Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ólafur sendi nýjum forseta Finnlands kveðju frá þjóðinni Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sendi í dag nýkjörnum forseta Finnlands, Sauli Niinistö, hamingjuóskir frá íslensku þjóðinni. Í kveðjunni minnti Ólafur Ragnar á trausta og langvarandi vináttu Finna og Íslendinga, þjóða sem báðar tilheyrðu hinni norrænu fjölskyldu. Í tilkynningu frá embættinu segir að Ólafur hafi jafnframt bent á að málefni Norðurslóða væru sameiginlegt hugðarefni þjóðanna sem hafa mundi sívaxandi þýðingu á komandi áratugum. 6.2.2012 17:50
Morð í Hafnarfirði - einn í haldi lögreglu Karl á þrítugsaldri er í haldi lögreglunnar, grunaður um manndráp samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 6.2.2012 16:44
Auka þvinganir gegn Íran Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, ákvað í dag að allar eigur íranska ríkisins í Bandaríkjunum skuli frystar. Þannig hefur Obama sett harðari þvinganir á írönsk stjórnvöld, þar með talið seðlabankann. 6.2.2012 16:25
Stal lunda og fór með hann á Lundann Um helgina var lögreglunni í Vestmannaeyjum tilkynnt að uppstoppuðum lunda hafi verið stolið af skemmtistaðnum Conero. Þetta kemur fram á vefnum Eyjarfréttir.is 6.2.2012 16:24
Bandaríska sendiráðinu í Sýrlandi lokað Bandaríkjamenn hafa lokað sendiráði sínu í Sýrlandi þar sem ekkert lát virðist vera á óöldinni sem þar ríkir. CNN fréttastofan hefur eftir starfsmanni utanríkisráðueytisins að sýrlensk yfirvöld hafi neitað að verða við óskum um aukna öryggisgæslu við sendiráðið og því hafi verið ákveðið að senda allt starfsliðið heim. 6.2.2012 15:35
Lilja kynnir nýtt stjórnmálaafl - hvorki til vinstri né hægri Lilja Mósesdóttir hefur formlega stofnað nýtt stjórnmálaafl en framboðið mun bjóða fram í öllum kjördæmum landsins samkvæmt tilkynningu frá Lilju. Sjálf sagði Lilja sig úr þingflokki Vinstri grænna fyrir um ári síðan ásamt Atla Gíslasyni. Síðar sögðu þau sig formlega úr flokknum sjálfum. 6.2.2012 15:32
Sýknaður af því að misnota bróðurdóttur sína - málið fyrnt Karlmaður var sýknaður af því að hafa misnotað dóttur bróðir síns ítrekað árin 1990 til 1996 þegar stúlkan var sex til þrettán ára gömul, í Héraðsdómi Vesturlands í síðustu viku. 6.2.2012 15:25
Átt þú þessa skartgripi? Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú eigenda skartgripa sem eru í hennar vörslu. Gripirnir sjást á meðfylgjandi mynd og einnig er leitað að eiganda snyrtivara sem sjást líka á myndinni. 6.2.2012 15:25
Stjórnarmeirihlutinn jókst um einn mann Stjórnarmeirihlutinn styrktist um einn mann í dag þegar Arndís Soffía Sigurðardóttir, þingmaður VG, tók sæti sem varamaður Atla Gíslasonar þingmanns á Alþingi. Ólíkt Atla, sem hefur yfirgefið þingflokk VG, styður Arndís Soffía stjórnarmeirihlutann. Því má segja að meirihlutinn hafi styrkst tímabundið um einn mann. Ríkisstjórnin verður því með 33 manna meirihluta næsta hálfa mánuðinn í stað 32 eins og venja er þegar Atli Gíslason er á þingi. 6.2.2012 14:36
Leikskólakennarar gáfu sveitarfélögum tæpar 400 þúsund Haraldur F. Gíslason, formaður Félags Leikskólakennara, afhenti í dag Halldóri Halldórssyni, formanni Sambands sveitarfélaga, risaávísun að andvirði 363 þúsund krónur. Peningurinn er afrakstur söfnunar sem leikskólakennarar efndu til með styrktartónleikum fyrir sveitarfélögin vegna kjarabaráttu sinnar. Ávísunin er afhent í tilefni þess að í dag er Dagur leikskólans. 6.2.2012 14:14
