Innlent

Nýtt hjúkrunarheimili á Egilstöðum valið

BBI skrifar
Mynd af tillögu Hornsteina ehf og Eflu.
Mynd af tillögu Hornsteina ehf og Eflu. Mynd/fljodsdalsherad.is
Tillaga Hornsteina arkitekta ehf/Eflu var valin besta tillagan um nýtt hjúkrunarheimili á Egilstöðum, en dómnefndarálit var birt í dag. Efnt var til samkeppni um hönnun að byggingu nýs heimilisins.

Tillagan sem varð fyrir valinu var í stuttu máli talin látlaus og aðlaðandi og þótti falla vel að landslagi svæðisins.

Meðal annars lagði dómnefndin áherslu á að yfirbragð byggingar og umhverfis væri góð byggingarlist, einnig að byggingin myndaði hlýlegt og heimilislegt umhverfi.

Heimilið á að rúma 40 manns og tengjast heilsugæslunni við Lagarás. Það verður tekið í notkun sumarið 2014.

Hér má lesa dómnefndarálitið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×