Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fundu amfetamín og hnífa - meðlimur Outlaws handtekinn Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á amfetamín og hnífa við húsleit í austurborginni í dag. Hún tók einnig í sína vörslu talsvert af íblöndunarefnum og sterum. 15.5.2012 18:11
Stöðvuðu kannabisrækt í miðborginni Nokkur fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Kannabisræktun var stöðvuð á tveimur stöðum í miðborginni en þar var einnig lagt hald á lítilræði af marijúana og amfetamíni. 15.5.2012 17:25
Refsiaðgerðir ESB gegn Íslandi ekki lengur fjarlægur möguleiki Evrópuþingið mun í næsta mánuði fjalla um lagareglur sem heimila Evrópusambandinu að beita Ísland viðskiptaþvingunum vegna makríldeilunnar. Talsmaður sjávarútvegsstjóra ESB segir að þótt Evrópuþingið samþykki reglurnar sé ekki sjálfgefið að þeim verði beitt. 15.5.2012 17:00
Bað barnunga systur unnustu sinnar að nota kynlífshjálpartæki Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í gær karlmann í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir blygðunarsemis- og barnaverndarlagabrot gegn barnungri systur unnustu sinnar. 15.5.2012 16:49
Lést í hlíðum Esjunnar Maðurinn sem varð bráðkvaddur í hlíðum Esjunnar á sunnudaginn hét Kjartan Jónsson. Hann var 59 ára gamall og starfaði sem rafmagnsverkfræðingur hjá Símanum. 15.5.2012 16:11
Vigdís tók við nýju Símaskránni Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands og fyrrverandi leikhússtjóri Leikfélags Reykjavíkur, tók í dag við fyrsta eintakinu af nýju Símaskránni úr höndum Magnúsi Geirs Þórðarsonar, núverandi leikhússtjóra Borgarleikhússins. 15.5.2012 15:43
Ayrault nýr forsætisráðherra Frakklands Francois Hollande, sem sór embættiseið sinn sem forseti Frakklands í dag, hefur útnefnt Jean-Marc Ayrault, borgarstjóra Nantes og þingflokksformann sósíalista, sem næsta forsætisráðherra landsins. 15.5.2012 15:23
Kjartan fer ekki í tónleikaferðalag með Sigur Rós Kjartan Sveinsson, hljómborðs- og gítarleikari Sigur Rósar, fer ekki með hljómsveitinni í tónleikaferðalag um heiminn í sumar. Hann segist þó ekki vera endanlega hættur í Sigur Rós. 15.5.2012 15:03
Grikkir endurtaka þingkosningar Forseti Grikklands, Carolos Papouliasm, hefur boðað fulltrúa stjórnmálaflokka landsins á neyðarfund á morgun til að koma á bráðabirgðastjórn þar til þingkosningar fara fram á ný. 15.5.2012 14:41
Kveikti í sér fyrir utan dómshúsið í Osló Maður kveikti í sjálfum sér fyrir utan dómshúsið í Osló í morgun þar sem réttarhöldin yfir fjöldamorðingjanum Anders Behring Breivik fara fram. 15.5.2012 13:06
Annþór og Börkur ákærðir Annþór Kristján Karlsson og Börkur Birgisson hafa verið ákærðir fyrir sérstaklega hættulegar líkamsárásir og ólögmæta nauðung. Þetta kom fram í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins. Sjö sátu í gæsluvarðhaldi vegna málsins þegar mest lét og hefur þeim nú öllum verið sleppt. Annþór og Börkur eru grunaðir um að tengjast tveimur alvarlegum líkamsárásum sem gerðar voru fyrir nokkrum mánuðum í Hafnarfirði og Mosfellsbæ, skipulagðri glæpastarfsemi, innbrotum og þjófnaði, auk annars. Í byrjun þessa mánaðar úrskurðaðir Hæstiréttur að Annþór og Börkur skyldu afplána eftirstöðvar dóma sem þeir hlutu fyrir nokkrum árum. Annþór fyrir fíkniefnasmygl og Börkur fyrir tilraun til manndráps. 15.5.2012 12:41
Þorgerður Katrín vildi verða forstjóri Hörpu - átök í stjórninni Fjórir umsækjendur um forstjórastöðu tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu komu helst til greina, eftir langt og strangt ferli. Það voru auk Halldórs Guðmundssonar, sem tilkynntur var sem forstjóri 3. maí sl., Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fyrrverandi menntamálaráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, Þórólfur Árnason, verkfræðingur og Hrönn Greipsdóttir, fyrrverandi hótelstýra. 15.5.2012 12:01
