Kröfur um hafsbotn fyrir Grænland skarast við kröfur Íslands Þorbjörn Þórðarson skrifar 18. júní 2012 12:00 Tómas H. Heiðar, þjóðréttarfræðingur utanríkisráðuneytisins.
Danmörk, sem fer með utanríkismál Grænlands, hefur skilað greinargerð um kröfur sínar vegna ytri marka hafsbotns Grænlands utan 200 sjómílna fyrir landsgrunnsnefnd Sameinuðu þjóðanna. Kröfurnar skarast við kröfur Íslands og Kanada. Svæðið sem um ræðir er samtals um 115 þúsund ferkílómetrar á hafsbotninum 200 mílum frá ströndum Grænlands. Svæðið teygir sig suðvestur til Kanada og austurhluti svæðisins til Íslands. Landgrunnsnefnd Sameinuðu þjóðanna hefur það hlutverk að yfirfara greinargerðir strandríkja um ytri mörk hafsbotnsins utan 200 sjómílna og gera tillögur um þau mörk. Hafsbotninn hefur að geyma ýmsar auðlindir sem enn eru ekki full kannaðar. Því eru miklir hagsmunir í húfi fyrir ríki að fá kröfur sínar viðurkenndar. Bæði Kanda og Ísland hafa gert kröfur um landgrunnið fyrir landgrunnsnefndinni sem skarast við kröfur danska ríkisins og heimastjórnar Grænlands. „Danska utanríkisráðuneytið hafði áður upplýst okkur um að landgrunnskröfurnar sköruðust lítillega við landgrunn Íslands vestast á Reykjaneshrygg. Ísland skilaði sinni greinargerð til landgrunnsnefndarinnar vorið 2009 og gert er ráð fyrir að hún verði tekin fyrir á næstu misserum. Embættismenn Íslands og Danmerkur hafa verið í sambandi vegna málsins og skipst á vísindalegum upplýsingum. Gert er ráð fyrir að fundað verði um málið á næstu mánuðum í því skyni að ná samkomulagi um skiptingu hins tiltölulega litla svæðis milli landanna," segir Tómas H. Heiðar, þjóðréttarfræðingur utanríkisráðuneytisins. Tómas segir að Ísland leggi á það áherslu að málið verði leyst áður en greinargerð þess kemur til afgreiðslu landgrunnsnefndarinnar.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira