Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Smástirni þaut milli jarðar og tungls í gær Rúmlega 45 metra smástirni þaut á milli jarðar og tungls í gær. Vísindamenn uppgötvuðu smástirnið fyrir aðeins tveimur vikum. 2.4.2012 23:49
Mikill viðbúnaður í Oakland - sex sagðir látnir Enn er mikill viðbúnaður við Oikos-háskólann í Oakland í Bandaríkjunum. Lögreglan hefur handtekið karlmann sem grunaður er um árásina. 2.4.2012 21:36
Framhald Kony 2012 opinberað í vikunni Framhald heimildarmyndarinnar Kony 2012 verður opinberað í vikunni. Þetta kemur fram á Facebook-síðu hjálparsamtakanna Invisible Children. 2.4.2012 22:11
Kutcher mun fara með hlutverk Steve Jobs Bandaríski leikarinn Ashton Kutcher mun fara með hlutverk frumkvöðulsins Steve Jobs í væntanlegri kvikmynd. 2.4.2012 21:45
Jón Gnarr: "Við erum frumkvöðlar" "Borgarstjórar víða um heim horfa til okkar því við erum frumkvöðlar,“ segir Jón Gnarr. Hann vill færa valdið til fólksins og leyfa því að ráða hvernig peningum borgarinnar er ráðstafað. 2.4.2012 21:00
Fylgi ríkisstjórnar minnkar - Sjálfstæðisflokkur eykur við sig Fylgi Sjálfstæðisflokksins eykst töluvert milli febrúar og mars samkvæmt þjóðarpúlsi Gallup. Þá segja 26% að þau styðji ríkisstjórnina - aðeins einu sinni hefur sitjandi ríkisstjórn mælst með minni stuðning en það var í upphafi árs 2009. Greint var frá þessu í kvöldfréttum RÚV. 2.4.2012 20:30
"Allir hundar eru rándýr" "Allir hundar eru rándýr. Það er í eðli þeirra að veiða en eigandinn á að stjórna hundinum,“ sagði Ásta Dóra Ingadóttir, hundaþjálfari hjá Gallerý Voff. Hún var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. 2.4.2012 20:30
Fimm látnir í Oakland - árásarmaðurinn í haldi Lögreglan í Oakland hefur haft hendur í hári mannsins sem hóf skotárás í kristilegum skóla fyrir stuttu. Samkvæmt AP fréttastofunni eru að minnsta kosti fimm látnir. Þá eru nokkrir særðir og hafa fjórir verið fluttir á spítala. 2.4.2012 20:05
Fordómar miklir segir transmaður Karlmanni sem fæddist í líkama konu var misþyrmt af þremur karlmönnum á skemmtistað um helgina. Transmaður segir fólk í þeirra stöðu hrætt. 2.4.2012 20:00
Segir "gamaldags" vinnubrögð vera við lýði á Alþingi „Þeir einstaklingar sem eru á þingi í dag eru stjórnmálamenn gamla tímans," sagði Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir stjórnsýslufræðingur en hún var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í dag. 2.4.2012 19:15
Segir útkomu Drekaútboðsins framar björtustu vonum Þrjár umsóknir bárust um sérleyfi til rannsókna og olíuvinnslu á Drekasvæðinu. Íslendingar eru aðilar að þeim öllum og reynd bresk leitarfélög standa að tveimur umsóknanna. Orkumálastjóri segir útkomuna framar björtustu vonum. 2.4.2012 19:09
Kvartað undan lausagöngu Husky-hunda í Grafarvogi Kvartað hefur verið undan lausagöngu Siberian Husky-hunda í Grafarvogi að undanförnu en tveir slíkir léku þar lausum hala í gær og drap annar þeirra kött. Eigandinn, sem hefur sex Husky-hunda í sinni umsjá, var kærður í morgun. 2.4.2012 18:32
Talið að lík skipstjóra Hallgríms hafi fundist við Noregsstrendur Lík sem fannst í sjónum fyrir utan Noregsstrendur á fimmtudaginn er talið vera af skipstjóra Hallgríms, sem fórst í sjóslysi í janúar síðastliðnum. 2.4.2012 18:30