Elsti jógakennari veraldar - 93 ára og með nýja mjöðm Hin 93 ára gamla Tao Porchon-Lynch lætur hvorki háan aldur né mjaðmaskiptaaðgerð aftra sér frá því að stunda jóga. Fyrir stuttu var hún skráð í heimsmetabók Guinness fyrir að vera elsti jógakennari veraldar. 15.5.2012 22:30
60 prósent þjóðarinnar notar símaskrána "Það hafa auðvitað orðið miklar tæknibreytingar á síðustu fimm árum en staðreyndin er samt sú að stór hópur notar símaskrána,“ segir Sigríður Margrét Björnsdóttir, forstjóri Já, sem fagnar útgáfu símaskrárinnar í dag. Sigríður var í viðtali við Reykjavík síðdegis í dag þar sem hún útskýrði fyrir þeim félögum að ekki aðeins lifði skráin góðu lífi, heldur notuðu fleiri bókina árið 2011 en árið 2010. 15.5.2012 21:00
Slátrarinn frá Bosníu fyrir dóm á morgun Stríðsglæpadómstóll Sameinu Þjóðanna í Haag kemur saman á morgun til að fjalla um mál Ratko Mladic, fyrrverandi yfirmanns herliðs Bosníu-Serba. 15.5.2012 12:48
Fullur og fáklæddur undir stýri Lögreglan á Suðurnesjum hafði um helgina afskipti af ökumanni sem grunaður var um ölvunarakstur. Maðurinn, sem er á fertugsaldri reyndist vera mjög ölvaður og að auki harla klæðlítill undir stýri. Hann var handtekinn og færður á lögreglustöð. Þar var hann látinn sofa úr sér þar til tekin var af honum skýrsla. Þá kom akandi á lögreglustöð annar karlmaður, sem taldi sig eiga þangað erindi. Af honum lagði megna áfengislykt og var hann handtekinn, grunaður um ölvun við akstur. 15.5.2012 12:24
Helmingur þeirra sem létust 17 ára og yngri Helmingur þeirra sem létu lífið í umferðinni á síðasta ári voru 17 ára og yngri, fjórir sautján ára ökumenn og tvær fótgangandi stúlkur. Þetta kemur fram í nýrri nýrri slysaskýrslu Umferðarstofu. 15.5.2012 12:22
Hells Angels stofnuðu góðgerðarsamtök til að halda utan um "varnarsjóð“ Hells Angels á Íslandi hafa um nokkurt skeið stefnt að því að opna húðflúrstofu á undir merkjum House of Pain en það er alþjóðleg keðja á vegum Hells Angels. Í skýrslu starfshóps lögreglunnar um starfsemi Hells Angels hér á landi segir að þar hafi líka staðið til að selja ýmsan varning og fatnað til stuðnings samtökunum en lögregla telur að sala slíks varnings sé hugsuð til að byggja upp svokallaðan "varnarsjóð“. 15.5.2012 11:41
Herdís búin að safna undirskriftum "Þetta gekk bara fljúgandi vel,“ segir Herdís Þorgeirsdóttir, forsetaframbjóðandi, sem hefur nú lokið að safna meðmælendum fyrir forsetakosningarnar 30. júní næstkomandi. Söfnunin um allt land gekk mjög vel að sögn Herdísar. Á vefsíðu sinni þakkar hún þeim sem stóðu að söfnuninni sem og þeim sem tilbúnir voru að mæla með framboðinu. 15.5.2012 10:59
Braut gegn 4 ára systurdóttur sinni - situr þrjá mánuði í fangelsi Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt karlmann í sex mánaða fangelsi, þar af þrjá mánuði skilorðbundna, fyrir kynferðisbrot gegn fjögurra ára systurdóttur sinni. Þá var hann einnig dæmdur fyrir að hafa í tölvu sinni tæplega þrjú þúsund myndir sem sýna börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt. 15.5.2012 10:12
Vítisenglar safna upplýsingum um lögreglumenn Lögregluyfirvöld, bæði hér á Íslandi og erlendis, hafa orðið þess áskynja að meðlimir vélhjólasamtakanna Vítisengla safni upplýsingum um lögreglu og starfsmenn hennar. Þetta kemur fram í skýrslu sem lögreglan vann um starfsemi Vítisengla og Vísir hefur undir höndum. 15.5.2012 08:00
