. Björgunarsveitarmenn frá Höfn í Hornafirði héldu þegar til hjálpar, náðu mönnunum af þaki bílsins og drógu bílinn upp. Mennina sakaði ekki.

Skyndidalsá er jökulsá, en þær eru jafnan vatnsmestar og þar með hættulegastar á kvöldin eftir sólbráð dagsins.

Björgunarsveitarmenn frá Hellu þurftu líka að aðstoða innlendan- og erlendan ferðamann, sem höfðu fest bíl sinn við Hrafntinnusker seint í gærkvöldi. Bíllinn var óökufær og þurfti að draga hann til byggða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×