Innlent

Vilja stækka griðasvæði hvala

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Þingmennirnir vilja að griðasvæði hvala í Faxaflóa verði stækkað.
Þingmennirnir vilja að griðasvæði hvala í Faxaflóa verði stækkað. mynd/ gva.
Þrír þingmenn hafa lagt til að griðasvæði hvala í Faxaflóa verði stækkað frá Eldey að ysta odda Snæfellsness. Þá verði jafnframt tryggt griðasvæði hvala fyrir Norðurlandi þar sem hvalaskoðun sé vaxandi atvinnugrein. Þá vilja þingmennirnir jafnframt að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra setji heildstæðar reglur um framkvæmd og skipulag hvalaskoðunar.

Það eru þingmennirnir Mörður Árnason, Birgitta Jónsdóttir og Árni Þór Sigurðsson sem leggja tillöguna fram. Í greinargerð með tillögunni er vísað til ályktunar Hvalaskoðunarsamtaka Íslands þar sem vakin var athygli á því „að yfir 70 þúsund ferðamenn fara á þessu ári í hvalaskoðun frá Reykjavík og um 60 þúsund frá Norðurlandi". Hvalaskoðun sé því ein mikilvægasta grein ferðaþjónustu hér á landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×