Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Eigandi Monte Carlo ætlar að stefna borginni og lögreglunni Margeir Margeirsson, eigandi veitingastaðanna Mónako og Monte Carlo á Laugavegi, ætlar að höfða skaðabótamál gegn lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og Reykjavík vegna þeirrar ákvörðunar að synja stöðunum um veitingaleyfi. Ákvörðunin var tekin á grundvelli neikvæðrar umsagnar borgarráðs, en innanríkisráðuneytið hefur úrskurðað að með umsögninni hafi borgarráð farið út fyrir umsagnarsvið sitt og með því brotið gegn stjórnsýslulögum. Margeir segist í fréttastofu hafa varið um 10 milljónum króna í lögfræðikostnað vegna málsins. 18.6.2012 17:00
Hundruð bifreiða á ferðinni með ferðamenn Ferðaskrifstofan Atlantik er með 105 rútur og 25 jeppa á ferðinni í dag til að hafa ofan af fyrir þeim þúsundum útlendinga sem komu til landsins í dag. "Ég er ekki með nákvæmar tölur en mér skilst að það séu um 8000 manns sem við erum að þjónusta í dag," segir Erla Gísladóttir, fjármálastjóri fyrirtækisins. 18.6.2012 14:13
Nýtt hjúkrunarheimili á Egilstöðum valið Tillaga Hornsteina arkitekta ehf/Eflu var valin besta tillagan um nýtt hjúkrunarheimili á Egilstöðum, en dómnefndarálit var birt í dag. Efnt var til samkeppni um hönnun að byggingu nýs heimilisins. 18.6.2012 13:37
Ók ölvaður á torfæruhjóli Karlmaður á fertugsaldri ók torfæruhjóli á 122 kílómetra hraða á Sandgerðisvegi í gær, þar sem leyfilegur hámarkshraði er 90 kílómetrar á klukkustund. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum bar maðurinn einkenni ölvunar og var því handtekinn og færður á lögreglustöð. Þar var hann sviptur ökuréttindum. Tíu ökumenn til viðbótar reyndust aka yfir leyfilegum hámarkshraða við umferðareftirlit lögreglunnar um helgina. 18.6.2012 13:33
Viðræður við Svía og Finna verði innblástur Skrifstofustjóri landbúnaðarmála hjá ESB segir sérstöðu Íslands liggja á mörgum sviðum. Margar hliðstæður séu við aðstæður sem Svíar og Finnar fengu sérlausnir út á á sínum tíma. Erfitt að segja hvenær landbúnaðarviðræður hefjast. 18.6.2012 13:00
Segja PIP-púðana ekki krabbameinsvaldandi PIP sílikonfyllingarnar innhalda hvorki eiturefni né eru krabbameinsvaldandi. Þetta kemur fram í skýrslu sem bresk heilbrigðisyfirvöld hafa birt. 18.6.2012 12:51
Enn reynt að ljúka þingstörfum Við upphaf þingfundar í morgun sagði forseti Alþingis líta svo á að dagurinn í dag sé aukadagur til þess að reyna að ljúka þingstörfum. Þó þurfi að meta dagskrána í framhaldinu. Enn er þó óljóst hvenær þinginu lýkur enda hefur engin sátt fengist í sjávarútvegsmálin. 18.6.2012 12:45
Kröfur um hafsbotn fyrir Grænland skarast við kröfur Íslands Danmörk, sem fer með utanríkismál Grænlands, hefur skilað greinargerð um kröfur sínar vegna ytri marka hafsbotns Grænlands utan 200 sjómílna fyrir landsgrunnsnefnd Sameinuðu þjóðanna. Kröfurnar skarast við kröfur Íslands og Kanada. 18.6.2012 12:00
Tæplega sextíu innflytjendur í gæsluvarðhald á tíu árum Fimmtíu og átta einstaklingar hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald á grundvelli 29. greinar útlendingalaga á undanförnum tíu árum. Þetta kemur fram í svari Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra við fyrirspurn Birgittu Jónsdóttur, þingmanns Hreyfingarinnar. 18.6.2012 11:58
Dæmdir fyrir líkamsárás á Selfossi Þrír menn voru dæmdir fyrir líkamsárás í Héraðsdómi Suðurlands í dag. Tveir þeirra fengu 30 daga skilorðsbundið fangelsi en einn 45 daga. 18.6.2012 11:55
