Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
SOPA dregið til baka SOPA frumvarpið sem snýst um höfundavarnir á efni á Internetinu, hefur verið tekið út úr fulltrúadeild Bandaríkjaþings. Lamar Smith, fulltrúadeildarþingmaðurinn, sem lagði frumvarpið fram tilkynnti þetta í gærkvöld. Hann vill ná meiri sátt um málið áður en það fer lengra. 21.1.2012 16:05
Greiddu atkvæði um allt annað en Geir Haarde Það eru sterkar tilfinningar sem berast í brjósti þeirra sem sæti eiga á Alþingi Íslendinga eftir atburði gærdagsins. Þá felldi Alþingi frávísunartillögu sem lögð hafi verið fram á tillögu Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, um að fella niður málshöfðun gegn Geir Haarde niður. 21.1.2012 15:33
Vilja stækka griðasvæði hvala Þrír þingmenn hafa lagt til að griðasvæði hvala í Faxaflóa verði stækkað frá Eldey að ysta odda Snæfellsness. Þá verði jafnframt tryggt griðasvæði hvala fyrir Norðurlandi þar sem hvalaskoðun sé vaxandi atvinnugrein. Þá vilja þingmennirnir jafnframt að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra setji heildstæðar reglur um framkvæmd og skipulag hvalaskoðunar. 21.1.2012 13:37
Guðfríður sakar forsætisráðherra um hótanir Svo virðist sem lærdómurinn sem margir hafa kosið að draga af hruninu sé í besta falli að skapa ný formerki fyrir sömu vinnubörgðin,“ sagði Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingmaður VG, þegar hún rökstuddi þá ákvörðun sína í gær að greiða atkvæði gegn tillögu um að vísa frá tillögu Bjarna Benediktssonar um að fella málshöfðun Alþingis gegn Geir Haarde niður. 21.1.2012 12:04
Skrif Hallgríms ollu þungu áfalli Dóttir Brynhildar Georgíu Björnsson, sem Hallgrímur Helgason byggir aðalpersónuna í nýjustu skáldsögu sinni á, segist hafa orðið fyrir þungu áfalli þegar hún las bókina í september á síðasta ári. Brynhildur var barnabarn Sveins Björnssonar, fyrsta forseta íslenska lýðveldisins, en hún mun hafa sagt Hallgrími sögur af sér og fjölskyldu sinni áður en hún lést árið 2008. Í bókinni, sem ber titilinn Konan við 1000° byggir Hallgrímur söguna að einhverju leyti á frásögnum hennar en skáldar jafnframt í eyðurnar. 21.1.2012 10:58
Evrópustofa tekur til starfa Evrópustofa - upplýsingamiðstöð ESB á Íslandi hefur tekið til starfa að Suðurgötu 10 í Reykjavík. Af því tilefni verður opið hús á Suðurgötunni, laugardaginn 21. janúar, frá kl. 11-16 og eru allir velkomnir. Upplýsingamiðstöðin verður opin sex daga vikunnar en markmiðið með starfsemi hennar er að auka skilning og þekkingu á ESB og hvetja til virkrar umræðu um kosti og galla mögulegrar aðildar Íslands að sambandinu. Timo Summa, sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi, og Oddný G. Harðardóttir fjármálaráðherra verða viðstödd opnun Evrópustofu í dag. 21.1.2012 10:19
Óttast að hryðjuverkamenn gætu nýtt sér fuglaflensuna Vísindamenn, sem hafa búið til mun banvænna afbrigði af fuglaflensu en það sem þegar er til, hafa hætt tilraunum sínum af ótta við að hryðjuverkamenn geti nýtt sér afraksturinn. Margir höfðu gagnrýnt rannsóknina og óttuðust áhrif þess að birta hana. 21.1.2012 10:08
Tók ekki eftir nagla í heilanum Karlmaður í Chicago slapp ómeiddur eftir að hann skaut rúmlega átta sentimetra stórum nagla úr naglabyssu í heilann á sér á miðvikudaginn. Hann tók ekkert eftir að naglinn væri í heilanum fyrr en læknar sögðu honum af því daginn eftir. Maðurinn, sem er 34 ára og heitir Dante Autullo, var á verkstæði sínu þegar óhappið varð. 21.1.2012 10:01
