Innlent

Hundrað lítrar af kjötsúpu á Þjórshátíð

BBI skrifar
Mynd/Anna Sigga
Þjórshátíð var haldin í mynni Þjórsárdals í Gnúpverjahreppi á laugardaginn. Alls komu um 300-400 manns á svæðið, hlustuðu á tónlist, gæddu sér á íslenskri kjötsúpu og nutu þess að vera úti í sveit.

Hátíðin var haldin til að vekja fólk til umhugsunar um náttúruna og bjóða fólki að sjá svæðið sem fer á kaf undir lón ef fyrirhugaðar virkjanir í Þjórsá verða að veruleika. Íbúar á svæðinu tóku sig til og smíðuðu svið gagngert til að hátíðin gæti farið fram. Af tónleikasvæðinu var útsýni yfir landsvæðið sem sekkur ef Hvammsvirkjun verður að veruleika, en það er ein af þremur virkjunum sem til stendur að byggja í Þjórsá.

„Bæði flúðirnar og þessir grænu balar í ánni myndu hverfa og eftir yrði stórt lón," segir Þórdís Björt Sigþórsdóttir, sem kom að skipulagningu hátíðarinnar. „Við vitum ekki alveg hve margir komu, en við seldum alla vega svona 400 skálar af kjötsúpu," segir hún, en íbúar á svæðinu elduðu eina hundrað lítra af kjötsúpu fyrir hátíðina.

Dagskráin hófst klukkan eitt um hádegið með málþingi og stóð langt fram á kvöld með tónleikum þar sem fram komu m.a. hljómsveitirnar Valdimar og Pascal Pinon.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×