Tæpir 1500 manns búnir að kjósa í Reykjavík Nú hafa 1427 manns greitt atkvæði utan kjörfundar í Reykjavík vegna forsetakosninganna. Á landinu öllu hafa 3093 greitt atkvæði. 18.6.2012 11:23
Offitusjúklingar stefna fæðuöryggi í hættu Hætta er á að öll heimsbyggðin líði matarskort ef vandi offitusjúklinga er ekki leystur. Frá þessu greinir Sky fréttastofan í dag og vísar í nýja rannsókn máli sínu til stuðnings. Rannsakendur fullyrða að umfram matarneysla þeirra sem teljast of feitir jafnist á við það að einn milljarður manna bættist við mannkyn. Rannsakendurnir, sem starfa við London School of Hygiene and Tropical Medicine segja að fæðuþörf mannkyns sé ekki einungis háð fjölda heldur einnig heildarþyngd mannkynsins. Þess vegna sé mikilvægt að halda þyngd fólks í skefjum. 18.6.2012 11:16
Hundrað lítrar af kjötsúpu á Þjórshátíð Þjórshátíð var haldin í mynni Þjórsárdals í Gnúpverjahreppi á laugardaginn. Alls komu um 300-400 manns á svæðið, hlustuðu á tónlist, gæddu sér á íslenskri kjötsúpu og nutu þess að vera úti í sveit. 18.6.2012 10:06
Ný tækni eykur lyfjaöryggi Íslenskt fyrirtæki hefur þróað lyfjaskanna sem ber kennsl á lyf. Getur komið í veg fyrir nær öll mistök við skömmtun, pökkun og lyfjagjöf. Mikill áhugi er á skannanum erlendis. Framleiðslan verður á Íslandi. 18.6.2012 10:00
Dómur gegn Vítisenglum kveðinn upp á miðvikudag Búist er við því að dómur í máli Vítisengla sem grunaðir eru um alvarlega líkamsárás gegn konu í desember síðastliðnum verði kveðinn upp á miðvikudaginn. Gæsluvarðhald yfir þeim rennur út í dag og má búast við því að það verði því lagðar fram nýjar kröfur. Mennirnir eru grunaðir um alvarleg kynferðisbrot gegn konunni og að hafa veitt henni alvarlega líkamlega áverka. Þeir eiga yfir höfði sér allt að sextán ára fangelsisdóm. 18.6.2012 09:44
Feðgin hætt komin þegar gúmmíbát hvolfdi Karlmaður og dóttir hans voru hætt komin þegar litlum gúmmíbáti þeirra hvolfdi við Borgareyjar skammt frá Borgarensi í gærkvöldi. Björgunarsveitir og þyrla Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út. 18.6.2012 06:40
Sósíalistar unnu stórsigur í Frakklandi Sósíalistaflokkurinn vann stórsigur í seinni umferð þingkosninganna í Frakklandi í gærdag. Flokkurinn náði hreinum meirihluta þingsæta eða 314 af 577 sætum. Þetta þýðir að flokkurinn þarf ekki að reiða sig lengur á stuðning Græningja. 18.6.2012 06:32
Fagna niðurstöðunni í grísku þingkosningunum Leiðtogar á Vesturlöndunum og fulltrúar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hafa fagnað niðurstöðunni í grísku þingkosningunum. Markaðir í Asíu voru í uppsveiflu í nótt í framhaldi af úrslitunum. 18.6.2012 06:30
Margir misstu af hátíðadagskrá Hnökrar urðu á hátíðadagskránni á Austurvelli í gærmorgun og hófust dagskrárliðir mun fyrr en auglýst hafði verið. Er þar um að kenna að guðsþjónustu í Dómkirkjunni lauk fyrr en áætlað var. 18.6.2012 09:00
Leyft að selja afurðir kannabisplöntu Lyfjastofnun hefur ákveðið að endurskoða ákvörðun sína um að synja umsókn um undanþágu fyrir innflutningi á hampfræjum og hamppróteindufti. 18.6.2012 08:00
Risadagur í ferðaþjónustu reynir á þolmörk landsins Fimmtán til tuttugu þúsund ferðamenn koma til landsins með fjórum skemmtiferðaskipum og 40 farþegaþotum á næstu klukkutímum. Gjaldeyristekjur af dagdvöl skemmtiferðaskipa skiptir milljörðum í sumar. 18.6.2012 08:00
