Fleiri fréttir

Bílvelta á Eyrarbakkavegi

Bílvelta varð á Eyrarbakkavegi um klukkan hálf fjögur í nótt. Ökumaður bílsins missti stjórn á honum og fór hann eina til tvær veltur áður en hann staðnæmdist utan vegar. Að sögn lögreglu voru aðstæður ákjósanlegar og engin hálka á veginum. Því er óljóst hvað olli veltunni. Ökumaðurinn, sem var kona, var ein á ferð og var hún flutt á slysadeild í Reykjavík til aðhlynningar. Hún er ekki talin alvarlega slösuð.

Talið að 32 manns hafi farist í flugslysi í Síberíu

Talið er að minnsta kosti 32 manns hafi farist af þegar farþegavél af gerðinni ATR 72 hrapaði til jarðar í Síberíu í nótt. 43 voru um borð í vélinni en tölur um fjölda þeirra sem komust af eru nokkuð á reiki eða frá 11 til 16 manns.

Suu Kyi sögð komin á þing

Staðfesti herforingjastjórnin í Búrma sigur Aung San Suu Kyi í aukaþingkosningum í Kawhmu, þá tekur hún von bráðar sæti á þingi í fyrsta sinn. Flokkur hennar, Lýðræðisfylkingin, fullyrðir að frambjóðendur flokksins hafi unnið sigur í 40 kjördæmum af þeim 45 sem kosið var í. Lýðræðisfylkingin bauð fram í 44 þeirra.

Friðrik stefnir Ólafi fyrir dóm

Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ), hefur stefnt hagfræðingnum Ólafi Arnarsyni fyrir meiðyrði.

Hvorki æskilegt né heppilegt

Ríkisstjórnin lagði fram 50 þingmál á Alþingi í síðustu viku. Frestur til að leggja ný mál fram rann út á laugardag. Þann dag komu 25 mál frá stjórninni.

Rauða torginu í Moskvu lokað

Lögreglan í Rússlandi handtók í gær 55 mótmælendur, sem höfðu komið saman fyrir utan hlið Rauða torgsins í Moskvu til að mótmæla Vladimír Pútín og ríkisstjórn landsins. Rauða torginu var aldrei þessu vant lokað til þess að koma í veg fyrir mótmælin, þannig að ferðamenn komust ekki inn á torgið frekar en aðrir.

Uppreisnarmenn fá stuðning

Fulltrúar um 70 ríkja strengdu þess heit í gær að útvega nokkrar milljónir Bandaríkjadala á mánuði handa uppreisnarmönnum og stjórnarandstæðingum í Sýrlandi. Einnig ætla þeir að útvega þeim samskiptabúnað.

Hótar málsókn vegna atlögu að lögmönnum

„Við erum skyldugir gagnvart lögum að sinna þessu starfi og svo ákveður ríkið þóknunina einhliða. Það er mjög erfitt að sætta sig við það,“ segir Brynjar Níelsson, formaður Lögmannafélags Íslands. Hann krefst þess að hið opinbera leiðrétti kjör lögmanna sem taka að sér verjendastörf í sakamálum, ella komi til greina að fara með málið fyrir dóm.

Göng undir Hringbraut

Úrslit eru fengin í hugmyndasamkeppni Reykjavíkurborgar, Háskóla Íslands og Norræna hússins um umhverfi Vatnsmýrarinnar.

Rak stjórnlaust í sólarhring

Skemmtiferðaskipið Azamara Quest komst til hafnar í Malasíu í gær meira en sólarhring eftir að eldur kom upp í vélarými. Eldurinn kom upp á föstudagskvöld og rak skipið stjórnlaust um hafið í sólarhring með þúsund manns um borð. Fimm manns úr áhöfninni slösuðust.