Seinna útboði vegna Drekasvæðisins lokið Seinna útboði vegna sérleyfa á Drekasvæðinu lauk í dag. Alls sóttu þrjú félög um sérleyfi vegna rannsókna og vinnslu kolvetnis á svæðinu. 2.4.2012 17:39
Tólf mánaða fangelsi fyrir þaulskipulagða glæpi Tveir menn hafa verið dæmdir í tólf mánaða fangelsi fyrir að setja afritunarbúnað á hraðbanka Arion banka að Laugavegi 120 í Reykjavík og í hraðbanka Landsbanka í Austurstræti 14 í Reykjavík og afrita upplýsingar. Annar mannanna játaði brot sitt en sagði að ekki hefði tekist að afrita upplýsingarnar. Hinn maðurinn neitaði sök. 2.4.2012 15:48
Fær 108 milljónir skattfrjálst - þurfti að fara oft yfir vinningsmiðann Hinn heppni eigandi Víkingalottómiða sem var með allar tölurnar réttar í síðasta útdrætti í Víkingalottóinu hefur gefið sig fram við Íslenska getspá. Hann er nú tæplega 108 milljónum krónum ríkari. 2.4.2012 15:13
Eykon sækir um Drekann Þriðja umsóknin er komin í Drekasvæðið, frá Eykon Energy, norsku félagi í eigu Íslendinga og Norðmanna. Heiðar Már Guðjónsson hagfræðingur og fjárfestir, sem er stjórnarformaður Eykon Energy, staðfestir í samtali við fréttastofuna að félagið hafi lagt inn tilboð um tvöleytið í dag. 2.4.2012 14:54
Vilja stjórnarskrárbundna vernd transfólks Nauðsynlegt er að bæta inn í stjórnarskrá og refsilöggjöfina ákvæði til verndar transfólki með kynvitund sem ekki samræmist þeirra líffræðilega kyni. Þetta segir í yfirlýsingu frá Samtökunum ´78 í tilefni af því að ráðist var á transmann í Reykjavík um helgina. Í yfirlýsingunni kalla Samtökin ´78 eftir umburðarlyndi og skilningi fólks á milli. Þjóðfélagið væri miklu minna virði ef allir væri steyptir í sama mót. 2.4.2012 14:53
Lögreglan lýsir eftir grárri Boru Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir ljósgráum Volkswagen Bora með skráningarnúmerið UU-837 en bílnum var stolið frá Grjótaseli í Reykjavík um þar síðustu helgi. Þeir sem geta gefið upplýsingar um hvar bíllinn er niðurkominn eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000 eða senda tölvupóst á netfangið abending@lrh.is. 2.4.2012 14:51
Farþegarnir slógust eftir bílveltu Lögreglan á Ísafirði handtók á föstudagskvöld ökumann bifreiðar sem lenti á ljósastaur og valt á veginum til móts við Strandgötu í Hnífsdal. Hann er grunaður um bæði ölvunar- og fíkniefnaakstur. Á vestfirska fréttamiðlnum Bæjarins Besta segir að í bílnum hafi verið fjórir karlmenn sem hafi allir sloppið með minniháttar áverka eftir veltuna. En þegar lögreglumenn komu á vettvangi höfðu brotist út slagsmál meðal mannanna en þá voru aðrir vegfarendur og sjúkraflutningamenn komnir á vettvang. Tekið var blóðsýni úr ökumanninum en aðstæður á vettvangi báru þess merki að ekið hafi verið mjög ógætilega. 2.4.2012 14:40
Minnihlutinn krefst skýringa á málum leikskólakennara Sjálfstæðismenn og VG í borgarstjórn hafa óskað eftir sérstakri umræðu í borgarstjórn á morgun um málefni leikskólakennara. 2.4.2012 14:26