Birgitta: Svartur dagur í sögu lýðræðisins "Svartur dagur í sögu lýðræðis okkar,“ sagði Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, á fésbókarsíðu sinni strax að lokinni atkvæðagreiðslu á Alþingi í gær. Þar var felld tillaga um að vísa frá tillögu Bjarna Benediktssonar um að draga málshöfðun gegn Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, til baka. 21.1.2012 09:32
Hnífamaður á Barónsstíg og flöskuárás í Austurstræti Maður var handtekinn eftir að hann hafði verið að þvælast með hníf í 10/11 á Barónsstíg, sem hann var að sýna starfsmönnum. Hann ógnaði engum með hnífnum. Aftur á móti yfirgaf hann verslunina með vörur í vösunum sem hann hafði ekki greitt fyrir. . Maðurinn mun hafa verið ölvaður en hann gistir nú fangageymslur og verður yfirheyrður þegar af honum rennur áfengisvíman. 21.1.2012 09:15
Norræn bros í þrot með tannígræðslur Tannlæknastofunni Nordic Smile var lokað eftir fárra mánaða rekstur. Leita fjárfesta og stefna að því að opna á ný. Samningaviðræður standa yfir við Höfðatorg vegna ógreiddrar leigu. Seljandi tannlæknastóla bjargaði sér fyrir horn. 21.1.2012 07:30
Nauðgunarmál sjaldan fyrir dóm Líklegra er að menn séu dæmdir fyrir nauðgun ef þeir eru útlendir og ókunnugir. Sakfellingar ýta undir staðalímyndir sem reynt hefur verið að útrýma. Fjögur prósent kæra eru talin fölsk. 21.1.2012 07:00
Lestarsamgöngur verði ekki útilokaðar Borgarráð Reykjavíkur lagði til á fundi sínum á fimmtudag að möguleikar á lestartengingu milli Keflavíkurflugvallar og höfuðborgarsvæðisins verði tryggðir í aðalskipulagi Reykjavíkur og svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins. 21.1.2012 07:00
Bjóða Oddnýju til opins fundar á ný Foreldrar barna í Hamraskóla í Grafarvogi hafa ítrekað boð til Oddnýjar Sturludóttur, formanns skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar, um að mæta á opinn fund í skólanum og ræða fyrirhugaðar breytingar á skólastarfi. Fundurinn er áætlaður á fimmtudaginn eftir viku. 21.1.2012 06:15
Bankar ættu að fá mismunandi leyfi Á meðan sum ríki Evrópu standa fyrir utan evrusamstarfið ganga markmið Evrópusambandsins (ESB) um sömu leikreglur fyrir öll fjármálafyrirtæki ekki upp. Þetta er meðal þess sem fram kom í erindi Más Guðmundssonar seðlabankastjóra á fyrsta fundi ársins í Evrópufundaröð Alþjóðamálastofnunar HÍ í gær. 21.1.2012 06:15
Aldrei sést fleiri hafernir á svæðinu en í ár Árleg talning vetrarfugla, sem er nýlokið, sýnir mikið og fjölskrúðugt fuglalíf á norðanverðu Snæfellsnesi. Á talningasvæðunum nú voru 29 þúsund fuglar af 39 tegundum. 21.1.2012 06:00
Flestir fengu inni í skóla að eigin vali Samkvæmt nýaflögðu innritunarkerfi framhaldsskóla fengu 98 prósent nemenda inni í öðrum hvorum þeirra skóla sem þeir völdu. Stefnt er að því að kynna nýtt bráðabirgðafyrirkomulag í næsta mánuði. 21.1.2012 06:00
Frávísun felld eftir langar umræður Þingmenn ræddu tillögu um afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde fram á kvöld í gær. Lagt var til að henni yrði vísað frá og niðurstaða lá ekki ljós fyrr en í gærkvöldi. Frávísunartillagan var felld með 31 atkvæði gegn 29. Tekist var á um lagatúlkanir og hvort ný efnisleg rök hefðu komið fram. 21.1.2012 05:45
Heiðraður 70 árum eftir björgunarafrek Magnús Pálsson frá Veturhúsum í Eskifirði tók við viðurkenningu frá bresku ríkisstjórninni í gær fyrir einstakt björgunarafrek. Hann og nánasta fjölskylda bjargaði 48 breskum hermönnum frá bráðum bana í aftakaveðri í janúar 1942. 21.1.2012 05:45
Neytiri bjargaði konu úr bílflaki Avatar-stjarnan Zoe Saldana kom konu til bjargar í Suður-Kaliforníu í dag. Konan hafði lent í hörðum árekstri og var föst í bíl sínum. 20.1.2012 23:15