Þykir eiga góðar líkur á sigri

Khayrat el-Shater, varaformaður Bræðralags múslima, verður í framboði til forseta í Egyptalandi. Forysta samtakanna skýrði frá þessu í gær. Flokkur á vegum Bræðralags múslima náði góðum árangri í þingkosningunum, sem haldnar voru í vetur. Samtökin höfðu ætlað að halda sig til hlés í forsetakosningunum, sem haldnar verða seint í maí.

Fyrir getur komið að fólk breyti gegn betri vitund

Mikilvægt er að skapa menningu sameiginlegrar ábyrgðar innan fyrirtækja. Þetta er mat Dr. Daniel Levin, lögmanns og stjórnarmanns í Íslandsbanka. Levin var ræðumaður á fundi Festu, miðstöðvar um samfélagsábyrgð fyrirtækja, Viðskiptaráðs og Háskólans í Reykjavík fyrir helgi um stjórnunarhætti fyrirtækja.

Mótmæli gegn NATO í Belgíu

Lögreglan í Belgíu handtók í gær um það bil 200 manns sem efndu til mótmæla við höfuðstöðvar Atlantshafsbandalagsins í Belgíu. Fólkið mætti á staðinn til að krefjast kjarnorkuafvopnunar og brotthvarfs herliðs allra aðildarríkja NATO frá Afganistan. Mótmælendurnir reyndu að komast inn fyrir girðinguna, sem er í kringum um höfuðstöðvarnar, en þeim tókst það ekki. Lögreglumenn þurftu að elta marga mótmælendurna góðan spöl áður en þeim tókst að handtaka þá.

Bjuggumst alls ekki við þessu

Úrslitakvöld Músíktilrauna fór fram í Austurbæ á laugardagskvöldið þar sem 10 hljómsveitir komu fram. Sunnlenska sveitin RetRoBot bar sigur úr býtum en hana skipa Daði Freyr Pétursson, Gunnlaugur Bjarnason, Kristján Pálmi Ásmundsson og Guðmundur Einar Vilbergsson.

Ný veröld opnaðist fyrir mér

Helgi Júlíus Óskarsson bjó í Bandaríkjunum í 25 ár og starfaði sem hjartalæknir. Hann gaf út sína fyrstu plötu 52 ára árið 2010, flutti til Íslands og gerði tvær plötur til viðbótar og á nú eitt vinsælasta lag landsins.

Þetta er bara spurning um vilja

Stífar æfingar fyrir Ólympíuleika komu ekki í veg fyrir að Ásdís Hjálmsdóttir útskrifaðist með hæstu einkunn sem gefin hefur verið úr lyfjafræði og uppskar 10 fyrir meistaraverkefni sitt. Hólmfríður Helga Sigurðardóttir komst að því að spjótkastarinn á sé

Erum að komast í tísku aftur

Bandalag íslenskra skáta hlaut samfélagsverðlaun Fréttablaðsins í flokknum Frá kynslóð til kynslóðar. Röksemd: Skátahreyfingin hefur gegnt mikilvægu hlutverki sem valkostur í frístundastarfi barna og ungmenna í hundrað ár.

Fjölskrúðugt lífríki í Reykjavíkurtjörn og draugur á Vestfjörðum

Það voru líklega fjölmargir sem hlupu 1. apríl í dag enda vantaði ekki göbbin í fréttamiðlum á netinu. Þannig mátti finna þjóðlegt og hrollvekjandi gabb á vestfirska fréttavefnum Bæjarins besta. Þar var sagt frá því að ótrúleg ljósmynd hefði náðst á Hótel Núpi í Dýrafirði í sumar, þar sem svo virtist sem yfirnáttúrulegur svipur hefði náðst á filmu. Hótelstjórinn sagðist ekki óttast minnkandi aðsókn og sagði á vefnum:

Ósáttur við evru-sinna í nefnd um framtíð krónunnar

Formaður Framsóknarflokksins furðar sig á að þremur þekktum evrusinnum hafi verið bætt inn í þverpólitíska nefnd sem átti að fjalla um framtíð krónunnar og skipan gjaldmiðlamála á Íslandi. Þar með sé niðurstaða nefndarinnar gefin.