Jón tapaði fyrir Persónuvernd - þarf að greiða 100 þúsund í málskostnað Máli Jóns Magnússonar, hæstaréttarlögmanns og fyrrverandi þingmanns, gegn Persónuvernd var vísað frá Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Ástæðan var sú að Jón gat ekki sýnt fram á að hann ætti lögvarðra hagsmuna að gæta í málinu. 6.2.2012 14:09
Sjá gjaldtöku ekki sem lausn "Þetta er ekki lausn á málinu og við höfum ekki hugsað út í þetta á þennan hátt," segir Gunnar Stefánsson, sviðsstjóri björgunar- og slysavarnarsviðs hjá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg, um hugmyndir Ólínu Þorvarðardóttur vegna tryggingamála í tengslum við bíla sem sitja fastir í snjósköflum og ófæru. 6.2.2012 13:44
Breivik segir gjörðir sínar ekki vera refsiverðar Anders Behring Breivik, fjöldamorðinginn í Útey og Osló, neitar því að gjörðir hans séu refisverðar. Þetta sagði hann þegar að hann mætti fyrir rétt í Osló í dag. Hann var færður í dómhúsið í handjárnum í fylgd tveggja lögreglumanna. Eins og kunnugt er, gengst Breivik við því að hafa orðið 77 manns að bana þann 22. júlí síðastliðinn. 6.2.2012 13:12
Tvö fyrirtæki nota Skráargatið Að minnsta kosti tvö matvælafyrirtæki hér á landi hafa ákveðið að taka upp hollustumerkið Skráargatið á völdum vörum. Þó er ekki búið að innleiða merkið formlega hér á landi. 6.2.2012 14:00
Árásum á Homs haldið áfram Stjórnarherinn í Sýrlandi hefur í dag haldið áfram árásum á borgina Homs og fleiri borgir sem hafa verið vígi mótmælenda í landinu síðustu mánuði. Að minnsta kosti fimmtíu hafa fallið í Homs í dag að því er Sky fréttastofan hefur eftir mótmælendum í borginni. Árás hersins er viðamikil og hafa hermennn látið til skarar skríða í tólf hverfum á sama tíma. 6.2.2012 13:38
Segir fráleitt að AGS hafi lagt til lokun menningarstofnana Franek Rozwadowski fastafulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íslandi vísar því alfarið á bug að sjóðurinn hafi á sínum tíma gert tillögu um að loka ríkisreknum menningarstofnunum í sparnaðarskyni. 6.2.2012 12:19
Réttað yfir fyrrverandi garðyrkjustjóra Orkuveitunnar Aðalmeðferð stendur nú yfir í máli Kristins H. Þorsteinssonar, fyrrverandi garðyrkjustjóra hjá Orkuveitu Reykjavíkur, sem var ákærður af sérstökum saksóknara fyrir fjárdrátt. 6.2.2012 11:59
Eyjafjallajökull fyrir Evrópudómstólinn Evrópudómstóllinn í Lúxemborg mun í þessari viku fella úrskurð í mikilvægu máli sem snýst um viðskiptavin Ryanair flugfélagsins og bætur henni til handa. Eldgosið í Eyjafjallajökli árið 2010 spilar stóra rullu í málinu en niðurstaða dómstólsins gæti haft gríðarleg áhrif á flugrekstur í framtíðinni komi til þess að lofthelgi verði lokað sökum náttúruhamfara á borð við eldgos. 6.2.2012 11:59
Svaf fyrir framan Ráðhúsið í Þorlákshöfn - vildi spara pening Lögreglan á Selfossi sinnti heldur sérkennilegu útkalli í nótt. Þeim barst tilkynning um mann með svefnpoka sem væri að leggja sig til við Ráðhúsið í Þorlákshöfn. 6.2.2012 11:44
Þyrlan farin í loftið - veður frekar slæmt Þyrla Landhelgisgæslunnar er farinn í loftið til þess að sækja breskan ferðmann sem slasaðist á göngu sinni frá Laugafelli suður í Nýjadal eða Sprengisandsleið eins og gönguleiðin er að jafnan kölluð. 6.2.2012 11:36
Elísabet hefur verið sextíu ár í hásætinu Sextíu ár eru liðin í dag frá því Elísabet Englandsdrottning tók við bresku krúnunni við andlát föður hennar. Í tilefni dagsins sendi hún frá sér yfirlýsingu þar sem hún segist vilja þjóna þjóð sinni áfram. Áfanganum verður fagnað með margvíslegum hætti út þetta ár og hyggur drottningin á mikil ferðalög um breska samveldið til að hitta sem flesta þegna sína. 6.2.2012 11:19