Hleypi almennum borgurum út Yfirmaður eftirlitssveita Sameinuðu þjóðanna í Sýrlandi krafðist þess í gær að stríðandi fylkingar leyfðu „konum, börnum, öldruðum og veikum“ að yfirgefa borgina Homs og önnur átakasvæði. Degi fyrr hafði hann tilkynnt að eftirlitsmennirnir hefðu hætt störfum vegna vaxandi ofbeldis í landinu. 18.6.2012 07:30
Ökumaður undir áhrifum missti stjórn á bíl sínum Ökumaður, sem var undir áhrifum áfengis eða fíkniefna missti stjórn á bíl sínum á gatnamótum Grensásvegar og Miklubrautar á öðrum tímanum í nótt. 18.6.2012 07:00
Hátíðahöld í Reykjavík Fjölmenni sótti hátíðahöld í miðbæ Reykjavíkur í tilefni af þjóðhátíðardegi Íslendinga, 17. júní, í gær. Boðið var upp á leiktæki fyrir börnin í Hljómskálagarðinum og dagskrá var á sviðinu við Arnarhól. Þá var efnt til skrúðgöngu frá Hlemmi niður á Lækjartorg þar sem lúðrasveit lék fastan takt í broddi fylkingar. 18.6.2012 07:00
Óvissa um hver sigraði í egypsku forsetakosningunum Mikil óvissa ríkir um hver var sigurvegari í forsetakosningunum í Egyptalandi um helgina. 18.6.2012 06:57
Vesturveldin og Íranir aftur að samningaborðinu í dag Samningar fulltrúa Vesturveldanna og Rússlands við Íransstjórn um umdeilda kjarnorkuáæltun Írana hefjast aftur í dag í Moskvu. Tvær fyrri samningalotur milli þessara landa hafa ekki borið árangur. 18.6.2012 06:54
Danska smurbrauðið loksins komið á frímerki Danska póstþjónustan hefur ákveðið að hefja hið danska smurbrauð til vegs og virðingar með því að gefa út fjögur ný frímerki því til heiðurs. 18.6.2012 06:47
Dökk skýrsla um starfsmenn bandarísku leyniþjónustunnar Ný skýrsla á vegum bandarískra stjórnvalda um leyniþjónustu landsins, það er þá stofnun sem gætir öryggis Bandaríkjaforseta, sýnir miklar brotalamir í starfsemi leyniþjónustunnar. 18.6.2012 06:44
Sinna nýsköpun og eftirliti á Breiðafirði Nýsköpunarfyrirtækið OK Hull hefur sótt um einkaleyfi á bátsskrokk sem nýtist öllum tegundum báta og skipa, stórum sem smáum. Landhelgisgæslan kemur að nýsköpunarvinnunni með að nýta bát til eftirlits á Breiðafirði. 18.6.2012 06:30
Fáninn við hún klukkan þrjú Lögreglan á Suðurnesjum neyddist til að taka niður tvo íslenska fána um klukkan þrjú aðfaranótt 17. júní. Fánarnir voru sóttir af eigendum sínum morguninn eftir. Lögreglan bendir fólki á fánalögin þar sem finna má umgengnisreglur um þjóðfánann. 18.6.2012 06:00
Mengunarbótareglan innleidd Ný lög um umhverfisábyrgð voru nýverið samþykkt á Alþingi. Með lögunum er greiðsluregla umhverfisréttarins, eða mengunarbótareglan svokallaða, innleidd í íslenskan rétt. 18.6.2012 05:00
Sósíalistar ná meirihluta í Frakklandi Sósíalistaflokkurinn getur myndað hreinan meirihluta í neðri deild franska þingsins samkvæmt útgönguspám. Samkvæmt spánum hlaut flokkurinn, sem er flokkur Francois Hollande forseta, 312 af 577 þingsætum. 18.6.2012 03:00
Lífi 45 milljóna verði bjargað næstu 23 árin Bóluefni, bætt heilsugæsla og aukin menntun í heiminum á síðustu fjörutíu árum hefur dregið úr tíðni barnadauða um meira en helming. Alþjóðlegur fundur um málefnið hófst fyrir helgi í Washington í Bandaríkjunum. 18.6.2012 03:00
Stal hugmyndinni frá Obama Forsetaframbjóðandinn Ari Trausti Guðmundsson ætlar að vera með kosningaskrifstofu á hjólum að hætti Obama bandaríkjaforseta. Hann segist eiga mikið fylgi inni á lokasprettinum. 17.6.2012 19:37
Rúmlega 70 frumvörp bíða afgreiðslu Rúmlega sjötíu stjórnarfrumvörp bíða nú afgreiðslu á Alþingi en þar af hafa tuttugu og fjögur mál enn ekki verið tekin til fyrstu umræðu. Ekkert samkomulag er um framhald þingstarfa og óljóst hvenær þing fer í sumarfrí. 17.6.2012 18:54