Ákærðir fyrir tugmilljóna svindl Fjórir karlmenn hafa verið ákærðir fyrir að svíkja samtals um tugi milljóna króna út úr Íbúðalánasjóði sumarið 2009. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness fyrir hádegi í dag. Í öðru tilfellinu var brotið framið þann 8. júní 2009 en í hinu tilfellinu 2. júlí sama ár. Mennirnir eru líka ákærðir fyrir að svíkja fé af einstaklingum og fyrirtækjum. Mennirnir eru ungir að árum, en sá elsti er 25 ára og sá yngsti einungis 21. árs. 2.4.2012 14:15
Ánægja með aðgengi að heilbrigðisþjónustu Langflestir foreldrar, eða um 77%, eru annaðhvort frekar eða mjög ánægðir með aðgengi barna sinna að heilbrigðisþjónustu. Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsóknar sem unnar voru á vegum Lýðheilsustöðvar, sem nú er hluti af Landlækni. Í könnuninni voru foreldrar barnanna spurðir að því hversu ánægðir þeir eru með aðgengi að heilbrigðisþjónustunni. 2.4.2012 13:39
Með þýfi, amfetamín og kannabis í bílnum Lögreglumenn á Selfossi höfðu afskipti af ökumanni á leið um Suðurlandsveg í Ölfusi um níuleytið í morgun. Í ljós kom að í bifreiðinni voru tveir karlar og ein kona og var ökumaðurinn undir sýnilegum áhrifum fíkniefna. Við leit í bifreiðinni fundust fíkniefni, amfetamín og gras. Auk þess var heilmikið af tóbaki, gosdrykkjum og fleiru smálegu. Við nánari skoðun kom í ljós að um var að ræða þýfi úr Kertasmiðjunni í Brautarholti á Skeiðum en þar var brotist inn í nótt. Fólkið var handtekið og fært í fangageymslu. Ökumaðurinn hefur viðurkennt innbrotið og er málið upplýst. Til viðbótar þessu var ökumaðurinn sviptur ökurétti. 2.4.2012 12:30
Sviptu mann frelsi sínu og beittu á hann rafstuðbyssu Um klukkan átta í gærkvöldi var sjúkrabíll sendur á Þorlákshöfn vegna manns sem talið var að hefði orðið fyrir rafstuði. Þegar lögreglan kom á staðinn kom í ljós að óþekktir einstaklingar höfðu ráðist að ungum karlmanni og svipt hann frelsi sínu um stundarsakir og meðal annars beitt á hann rafstuðbyssu. Ástæðan var talin vera sú að árásarmennirnir höfðu manninn grunaðan um innbrot og þjófnaði í húsnæði þeim tengdum. Ungi maðurinn var fluttur á heilsugæslustöðina á Selfossi til skoðunar en áverkar hans reyndust ekki alvarlega. Lögreglan á Selfossi fer með rannsókn málsins. 2.4.2012 12:23
OLÍS og Verkís sækja um Drekasvæðið með erlendu félagi Olíuverslun Íslands og Verkfræðistofan Verkís eru meðal eigenda nýstofnaðs íslensk olíuleitarfélags sem í samstarfi við erlent olíuleitarfélag sendi inn umsókn í Drekasvæðið í morgun. Þar með er ljóst að minnst tvær umsóknir berast áður en frestur rennur út klukkan fjögur í dag. 2.4.2012 12:14
Ólafur Arnarson segir stefnuna bjánalega Ólafur Arnarson segir meiðyrðastefnu Friðriks J. Arngrímssonar, framkvæmdastjóra LÍÚ, á hendur sér bjánalega. Hann treystir því að dómstólar láti ekki frekju og fantaskap verða til þess að venjulegt fólk, eins og hann, verði fyrir stóru fjárhagstjóni. 2.4.2012 12:10
Hundaeigandinn kærður til lögreglu Eigandi tveggja hunda af Husky kyni sem drápu kött í foldahverfinu í Grafarvogi í gær hefur verið kærður til lögreglu. Árásin var svo grimmileg að dýrið hryggbrotnaði. 2.4.2012 12:06
