Innlent

Hnífamaður á Barónsstíg og flöskuárás í Austurstræti

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Það gekk ýmislegt á í verslunum 10-11 í nótt.
Það gekk ýmislegt á í verslunum 10-11 í nótt.
Maður var handtekinn eftir að hann hafði verið að þvælast með hníf í 10/11 á Barónsstíg, sem hann var að sýna starfsmönnum. Hann ógnaði engum með hnífnum. Aftur á móti yfirgaf hann verslunina með vörur í vösunum sem hann hafði ekki greitt fyrir. . Maðurinn mun hafa verið ölvaður en hann gistir nú fangageymslur og verður yfirheyrður þegar af honum rennur áfengisvíman.

Þá var öryggisvörður í 10-11 verslun í Austurstræti laminn í andlitið með brotinni flösku. Hann fór á slysadeild til aðhlynningar og árásarmaðurinn var handtekinn og verður jafnframt yfirherður þegar af honum rennur.

Það var talsverður erill hjá lögreglunni í nótt, en auk málanna í 10-11 verslununum höfðu lögreglumenn afskipti af fólki vegna hávaða í heimahúsum, til að aðstoða leigubifreiðastjóra vegna farþega sem neituðu að borga, auk annarra verkefna sem upp komu. Þrír ökumenn voru teknir grunaðir um ölvun við akstur,




Fleiri fréttir

Sjá meira


×