Varla marktækur munur í þingkosningunum Útgönguspár eftir þingkosningarnar í Grikklandi í dag benda til þess að Nýi lýðræðisflokkurinn, flokkur Antoni Samaras, sé með örlítið meira fylgi en vinstrabandalagið Syrizia. Munurinn er þó varla marktækur. 17.6.2012 18:43
Flestir vilja takmarka setu forseta Rúm sextíu prósent þeirra sem tóku þátt í könnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins á dögunum telja að takmarka beri þann fjölda kjörtímabila sem forseti Íslands getur setið. Það kemur ekki á óvart að mest er andstaðan við slíkt á meðal stuðningsmanna Ólafs Ragnars Grímssonar. 17.6.2012 18:34
"Nunnuvæðing í nútímastíl og meyjarhaftavörn sem kallast femínismi" "Loksins er komin niðurstaða í máli sem flestir voru búnir að gleyma. Það eru svo mörg önnur spennandi þjóðmál í gangi." Svona hefst pistill Guðbergs Bergssonar rithöfundar á bloggsíðu sinni í dag. 17.6.2012 17:31
Niðurstöður gætu haft áhrif á þróun evrusamstarfsins Mikil spenna ríkir fyrir þingkosningarnar í Grikklandi í dag en niðurstöðurnar kunna að hafa mikil áhrif á þróun evrusamstarfsins. 17.6.2012 13:54
Jóhanna: Mikill árangur náðst frá hruni Forsætisráðherra segir þjóðina hafa náð gríðarlegum árangri frá hruni, samdráttarskeiðið hafi verið stryttra hér en annarss staðar og jöfnuður aukist til muna. Hún segir átök á vettvangi stjórnmálanna ekki hafa verið hatrammari á 34 ára ferli hennar sem stjórnmálamaður. 17.6.2012 12:09
Laug að löggunni Sex ökumenn voru teknir grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Einn af þeim reyndist án bílprófs en hann verður einnig kærður fyrir rangar sakargiftir því hann sagði lögreglumönnum að hann væri annar en hann er, það er gaf upp rangt nafn. 17.6.2012 11:47
Kosið í Egyptalandi Seinni dagur egypsku forsetakosninganna fer fram í dag og hefur þátttakan verið fremur dræm eins og spáð var. Tveir frambjóðendur eru í kjöri, annars vegar fulltrúi Múslimska bræðralagsins, Mohamed Morsi og Ahmed Shafiq, sem var forsætisráðherra í síðustu ríkisstjórni Mubaraks fyrrverandi forseta. Hann er sagður njóta stuðnings hersins í landinu sem haldið hefur um stjórnartaumana frá því Mubarak var komið frá. Margir þeirra sem stóðu að mótmælunum í landinu á sínum tíma eru ósáttir með valkostina í forsetakjörinu og hafa hvatt fólk til þess að sitja heima. 17.6.2012 11:45
Snjór, þrumur og eldingar í nótt Þjóðhátíðardagurinn heilsaði ökumönnum í Svínahrauni með alhvítri jörð og þrumum og eldingum um klukkan eitt í nótt. Þetta kemur frá fréttavefnum Sunnlenska.is. Fimm stiga hiti var á heiðinni í nótt og snjóaði talsvert á litlu svæði. Annars má búast við skúrum suðvestanlands í dag en bjartviðri norðanlands. Hiti verður á bilinu sex til fimmtán stig, hlýjast á suðvesturlandi. 17.6.2012 11:33
Fjörutíu ár frá Watergate-málinu Í nótt voru fjörutíu ár liðin frá því að brotist var inn í Watergate bygginguna í Washington. Innbrotið var upphafið að einu mesta hneykslismáli í pólitískri sögu Bandaríkjanna og varð það til þess að Richard Nixon Bandaríkjaforseti sagði af sér tveimur árum síðar. 17.6.2012 10:08
Hópslagsmál á Bíladögum Tilkynnt var um hópslagsmál í miðbæ Akureyrar í nótt en þar í bæ fer hátíðin Bíladagar fram. Að sögn lögreglu voru fimm fluttir á slysadeild eftirð hafa lent í slagsmálum í miðbænum en mikill mannfjöldi safnaðist saman fyrir utan skemmtistaðina eftir lokun. Þrír menn ruddustu inn á heimili í bænum og lömdu húsráðanda. Árásin tengist deilum á milli aðila, segir lögregla en húsráðandi slapp með minniháttar áverka. 17.6.2012 10:05