Tónleikar í minningu Amy Winehouse Mitch Winehouse, faðir söngkonunnar heitnu Amy Winehouse, hefur tilkynnt að minningartónleikar verði haldnir til heiðurs söngkonunni. Amy Winehouse lést í sumar aðeins 27 ára að aldri. 20.1.2012 22:00
Atkvæðagreiðslan á Alþingi: Svona greiddu þingmenn atkvæði Atkvæðagreiðslan á Alþingi í kvöld, um þá tillögu fjögurra þingmanna að vísa frá tillögu Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, um að ákæran á hendur Geir H. Haarde verði felld niður, fór þannig að 31 þingmaður sagði nei, 29 já og þrír voru fjarverandi. 20.1.2012 21:54
Vonandi líkar ykkur eigið meðal! Tölvuþrjótasamtökin Anonymous réðust á vefsíður opinberra stofnanna í Bandaríkjunum í dag. Skemmtanaiðnaðurinn þar í landi varð einnig fyrir árásum. 20.1.2012 21:28
Tillagan um frávísun felld: 31 - 29 Alþingi felldi nú rétt í þessu tillögu um að vísa frá tillögu Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, um að ákæra á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, verði dregin til baka og Landsdómsmálið þar með. Atkvæðagreiðslan fór þannig að 31 þingmaður greiddi atkvæði gegn henni en 29 voru henni fylgjandi. Þrír voru fjarverandi. 20.1.2012 21:26
"Napóleónland" mun rísa í Frakklandi Franskur athafnamaður hefur hannar skemmtigarð tileinkaðan Napóleón. Þar munu fjölskyldur taka þátt í endurskapa orrustuna við Waterloo. 20.1.2012 21:03
Auðir stólar á Alþingi þegar landsleikur stóð sem hæst Það var fámennt í Þingheimi þegar leikur Íslands og Slóveníu fór fram í dag. 20.1.2012 20:37
Skrökva nær sínu fram og ákveður að hætta Skrökva, félag flokksbundinna framapotara, var lögð niður við hátíðlega athöfn fylkingarinnar í dag. Fylkingin telur sig hafa náð fram helstu markmiðum sínum í stúdentapólitíkinni og sér því grundvöll fyrir áframhaldandi starfsemi á því sviði. 20.1.2012 20:26
Geðheilsa Hallgerðar og Bergþóru rannsökuð Brennu-Njáls saga væri ekki næstum því jafn skemmtileg ef aðalsöguhetjurnar hefðu fengið viðeigandi meðferð við geðveilu sinni að mati læknis sem hefur greint flestar söguhetjur Íslendingasagnanna með persónuleikaraskanir af einhverju tagi. 20.1.2012 20:05
Windows Phone verður vinsælla en iOS 2015 Windows Phone, nýjasta stýrikerfi Microsoft, mun veita iOS stýrikerfi Apple harða samkeppni á næstu árum. Sérfræðingar hjá vefsíðunni iSuppli segja að Windows Phone verði næsta stærsta stýrikerfi veraldar árið 2015. 20.1.2012 19:45
Höfum bolmang til að takast á við stórslys við strendur Íslands Rögnvaldur Ólafsson hjá Almannavarnardeild Ríkislögreglustjóra segir að Ísland vel undirbúið til að takast á við stórslys líkt og átti sér stað undan vesturströnd Ítalíu þegar skemmtiferðaskipið Costa Concordia strandaði. 20.1.2012 19:30
Etta James látin Söngkonan Etta James lést í dag. Hún er af mörgum talin ein hæfileikaríkasta sálarsöngkona allra tíma og tók þátt í mótun tónlistarstefnunnar. 20.1.2012 19:30
Aðilar vinnumarkaðarins staðfesta kjarasamninga Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins telur að mörg fyrirtæki þurfi að beita verðhækkunum og hagræðingu til að eiga fyrir launahækkunum um næstu mánaðamót. Aðilar vinnumarkaðarins staðfestu kjarasamninga í dag þrátt fyrir bullandi óánægju með frammistöðu ríkisstjórnarinnar í atvinnumálum. 20.1.2012 19:15
Skora á Ólaf Ragnar að bjóða sig fram aftur Vefsíða þar sem skorað er á Ólaf Ragnar Grímsson að bjóða sig fram aftur til embættis forseta Íslands var opnuð formlega í dag. Forsvarsmenn síðunnar gera sér vonir um að safna hátt í fimmtíu þúsund undirskriftum. 20.1.2012 19:06