Hef meiri tíma með hestunum

Einar Bollason er einn stofnenda ferðaþjónustufyrirtækisins Íshesta sem fagnaði þrjátíu ára afmæli sínu í gær. Hann lét nýlega af starfi framkvæmdastjóra og sagði Kjartani Guðmundssyni frá áformum sínum, ferlinum í körfunni og erfiðri einangrunarvist.

Segist ekki hafa fallið fyrir aprílgabbi Smugunnar

"Ég hljóp ekkert 1. apríl, það er bara ekki rétt,“ segir Ástþór Magnússon sem hringdi frá Kína þar sem hann skoðar brúðarkjóla þessa dagana en Vísir birti grein fyrr í dag þar sem sagt var frá því að Ástþór hefði fallið fyrir aprílgabbi Smugunnar sem greindi frá því að Páll Magnússon útvarpsstjóri hygðist bjóða sig fram til forseta.

Úr greipum nördanna

Aðstandendur sjónvarpsþáttanna Game of Thrones óttuðust að sverð-sveiflandi lávarðar og eldspúandi drekar myndu aðeins höfða til lítils hóps fantasíu-nörda. Raunin varð önnur. Undir rauðrósóttum rúmgafli tók Sif Sigmarsdóttir tali tvíeykið á bak við þættina og fór vel á með þeim er þau ræddu um væntingarnar og velgengnina. En skyndilega skipaðist veður í lofti.

Vill ákvæði um að svipta fyrirtæki veiðileyfi

Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, sagði í viðtali í Silfri Egils í hádeginu í dag að ef það kæmi í ljós að Samherji hefði brotið gjaldeyrislög, og þannig gengið gegn almannahagsmunum, ætti að svipta félagið veiðileyfi.

Stálu sel úr Húsdýragarðinum og slepptu í Reykjavíkurtjörn

"Okkur er nú ekki skemmt,“ segir Tómas Óskar Guðjónsson, líffræðingur og forstöðumaður Fjölskyldu- og húsdýragarðsins, en óprúttnir aðilar virðast hafa brotist inn í skemmtigarðinn í nótt, stolið þaðan sel og sleppt í Reykjavíkurtjörn.

Tveir hundar drápu kött og fóru hálfir ofan í barnavagn

Tilkynning barst til lögreglunnar í dag um að tveir stórir hvítir hundar hefðu ráðist á kött fyrir utan hús í foldahverfinu í Grafarvogi. Hundarnir hlupu síðan í burtu. Nokkru síðar kom önnur tilkynning um að sömu hundar hefðu farið hálfir ofan í barnavagn skammt frá þar sem þeir réðust á köttinn.

Forsetaframbjóðandi hleypur 1. apríl - Páll ekki á leið í framboð

Það eru eflaust einhverjir sem hafa hlaupið 1. apríl í dag, en einn þeirra er Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi, sem nú býður sig fram í þriðja skiptið til forseta. Þannig sendi hann pistil á alla fjölmiðla landsins fyrr í dag en ástæðan var frétt Smugunnar um að Páll Magnússon útvarpsstjóri hygðist bjóða sig fram til forseta.

Aung San Suu Kyi sögð hafa náð kjöri á þing

Aung San Suu Kyi er sögð hafa ná kjöri á þing í Myanmar, áður Burma, en þær fregnir hafa ekki fengist staðfestar samkvæmt fréttaveitu AP. Það er stjórnmálaflokkur Suu Kyi sem heldur því fram að hún hafi komist á þing, sem yrði þá stærsti pólitíski sigur ferils hennar. Hún kæmist þar með á þing í fyrsta skiptið.

