Innlent

Fáninn við hún klukkan þrjú

Íslenski fáninn Ekki má draga fána á stöng fyrr en klukkan sjö að morgni.
Íslenski fáninn Ekki má draga fána á stöng fyrr en klukkan sjö að morgni. Fréttablaðið/daníel
Lögreglan á Suðurnesjum neyddist til að taka niður tvo íslenska fána um klukkan þrjú aðfaranótt 17. júní. Fánarnir voru sóttir af eigendum sínum morguninn eftir. Lögreglan bendir fólki á fánalögin þar sem finna má umgengnisreglur um þjóðfánann.

Um tímamörk segja lögin: „Fána skal eigi draga á stöng fyrr en klukkan sjö að morgni og skal hann að jafnaði eigi vera lengur uppi en til sólarlags og aldrei lengur en til miðnættis.“- bþh




Fleiri fréttir

Sjá meira


×