Tugir leikskólakennara mótmæla Tugir leikskólakennara eru samankomnir fyrir framan Ráðhús Reykjavíkur til að mótmæla ákvörðun borgaryfirvalda um að fella niður greiðslur fyrir neysluhlé. Formaður Félags leikskólakennara staðfesti í gær að félagið ætlaði í mál við borgina. Þegar er hafinn undirbúningur að stefnunni en málið verður rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. 2.4.2012 12:04
Insúlíndælu stolið Kona á þrítugsaldri varð fyrir því óláni að töskunni hennar var stolið á skemmtistaðnum Faktorý aðfaranótt laugardags. Í henni voru bæði sími og greiðslukort og tjónið því bagalegt. Verst af öllu er þó að í töskunni var jafnframt insúlíndæla sem konan þarf sárlega á að halda. Lögreglan skorar á þjófinn að skila insúlíndælunni enda afar hæpið að hún komi honum að einhverju gagni. Konan sem á dæluna getur alls ekki án hennar verið yrði hins vegar mjög þakklát ef insúlíndælunni yrði skilað. Upplýsingum um málið má koma á framfæri í síma 444-1000 eða í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is. 2.4.2012 11:35
Tvíhliða myntsamstarf við Kanada var rætt á fundi Steingríms í Ottawa Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, segir að tvíhliða myntsamstarf við Kanada hafi komið til umræðu á fundi sem hann átti með fulltrúum Seðlabanka Kanada í Ottawa í síðustu viku. Sjá viðtal við Steingrím hér. 2.4.2012 11:00
Dorrit horfir á Sólskinsdreng í húsakynnum Sameinuðu þjóðanna Dorrit Mousieff forsetafrú verður viðstödd sérstaka sýningu á myndinni Sólskinsdrengur í húsakynnum Allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna í New York á alþjóðlegum degi einhverfu, sem er í dag. 2.4.2012 10:35
Í gæsluvarðhald eftir árás á konu með kertastjaka Karlmaður á þrítugsaldri var úrskurðaður í gæsluvarðhald fram á miðvikudag í gær vegna alvarlegrar líkamsárásar á konu í heimahúsi í Kópavogi aðfaranótt sunnudags. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var maðurinn handtekinn á staðnum en hann er talinn hafa slegið konuna í höfuðið með kertastjaka. Hún var flutt á slysadeild eftir árásina en er ekki í lífshættu. Maðurinn er ekki búsettur á heimilinu en þekkir konuna. Hann hefur ekki komið við sögu hjá lögreglu áður. Málið er í rannsókn. 2.4.2012 10:26
Páskaljósmyndasamkeppni Fréttablaðsins lýkur á morgun Ljósmyndasamkeppni Fréttablaðsins er í fullum gangi og er þemað "Páskastemning". Besta myndin mun prýða forsíðu Fréttablaðsins laugardaginn 7. apríl næstkomandi. Verðlaun fyrir fyrsta sætið er heimaljósastúdíó frá Nýherja. Í því eru tveir 150W ljósastandar, regnhlíf og DVD-kennsludiskur. Verðlaun fyrir annað og þriðja sætið eru ferðir í Borgarleikhúsið fyrir tvo. 2.4.2012 10:15
Fáir ljúka framhaldsskólanámi á réttum tíma Á Íslandi höfðu 44% nýnema á framhaldsskólastigi árið 2003 brautskráðst á réttum tíma, þ.e. innan fjögurra ára frá upphafi náms. Þetta kemur í tölum Hagstofunnar sem birtar voru í morgun. Aðeins í Lúxemborg höfðu færri nemendur lokið námi á framhaldsskólastigi á tilskildum tíma, 41% nemenda. Þar í landi er algengt að nemendur þurfi að endurtaka námsár í skóla. Tveimur árum síðar höfðu 71% nýnema í Lúxemborg brautskráðst en 58% íslenskra, og er Ísland þar í neðsta sæti þeirra 11 OECD-ríkja sem höfðu sambærilegar tölur. 2.4.2012 09:05