Björn Ingi verður aftur ritstjóri Pressunnar Steingrímur Sævarr Ólafsson hefur sagt upp störfum sem ritstjóri Pressunnar. Við starfinu tekur Björn Ingi Hrafnsson, stjórnarformaður og útgefandi Vefpressunnar, og jafnframt aðaleigandi fyrirtækisins ásamt Arnari Ægissyni, framkvæmdastjóra. "Þetta leggst bara vel í mig, ég þekki íslenskan fjölmiðlaheim mjög vel og hlakka til að spreyta mig aftur á ritstjórahlutverkinu,“ segir Björn Ingi í frétt á Pressunni. 15.5.2012 11:27
Verkamannaflokkurinn með metfylgi Verkamannaflokkurinn er með fjórtán prósenta forskot á Íhaldsflokkinn í Bretlandi ef marka má nýja könnun The Sun. Könnunin var framkvæmd af YouGov, fyrirtæki sem er virt á þessu sviði en Verkamannaflokkurinn hefur ekki mælst svona vel í heilan áratug. 15.5.2012 11:03
Réðust á bækistöðvar sjóræningja Herskip frá ríkjum Evrópubandalagsins gerðu í nótt árásir á bækistöðvar sjóræningja í Sómalíu. Þetta er í fyrsta sinn sem ráðist er á sjóræningjana á landi. Í árásunum var bátum ræningjanna, sem bundnir voru við bryggjur, sökkt en bækistöðvarnar eru nálægt hafnarborginni Haradheere. 15.5.2012 11:00
Tóku meintan leigumorðingja af lífi Írönsk yfirvöld tóku af lífi í morgun mann sem dæmdur var fyrir morð á írönskum kjarnorkufræðingi fyrir tveimur árum síðan. Maðurinn, hinn 24 ára Majid Fashi var einnig sakaður um að vera útsendari ísraelsku leyniþjónustunnar Mossad en hann var sagður hafa fengið 120 þúsund dollara fyrir að fremja morðið. 15.5.2012 10:57
Þrír geimfarar á leið í geimstöðina Rússnesk Soyuz geimflaug hóf sig til lofts í morgun en leið hennar liggur að alþjóðlegu geimstöðunni sem er á braut um jörðu. Þrír geimfarar eru um borð, einn Bandaríkjamaður og tveir Rússar. Þeir munu hitta fyrir í geimstöðinni þrjá kollega sína, Bandaríkjamann, Rússa og Hollending. 15.5.2012 10:45
Bitinn af skröltormi í Wal Mart Viðskiptavinur Wal Mart risaverslunarkeðjunnar í Bandaríkjunum er nú að ná sér á sjúkrahúsi eftir verslunarferð. Hann var staddur í garð-deild verslunar í borginni Clarkson í Washington ríki þegar stærðarinnar skröltormur lét til skarar skríða gegn honum og beit hann í höndina. 15.5.2012 10:41
Dýrum jarðar hefur fækkað um 30 prósent Dýrum á jörðinni hefur fækkað um 30 prósent á síðustu fjórum áratugum ef marka má nýja skýrslu um ástand jarðar. Skýrslunni er ætlað að vekja athygli ráðamanna heimsins á vandanum en þeir munu hittast á ráðstefnu í Ríó de Janeiro í sumar þar sem rætt verður um leiðir til að auka sjálfbærni. 15.5.2012 10:22
Halda enn í vonina um starfhæfa stjórn Ráðamenn í Grikklandi halda enn í þá veiku von að hægt verði að mynda starfhæfa stjórn í landinu eftir að stjórnarmyndunarviðræður hafa ítrekað farið út um þúfur. Enn á að funda í dag og á meðal hugmynda sem forsetinn hefur sett fram er að koma á fót utanþingsstjórn skipaða sérfræðingum. Hugmyndin hefur þó ekki fallið í góðan jarðveg á meðal forystumanna flokkanna og því telja skýrendur enn að líklega þurfi að boða til kosninga að nýju. Markaðir um allan heim hafa fallið vegna fregnanna frá Grikklandi og í nótt lækkuðu markaðir í Asíu vegna óvissunnar. 15.5.2012 10:19
Útiveitingastaður á flotbryggju Arkitekt Ráðhúss Reykjavíkur hefur spurst fyrir um það hjá byggingarfulltrúa borgarinnar hvort koma megi fyrir flotbryggju í Tjörninni framan við Ráðhússkaffi. 15.5.2012 10:00
Hugmyndum um nýjan skatt á lífeyrissjóði vex fylgi Landssamtök lífeyrissjóða höfnuðu í gær hugmyndum um að færa niður fasteignalán, sem tryggð eru með lánsveðum hjá ábyrgðarmönnum, að 110 prósentum af fasteignamati. Efnahagsráðherra, fjármálaráðherra, innanríkisráðherra og velferðarráðherra lögðu drög að samkomulagi þar um fyrir fulltrúa sjóðanna á fundi í gær. Fulltrúar Íbúðalánasjóðs sátu fundinn einnig. 15.5.2012 08:30
