Innlent

Ökumaður undir áhrifum missti stjórn á bíl sínum

Ökumaður, sem var undir áhrifum áfengis eða fíkniefna missti stjórn á bíl sínum á gatnamótum Grensásvegar og Miklubrautar á öðrum tímanum í nótt.

Fyrst ók hann niður götuvita, síðan girðingu á milli akreina og hafnaði svo í trjágróðri í grennd við gatnamótin. Sem betur fer var lítil sem engin umferð á þessum slóðum þeagr þetta gerðist.

Ökumaðurinn, sem var einn í bílnum var fyrst fluttur á slysadeild til aðhlynningar, en mun ekki hafa meiðst alvarlega. Bíllinn er hinsvegar stórskemmdur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×