Hætt við að banna svartadauða í ÁTVR Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins (ÁTVR) hefur fellt úr gildi ákvörðun sína um að selja ekki bjórinn Black Death, eða svartadauða, í verslunum sínum. Ákvörðunin hafði verið kærð til fjármálaráðuneytisins. Bjórinn er væntanlegur í verslanir ÁTVR í byrjun maí að sögn Valgeirs T. Sigurðssonar, eiganda vörumerkisins Black Death. 2.4.2012 08:30
Fimm særðir eftir skotárás í Oakland Mikill viðbúnaður er við Oikos-háskólann í Oakland í Bandaríkjunum. Að minnsta kosti fimm eru sárir eftir skotárás í skólanum. 2.4.2012 19:20
Kringlan flokkar 38 prósent af sínu sorpi Umhverfisátakið Grænn apríl er hafið en þar er lögð áhersla á að kynna og bjóða upp á upplýsingar um þekkingu, vöru og þjónustu sem telst vera græn og umhverfisvæn. 2.4.2012 11:00
Til skoðunar að afturkalla veiðiheimild Innanríkisráðherra telur koma til greina að svipta sjávarútvegsfyrirtæki veiðiheimild, verði þau uppvís að því að brjóta gjaldeyrislög. Samherji liggur undir grun. 2.4.2012 11:00
Sagðist vera frá Frakklandi Maður, sem kom með flugi frá Manchester í Englandi á föstudag og átti bókað flug áfram til Toronto í Kanada, framvísaði fölsuðu skilríki hjá tollvörðum á Keflavíkurflugvelli. Í tilkynningu frá lögreglu segir að við innritun í flugið til Kanada framvísaði hann frönsku vegabréfi sem þótti grunsamlegt. Vegabréfið var því skoðað nánar og niðurstaða andlitssamanburðar var sú að hann væri ekki lögmætur handhafi vegabréfsins. Við yfirheyrslu hjá lögreglu hefur maðurinn neitað að vegabréfið sé falsað og hann hafi ekki gefið upp sitt rétta nafn og þjóðerni. Málið er í rannsókn en þetta er sjöunda fölsunarmálið á árinu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Árið 2011 voru fölsunarmálin 33 talsins. 2.4.2012 10:34
Sjö hundruð sjúklingar bíða eftir aðgerð á augasteinum Biðlistar eftir skurðaðgerðum á augasteinum hafa ekki verið lengri síðan í október 2009. 710 einstaklingar höfðu í febrúar beðið lengur en þrjá mánuði eftir slíkri aðgerð, en á sama tíma í fyrra voru 526 á biðlista. Þetta kemur fram í tölum Landlæknisembættisins um biðlista eftir völdum skurðaðgerðum í febrúar. 2.4.2012 10:00
Sundstaðir fá hálfan milljarð Átaksverkefni við sundlaugamannvirki mun kosta borgarsjóð 500 milljónir króna á þessu ári. Um endurgerð, viðbætur og viðgerðir er að ræða í átaki sem hófst í fyrra við Árbæjarlaug, Breiðholtslaug, Grafarvogslaug, Laugardalslaug, Sundhöllina, Vesturbæjarlaug og ylströndina í Nauthólsvík. 2.4.2012 10:00
Sykurneysla að fara með Bandaríkjamenn í gröfina Í fréttaþættinum 60 Minutes á CBS sjónvarpsstöðinni í gærkvöldi var fjallað um það að sykurneysla væri að fara með Bandaríkjamenn í gröfina. 2.4.2012 08:00
Valdaránsstjórn hersins lofar lýðræði á ný Amadou Haya, leiðtogi valdaránsstjórnar hermanna í Malí, hét því í gær að endurreisa stjórnskipan landsins. Um svipað leyti bárust fréttir af því að uppreisnarsveitir túarega hefðu náð borginni Timbúktú á sitt vald. 2.4.2012 07:30
Perlumenn ekki rætt við ráðuneytið „Ég hef sagt að ég sé tilbúin til að skoða Perluna sem hugsanlegt húsnæði fyrir náttúruminjasafn en mér finnst það vera sjálfstæð ákvörðun og ekki hanga endilega á einhverjum þriðja aðila," segir Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra. 2.4.2012 07:15