Leikskólakennarar stefna Reykjavíkurborg

Félag leikskólakennara mun nú í byrjun mánaðar höfða mál á hendur Reykjavíkurborg vegna niðurfellingar neysluhlés kennarana. Getum ekki sætt okkur við þetta segir formaður félagsins.

Færeyskur línubátur gripinn við ólöglegar veiðar

Landhelgisgæslan stóð í gær færeyskan línubát að meintum ólöglegum veiðum inni í reglugerðarhólfi suðaustur af landinu. Skipinu hefur verið vísað til hafnar þar sem lögregla mun taka skýrslu af skipstjóra. Annars sinnir Landhelgisgæslan almennu eftirliti þessa stundina.

Íslendingar handteknir í óeirðum í Árósum

Fimm af þeim 89 sem voru handteknir í róstunum í Árósum í gær verða leiddir fyrir dómara í dag. Þeir eru sakaðir um ofbeldi í garð lögreglu. Tveir Íslendingar voru meðal hinna handteknu.

Segir veiðigjaldið í raun byggðarskatt

Jón Bjarnason, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, segist vera afar ósáttur við að dregið hafi verið úr byggðastefnu í nýju frumvarpi til laga um stjórn fiskveiða sem hann líkir við lestarslys. Þá segist hann ósáttur við nýja hugmyndafræði og að allt veiðigjaldið renni til ríkisins. Veiðigjaldið sé í raun landsbyggðaskattur.

Innbrot og nágrannaerjur á borði lögreglu

Brotist var inn í íbúðarhús í Hafnarfirði í nótt. Innbrotsþjófurinn spennti upp opnanlegt lausafag í glugga og voru stormjárn brotin. Hann fór svo inn í herbergi og stal þaðan fartölvu og hleðslutæki.

Eigandi skíðanna fundinn

Hún er heiðarleg konan sem hafði samband við fréttastofu í gær en hún sá þegar skíði féllu af toppi jeppabifreiðar á Borgarnesbrúnni. Bifreiðin var á leiðinni norður í land, og átti ökumaðurinn það eitt eftir að uppgötva að skíðin væru týnd.

Skorað á Davíð að bjóða sig fram til forseta

Hópur fólks þrýstir nú á Davíð Oddsson fyrrverandi forsætisráðherra og seðlabankastjóra að gefa kosta á sér til forseta. Frá þessu er greint í Viðskiptablaðinu. Davíð mun enn sem komið er ekki hafa svarað þeim áskorunum.

Vel heppnuð jarðarstund - ökumenn keyrðu hægar

Jarðarstundin svokallaða heppnaðist mjög vel í miðborg Reykjavíkur en götuljósin í miðborginni voru ekki kveikt fyrr en klukkan 21.35. Öll lýsing var takmörkuð og slökkt var á nokkrum áberandi byggingum sem iðulega eru upplýstar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá borginni.

Þyngri börn fá síður háþrýsting

Lág fæðingarþyngd spáir fyrir um hækkun á blóðþrýstingi í 9 og 10 ára gömlum íslenskum börnum. Þetta var meðal þess sem nýverið var kynnt á rannsóknarráðstefnu deildarlækna Lyflækningasviðs LSH.

Kosningar í Myanmar í dag

Aung San Suu Kyi, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Myanmar, sem hét áður Burma, er í framboði til þingsins í landinu í aukakosningum sem þar fara fram í dag. Kosið verður um fulltrúa í 45 þingsæti og hafa erlendir fjölmiðlar fengið meiri aðgang að landinu en nokkru sinni fyrr til að fylgjast með kosningunum.

Flest skíðasvæði landsins opin

Skíðasvæðin eru víða opin í dag, þar á meðal í Hlíðarfjalli, á Siglufirði og í Bláfjöllum. Í Hlíðarfjalli og á Siglufirði er opið til klukkan fjögur en til klukkan fimm í Bláfjöllum.

Sjá næstu 50 fréttir