Hugsanlegt að björgunarsveitir taki gjald fyrir aðstoð í ófærð Ólína Þorvarðardóttir alþingismaður og björgunarsveitamaður segir að Slysavarnafélagið Landsbjörg verði að fara að íhuga hvort skynsamlegt yrði að taka gjald fyrir þjónustu sem veitt er þegar bílar eru dregnir út úr snjósköflum og ófærum. Fréttablaðið greinir frá því í dag að björgunarsveitir beri ábyrgð á skemmdum sem verða við þessar aðstæður. Sveitirnar þurfi að borga á annað hundrað þúsund krónur fyrir hvern bíl sem skemmist, ákveði eigandi bílsins að sækja rétt sinn til tryggingarfélagsins. 6.2.2012 11:02
Sækja slasaðan ferðamann á hálendið - þyrla gæslunnar ræst út Lögreglan á Húsavík fékk tilkynningu í morgun um slasaðan ferðamann frá Bretlandi. Hann var að ganga frá Laugafelli suður í Nýjadal samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni og er einn á ferð. 6.2.2012 10:50
Fyrrverandi hjákona Kennedys leysir frá skjóðunni Mimi Alford, ein af fyrrverandi hjákonum John F. Kennedy, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, hefur birt nýjar upplýsingar um samband þeirra í bók sem hún skrifaði. Útdrættir úr bókinni, sem ber titilinn Once Upon a Secret, eða Gamalt leyndarmál, lýsa náum kynnar Alford og forsetans þegar hún var lærlingur í Hvíta húsinu. Í bókinni lýsir hún líka viðbrögðum forsetans þegar Patrick, sonur hans lést. Í bókinni er jafnframt fjallað um sögusagnir um lyfjaneyslu forsetans. Samkvæmt frásögn Alford stóð samband hennar við forsetann yfir í átján mánuði. 6.2.2012 10:05
Madonna gerði allt vitlaust á Super Bowl Super Bowl leikurinn fór fram í nótt en þar er um að ræða einn stærsta íþróttaviðburð sem fram fer í Bandaríkjunum ár hvert. Tónlistaratriðin í hálfleik eru yfirleitt í glæsilegri kantinum og í gegnum tíðina hafa flestar skærustu poppstjörnur heims komið fram á leiknum. 6.2.2012 10:02
Forsætisráðherra Rúmeníu segir af sér Emil Boc forsætisráðherra Rúmeníu hefur sagt af sér. Í yfirlýsingu segir hann að með því vonist hann til að lægja öldurnar sem risið hafa vegna hagræðingar og niðurskurðar stjórnar hans á fjármálum hins opinbera. 6.2.2012 09:52
Veðrið kom niður á stundvísinni Þrjár af hverjum fjórum flugferðum Icelandair til og frá landinu voru á réttum tíma á seinni hluta janúarmánaðar. Hjá Iceland Express var hlutfallið 57 prósent. Í mínútum talið voru tafir lengri nú að meðaltali en undanfarin tímabil og munar þar mestu um að öllu morgunflugi frá Keflavíkurflugvelli var seinkað fram yfir hádegi þann 26. janúar. 6.2.2012 09:31
Þung stórskotahríð dynur á íbúum Homs Þung stórskotahríð dynur nú aftur á íbúum borgarinnar Homs í Sýrlandi. Að sögn fréttamanns BBC sem er á staðnum heyrast sprenginar á 30 sekúndna fresti í borginni. 6.2.2012 07:38
Rannsaka færi á nýtingu sjávarorku Fjármagn verður sett í rannsóknir á umfangi og nýtingarmöguleikum sjávarorku á Íslandi, verði þingsályktunartillaga sem lögð var fram á föstudag samþykkt. Tuttugu og einn þingmaður í öllum flokkum standa að tillögunni og verður því að teljast líklegt að hún verði samþykkt. 6.2.2012 07:00
Meirihlutaviðræður halda áfram í Kópavogi Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Kópavogslistans ætla að halda áfram meirihlutaviðræðum í dag, eftir fundahöld í gær. 6.2.2012 06:58
