Innlent

Hundruð bifreiða á ferðinni með ferðamenn

BBI skrifar
Ferðamenn streyma frá skemmtiferðaskipi niðri á Skarfabakka í dag.
Ferðamenn streyma frá skemmtiferðaskipi niðri á Skarfabakka í dag. Mynd/GVA
Ferðaskrifstofan Atlantik er með 105 rútur og 25 jeppa á ferðinni í dag til að hafa ofan af fyrir þeim þúsundum útlendinga sem komu til landsins í dag. „Ég er ekki með nákvæmar tölur en mér skilst að það séu um 8000 manns sem við erum að þjónusta í dag," segir Erla Gísladóttir, fjármálastjóri fyrirtækisins.

Fjögur skemmtiferðaskip og 40 þotur komu með 16.000 ferðamenn til landsins í dag. Erla segir þetta vera stærsta dag ferðaþjónustu Reykjavíkur síðustu árin. Hún segir þó að von sé á jafnstórum degi einhvern tíma í júlí. „Þessi skip eru alltaf að stækka," segir hún.

Flestir fara ferðamennirnir að skoða Gullfoss og Geysi, Bláa Lónið eða út á Reykjanes. Og þó dagurinn í dag sé sá stærsti í langan tíma eru almennt engin rólegheit hjá Atlantik. „Hver einasti dagur í allt sumar er action," segir Erla.

Atlantik er eitt og sér með yfir hundrað farartæki á ferðinni í dag og því má búast við að annað eins sé gert út af öðrum fyrirtækjum borgarinnar. Atlantik er þó eitt stærsta fyrirtækið í íslenskri ferðaþjónustu enda búið að vera á markaðnum í 34 ár.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×