Innlent

Sjö hundruð sjúklingar bíða eftir aðgerð á augasteinum

Langflestar aðgerðir eru gerðar á Landspítalanum. 
fréttablaðið/vilhelm
Langflestar aðgerðir eru gerðar á Landspítalanum. fréttablaðið/vilhelm
Biðlistar eftir skurðaðgerðum á augasteinum hafa ekki verið lengri síðan í október 2009. 710 einstaklingar höfðu í febrúar beðið lengur en þrjá mánuði eftir slíkri aðgerð, en á sama tíma í fyrra voru 526 á biðlista. Þetta kemur fram í tölum Landlæknisembættisins um biðlista eftir völdum skurðaðgerðum í febrúar.

Að sögn Björns Zoëga, forstjóra Landspítalans, er óljóst af hverju biðlistinn er svo langur. Áætlaður biðtími eftir aðgerð á augasteini á Landspítalanum er rúmar 44 vikur. Hjá stofunum Sjónlagi og Lasersjón er biðtíminn frá 14 vikum og upp í 18. Framkvæmdum aðgerðum á augasteinum fækkaði um rúman þriðjung frá árinu 2010 til 2011. Þær voru 2.653 árið 2010 en 1.764 í fyrra. Á öllum sjúkrahúsum og stofum voru færri slíkar aðgerðir gerðar, en mestu munar um lokun skurðstofa á St. Jósefsspítala. Þar voru 673 aðgerðir framkvæmdar árið 2010.

Fundað var um þessi mál á Landspítalanum í síðustu viku. „Við finnum ekki fyrir miklum þrýstingi vegna þessara biðlista. Venjulega fáum við kvartanir vegna biðlista en í þessu tilviki finnum við eiginlega ekki fyrir þessu. Við getum ekki alveg útskýrt þetta," segir Björn. „Það er stundum svona með læknisfræðilega hluti, eftirspurnin getur verið óendanleg."

Björn segir hins vegar grannt fylgst með þróuninni. „Við vitum af þessari aukningu. Hún er að hluta til, en ekki eingöngu, vegna þess að St. Jósefsspítali sameinaðist Landspítalanum. Við ætlum að fylgjast með þessu og sjá hvað verður. Við stefnum að því að gera þúsund svona aðgerðir á þessu ári, sem er töluvert."

Eins segir Björn mikilvægt að skoða tölur um biðlista með hliðsjón af því eftir hvaða aðgerðum er beðið. „Það er stöðug forgangsröðun í gangi hjá okkur," segir hann og áréttar að til dæmis verði að horfa til þess hvort sjúklingar bíði eftir því að fá fjarlægt krabbamein, eða hvort biðin sé eftir einhverju sem auka eigi lífsgæði fólks á efri árunum.- þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×