Stöðvaði kappakstur á Kringlumýrarbraut Lögreglan stöðvaði tvo unga ökumenn samtímis og báða á jafn miklum hraða á Kringlumýrarbraut upp úr miðnætti. 6.2.2012 06:56
Vinnuslys í Straumsvík Starfsmaður í álverinu í Straumsvík slasaðist í gærkvöldi þegar hann ók lyftara utan í stólpa við höfnina. 6.2.2012 06:55
Síðasta norska loðnuskipið siglir heim Síðasta norska loðnuskipið hélt út úr íslenskri lögsögu áleiðis til Noregs í gær, þar sem Noðrmenn eru búnir með loðnukvóta sinn við Ísland á þessari vertíð. 6.2.2012 06:52
Öflugur jarðskjálfti við Filippseyjar Öflugur jarðskjálfti sem mældist 6,8 stig á Richter skók Filippseyjar í nótt. Upptök skjálftans voru á hafsbotni um 70 kílómetra undan ströndum eyjarinnar Negros. 6.2.2012 06:50
Erlend kona í hrakningum í Hvalfirði Björgunarsveitarmenn frá Akranesi komu hrakinni erlendri konu á fertugsaldri til aðstoðar í Hvalfirði í nótt. 6.2.2012 06:47
Leiguþyrla Gæslunnar komin til Reykjavíkur Björgunarþyrlan, sem Landhelgisgæslan hefur tekið á leigu á meðan TF LÍF er í stórri skoðun ytra, kom til Reykjavíkur í gærkvöldi. 6.2.2012 06:40
Óttast um afdrif rússneskra vísindamanna á Suðurpólnum Ekkert hefur heyrst frá hópi rússneskra vísindamanna í eina viku en þeir eru við rannsóknir á Suðurpólnum. Menn hafa miklar áhyggjur af afdrifum þessa hóps en markmið hans var að ná sýnum úr dularfyllsta stöðuvatni heimsins. 6.2.2012 06:37
Sauli Niinisto hreppti hnossið Sauli Niinisto, íhaldssamur Evrópusinni, bar sigur úr býtum í seinni umferð forsetakosninganna í Finnlandi í gær. Hann fékk 63 prósent atkvæða og tekur því við af Tarja Halonen, sem gegnt hefur embættinu í tvö kjörtímabil, samtals tólf ár, við miklar vinsældir. 6.2.2012 06:30
Mótmælir því að hafa fjárfest án rannsóknar Helgi Magnússon,formaður stjórnar Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, segir tjón lífeyrissjóðanna við hrunið auðvitað tilfinnanlegt. Mikilvægt sé hins vegar að miða við tímann frá hruni. Þá sé heildarrýrnunin um 380 milljarðar króna en ekki 480 milljarðar. 6.2.2012 06:00
Löggur flytja vegna hótana Allir 2.500 lögreglumennirnir í landamæraborginni Ciudad Juarez í Mexíkó hafa verið fluttir frá heimilum sínum vegna hótana frá glæpahópum. 6.2.2012 05:30
Sex líffæri grædd í litla stúlku Níu ára gömul stúlka frá Maine í Bandaríkjunum er á batavegi eftir að hafa gengist undir sexfalda líffæraígræðslu vegna krabbameins. Hún er að öllum líkindum fyrsta manneskjan til að fá vélinda grætt í sig. 6.2.2012 05:00
Hægt að tuttugufalda orkuna Valdimar Össurarson rekur fyrirtækið Valorku sem hefur hannað samnefndan sjávarhverfil. Hann fékk í október fyrstu verðlaun í keppni Alþjóðasamtaka félaga hugvitsmanna, IIA, fyrir hverfilinn. Valorka stefnir að því að virkja hæga strauma sem eru í röstum og við annes. 6.2.2012 05:00
Innilokuð þorp vegna fannkófs Þyrlur voru notaðar til að koma mat og öðrum nauðsynjum til þorpa á fjalllendum svæðum Bosníu, þar sem fannfergi hefur lokað öllum landvegum. 6.2.2012 04:30
Dýrt að valda tjóni við björgun Björgunarsveitir bera ábyrgð á skemmdum sem verða á bílum sem draga þarf úr snjósköflum og ófærum. Sveitirnar þurfa að borga á annað hundrað þúsund krónur fyrir hvern bíl sem skemmist, ákveði eigandi bílsins að sækja rétt sinn til tryggingarfélagsins. 6.2.2012 04:00
Segir neitun Rússa skrípaleik Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hvetur „vini lýðræðislegs Sýrlands“ til þess að standa saman gegn Bashar al-Assad Sýrlandsforseta. 6.2.2012 03:45