"Frávísunartillagan hefur veikt ríkisstjórnina" Stefanía Óskarsdóttir, stjórnmálafræðingur, telur að frávísunartillaga Bjarna Benediktssonar hafi veikt ríkisstjórnina. 20.1.2012 18:51
Gera ekki kröfu um bæjarstjórastólinn "Það var eitt af megin kosningaloforðum Y-listans að ráða faglegan bæjarstjóra og við munum virða það," segir Ármann Kr. Ólafsson, oddviti sjálfstæðismanna í Kópavogi, aðspurður hvort þeir muni gera kröfu um bæjarstjórastólinn. Þeir hófu formlegar viðræður við Næst besta flokkinn og Y-lista - Lista Kópavogsbúa, í dag. 20.1.2012 16:56
Júlli í draumnum dæmdur í 12 mánaða fangelsi Júlíus Þorbergsson, eða Júlli í Draumnum eins og hann er að jafnan kallaður, var dæmdur í 12 mánaða fangelsi í héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir brot gegn lyfjalögum, tóbaksvarnalögum, fíkniefnalögum og almennum hegningarlögum. 20.1.2012 16:50
Árni Páll vill greiða atkvæði um tillögu Bjarna Árni Páll Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, vill að tillaga Bjarna Benediktssonar um að afturkalla ákæru á hendur Geir H. Haarde, verði sett á dagskrá og hún afgreidd með atkvæðagreiðslu. 20.1.2012 16:23
Stuðningsmenn Ólafs Ragnars opna heimasíðu Opnuð hefur verið vefsíða til stuðnings Ólafi Ragnari Grímssyni, og hann hvattur til þess að bjóða sig aftur fram sem forseti Íslands. 20.1.2012 15:51
Mokað um helgina og hverfastöðvar opnar Hverfastöðvar og símaver Reykjavíkurborgar verða með vaktir yfir helgina milli kl. 10:30 - 15:00 bæði laugardag og sunnudag. Íbúar geta sótt sand og salt á hverfastöðvarnar og símaver veitir upplýsingar og tekur við ábendingum í síma 411 11 11. Þetta kemur fram í tilkynningu frá borginni. 20.1.2012 15:50
Hróp gerð að þingmanni: „Hlustaðu á þjóðina!“ Áhorfanda á pöllum Alþingis var vísað út af öryggisgæslu þingsins eftir að sá sami gerði hróp að þingmanni Sjálfstæðisflokksins, Ólöfu Nordal. Sá hrópaði: „Hlustaðu á þjóðina.“ 20.1.2012 15:28
Umferðarstofa hvetur bílstjóra stærri bíla til þess að nota keðjur Umferðarstofa hvetur bílstjóra stærri bíla, sem annast fólks- eða vöruflutninga, til að búa ökutækin sem best fyrir erfiða vetrarfærð. 20.1.2012 14:47
Afturköllun málshöfðunar rædd á þingi Tillaga Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokksins þess efnis að Alþingi afturkalli málshöfðun á hendur Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra fyrir Landsdómi verður tekin til fyrri umræðu í dag. Þingfundur hefst klukkan hálfellefu og er þetta eina málið á dagskrá. Hér á Vísi getur þú fylgst með í beinni. 20.1.2012 10:22
Sigurður Árni í biskupsframboð Dr. Sigurður Árni Þórðarson, Neskirkjuprestur, hefur ákveðið að bjóða sig fram til biskupsþjónustu. Í yfirlýsingu sem Sigurður sendi frá sér í dag segir að hann muni beita sér fyrir breytingum og eflingu þjóðkirkjunnar. 20.1.2012 15:45
Kjarasamningarnir halda Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands hafa ákveðið að nýta ekki uppsagnarákvæði kjarasamninga hinn 31. janúar næstkomandi. Þetta segir í yfirlýsingu þeirra beggja og segir þar að þetta hafi verið ákveðið „þrátt fyrir að stjórnvöld hafi ekki efnt fyrirheit sem gefin voru í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamningana 5. maí 2011.“ 20.1.2012 15:35
Meirihlutaviðræður hafnar í Kópavogi Viðræður eru hafnar milli bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Næst besta flokksins og Lista Kópavogsbúa um myndun meirihluta í Kópavogi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá oddvitum flokkanna í bæjarstjórn. 20.1.2012 14:25