"Nunnuvæðing í nútímastíl og meyjarhaftavörn sem kallast femínismi" 17. júní 2012 17:31 Guðbergur Bergsson rithöfundur mynd/gva „
Loksins er komin niðurstaða í máli sem flestir voru búnir að gleyma. Það eru svo mörg önnur spennandi þjóðmál í gangi." Svona hefst pistill Guðbergs Bergssonar rithöfundar á bloggsíðu sinni í dag. Þar fjallar hann um „Gillz-málið" svokallaða en ríkissaksóknari tók ákvörðun á dögunum að ákæra ekki Egil Einarsson, oft kallaðan Gillzenegger, eftir að hann var kærður, ásamt unnustu sinni, fyrir nauðgun. Pistillinn hefur vakið mikla athygli í dag. „Hann átti sína gullnu tíð efst á stalli. „Allar vildu meyjarnar eiga hann," eins og segir í ljóði, og eflaust karlmenn líka, að minnsta kosti vöðvana. Stráksi var klár að koma sér áfram og vildi eðlilega nota tímann vel á meðan hann væri enn á líkamsræktaraldri," skrifar Guðbergur. „Svo henti það, sem alltaf gerist, að glæsimennið er ásakað fyrir að hafa farið í óleyfi upp á stelpu og hún heimtar hjónaband eða pening. Áður var hlegið í þorpum að þannig stelpupussulátum en nú er öldin önnur á íslenska menningarlandinu. Þar er komin í spilið viss nunnuvæðing í nútímastíl og meyjarhaftavörn sem kallast femínismi." Hann bendir á að nú þegar Egill hefur verið hreinsaður af ákæru vilji auðvitað enginn kannast við heift sína í hans garð. „Fólk er fljótt að snúa við blaðinu í skoðunum og fá nýja kennitölu á fyrirtækið Sómakennd. Með nýju kennitölunni hefur það gleymt að það hafi ekki einu sinni viljað fletta símaskránni vegna þess að skepnan, nauðgarinn var framan á henni eða það hafi viljað fá miða til þess að líma yfir syndaskrokkinn á honum eða skráin yrði hreinlega afturkölluð, hún brennd á táknrænni galdrabrennu og ný gefin út á vegum femínistafélagsins." Pistil Guðbergs má lesa í heild sinni hér.
Mest lesið Flutti til Reykjavíkur í dag Innlent Þrír í haldi vegna stunguárásar: Gabríel Douane einn grunaðra Innlent Ari Edwald leiðir Miðflokkinn í borginni Innlent Þetta eru launin sem frambjóðendur geta vænst með kjöri í vor Innlent Málið mögulega fyrir dómstóla: „Ekkert eðlilegt við það að fá símtal frá stjórnendum“ Innlent Bauluðu á Vance af „evrópsku stolti“ Erlent „Stuðlabergið er bara komið út í sjó“ Innlent Gabríel á bak við lás og slá fram á föstudag Innlent Réttað yfir manni sem er grunaður um að nauðga barni og konu sinni Innlent Vilhjálmur og Katrín hafi „djúpar áhyggjur“ vegna Epstein-afhjúpunar Erlent Fleiri fréttir „Þörfin er gríðarleg“ Gabríel á bak við lás og slá fram á föstudag Blíðan haft áhrif á gróður sem lætur þó ekki plata sig Reiknar með einu gosi í viðbót Flutti til Reykjavíkur í dag Málið mögulega fyrir dómstóla: „Ekkert eðlilegt við það að fá símtal frá stjórnendum“ Réttað yfir manni sem er grunaður um að nauðga barni og konu sinni Saka stjórnendur Bifrastar um að hafa beitt nemendur þrýstingi Saka stjórnendur um að þrýsta á nemendur að styðja rektor Biðla enn til almennings sjö árum eftir hvarf Jóns Þrastar Þorsteinn fær áheyrn Hæstaréttar Ari Edwald leiðir Miðflokkinn í borginni Stjórnarformaðurinn verður forstjóri Reykjalundar Íslenska ríkið ræður lobbýista í Washington Jarðskjálftahrinan við Eldey heldur áfram Þetta eru launin sem frambjóðendur geta vænst með kjöri í vor „Vísun máls til siðanefndar getur ekki talist aðför“ Fjórir handteknir í tengslum við líkamsárásir „Stuðlabergið er bara komið út í sjó“ Þrír í haldi vegna stunguárásar: Gabríel Douane einn grunaðra Í kapphlaupi við tímann: Fær ekki lyf sem gæti breytt og lengt líf hennar Stærsti skjálftinn 3,4 Fara í aðgerðir fáist ekki svör Handtekinn vegna stunguárásarinnar Segja fórnarlamb í Bakkakotsmálinu skilið eftir Skjálftahrina við Eldey Uppfylltu öll skilyrði nema aldurstakmarkið Lyfjafræðingar afar ósáttir við fyrirhugaða lagabreytingu og boða aðgerðir ef ekki rætist úr Féll í Jökulsárlón Dæmi um leikskóla þar sem enginn starfsmaður talar íslensku Sjá meira