Innlent

Ók á staur - var að teygja sig eftir gemsanum

17 ára piltur missti stjórn á bíl sínum á Akureyri í nótt með þeim afleiðingum að bíllinn hafnaði á ljósastaur. Pilturinn var fluttur á sjúkrahúsið til aðhlynningar en reyndist ekki mikið meiddur en bíllinn var óökufær eftir.

Hann gaf þá skýringu að hann hafi misst gemsann í bílgólfið og verið að teygja sig eftir honum og ekki vitað fyrr en hann lenti á staurnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×