Hundrað eftirskjálftar við Herðubreið Hátt í hundrað eftirskjálftar hafa orðið eftir skjálftan sem varð laust fyrir klukkan eitt í gærdag, þrjá til fjóra kílómetra suðvestur af Herðubreið og mældist 3,2 stig. 15.5.2012 08:05
Hollande sver embættiseið Francois Hollande sver embættiseið sinn sem forseti Frakklands í dag. Athöfnin fer fram í Elysee höll í París en þar mun hann taka við stjórnartaumunum úr hendi Nicolas Sarkozy sem hann sigraði í kosningum á dögunum. 15.5.2012 08:03
Forseti gæti tekið völdin af ríkisstjórn „Vandi núgildandi stjórnarskrár er að í upplausnarástandi gæti forseti hreinlega tekið völdin af ríkisstjórn.“ Þetta segir Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur í grein í nýjasta hefti Skírnis. Greinin fjallar um breytta stöðu forseta Íslands og frumvarp Stjórnlagaráðs. 15.5.2012 08:00
Gagnrýndi fyrirhugaðar aðgerðir ESB Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra gagnrýndi harkalega hugmyndir sem eru til umræðu innan ESB um refsiaðgerðir gegn Íslandi vegna makríldeilunnar, á fundi EES-ráðsins í gær. Þar voru fulltrúar EFTA-ríkjanna og Danir fyrir hönd ESB. 15.5.2012 07:30
Jón dregur framboð sitt til baka Jón Lárusson lögreglumaður á Selfossi hefur dregið framboð sitt til embættis forseta Íslands til baka. Hann segir í tilkynningu að sér hafi ekki tekist að afla tilskilins fjölda meðmælenda og eigi ekki annarra kosta völ en að draga framboðið til baka. Eftir þetta standa sjö frambjóðendur eftir. 15.5.2012 07:13
Almenningur fái dorgaðstöðu Stjórn Faxaflóahafna hefur samþykkt tillögu formannsins Hjálmars Sveinssonar um að láta kanna möguleika þess að koma fyrir dorgaðstöðu fyrir almenning í tengslum við uppsátur fyrir smábáta við Eyjarslóð. 15.5.2012 07:00
Styðja búsetu óháð formi Nýtt kerfi húsnæðisbóta verður kynnt í dag. Það kemur í stað húsaleigu- og vaxtabóta. Um samtímagreiðslur verður að ræða og verða greiðslurnar óháðar því hvort fólk leigir eða á eigið húsnæði. 15.5.2012 06:30
Tómlegt eftir fall risatrés Stóreflis birkitré rifnaði upp með rótum á lóð við Reynimel í hvassviðrinu sem gekk yfir höfuðborgarsvæðið á aðfaranótt mánudags. 15.5.2012 06:00
Foreldrar komi að ráðningum Tekið verður upp samráð við foreldra þegar skólastjórar eru ráðnir, nái tillaga sjálfstæðismanna í borgarstjórn fram að ganga. Hún var lögð fram á síðasta fundi skóla- og frístundaráðs en afgreiðslu frestað. 15.5.2012 05:30
Almenn niðurfærsla forsenda stuðnings Samþykki ríkisstjórnin að fara í almennar skuldaniðurfellingar og beita sér í öðrum málum sem þingmenn Hreyfingarinnar vilja að nái fram að ganga mun þingflokkur Hreyfingarinnar verja stjórnina vantrausti. 15.5.2012 05:00
Morðinginn í Malmö neitar Réttarhöld hófust í gær yfir Peter Mangs, manninum sem er talinn hafa borið ábyrgð á fjölda skotárása í Malmö í Svíþjóð. 15.5.2012 01:00
Fangar hætta hungurverkfalli Samkomulag tókst í gær milli Ísraela og palestínskra fanga, sem hafa verið í hungurverkfalli síðan um miðjan apríl til að mótmæla aðstæðum í ísraelskum fangelsum. 15.5.2012 00:00
Bjarni Benediktsson: Undarlegt samstarf og örvæntingafullt "Já, er það ekki dálítið athyglisvert að við heyrum það frá Hreyfingunni að ríkisstjórnin njóti ekki meirihlutastuðnings á þinginu? Mér finnst það mjög athyglisvert að Jóhanna [Sigurðardóttir] og Steingrímur [J. Sigfússon] telji stöðu sína svo veika, eftir ráðherrakapalinn síðasta vetur, að þau finni sig knúin til þess að funda með Hreyfingunni til þess að verja ríkisstjórnina falli,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við Reykjavík síðdegis. 14.5.2012 23:00
Konunglegar nærbuxur til sölu á eBay Silkinærbuxur sem Elísabet 2. Bretadrottning er sögð hafa átt eru nú til sölu á uppboðsvefnum eBay. 14.5.2012 22:30