Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ofur-amma hélt upp á afmælið ásamt 73 barnabarnabörnum Bresk amma hélt upp á 85. afmælisdaginn sinn í vikunni. Í veisluna mættu 10 börn hennar, 48 barnabörn og 73 barnabarnabörn. 12.1.2012 23:11
Niðurlægir son sinn í von um að hann snúi baki við glæpum Móðir unglings sem sakfelldur hefur verið fyrir fjölmörg lögbrot lét son sinn ganga um með skilti þar sem afbrot piltsins voru útlistuð. Hún sagði þetta vera nauðsynlegt enda hefðu dómstólar aðeins gefið honum skilorðsbundin dóm fyrir afbrotin. 12.1.2012 22:42
Phobos-Grunt fellur til jarðar á næstu dögum Vísindamenn segja að könnunarflaugin Phobos-Grunt muni hrapa til jarðar á næstu dögum. Ómögulegt er að áætla hvar flaugin muni lenda en líklegt þykir að hún muni hrapa yfir Indlandshafi. 12.1.2012 21:07
Símaviðtal við Fanneyju: Tók sín fyrstu skref í dag Hin 19 ára Fanney Þorbjörg Guðmundsdóttir stóð upp úr hjólastólnum og tók sín fyrstu skref í dag eftir að hafa lent í alvarlegu skíðaslysi í Noregi á aðfangadag. 12.1.2012 21:00
Hönnunarsamkeppni um Star Trek læknatól kynnt Bandarískt tæknifyrirtæki skorar á Star Trek aðdáendur að hanna byltingarkennt læknatól í anda þess sem Dr. McCoy notaði við sjúkdómsgreiningar sínar. Tíu milljónir dollarar eru í sigurverðlaun. 12.1.2012 19:50
Óveðrið ekki búið - flughált og versnandi veður í nótt Uppáhald okkar Íslendinga, veðrið, fer versnandi suðvestan- og vestanlands í kvöld og nótt. Seint í kvöld verður hríðarbylur á Hellisheiði og Þrengslum og það mun svo hlána og fer svo fljótlega í slyddu og rigningu, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni. 12.1.2012 20:00
Jens grunaður um skattsvik Grunur leikur á að einkarekstur Jens Kjartanssonar lýtalæknis hafi ekki verið í samræmi við skattalög. Málinu verður vísað til fjármálaráðuneytisins til frekari skoðunar. 12.1.2012 18:30
Íslendingar gerðu tæknibrellur fyrir Contraband Íslenskt tæknibrellu og eftirvinnslu fyrirtæki hannaði allar brellur í nýjustu mynd Baltasar Kormáks, Contraband. Tuttugu og fimm manns unnu í hátt í fjóra mánuði við að gera myndina eins raunverulega og hægt er. 12.1.2012 19:00
Már ekki í deilu við Seðlabankann - heldur við kjararáð Lögmaður seðlabankastjóra segir málaferli hans vegna launakjara ekki vera deilu við Seðlabankann sjálfan heldur kjararáð sem hafi skort lagaheimild til að úrskurða um laun. Í lagarökum segir að ekki fái staðist að Már njóti ekki sömu réttinda á aðrir embættismenn. 12.1.2012 18:45
Lögðu hald á 200 kannabisplöntur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði fjórar kannabisræktanir í jafnmörgum íbúðum í fjölbýlishúsum í Reykjavík í gær. Samtals var lagt hald á um 200 kannabisplöntur en á einum staðnum var jafnframt að finna ýmsa muni sem grunur leikur á að séu illa fengnir. Tveir menn voru handteknir í þessum aðgerðum lögreglu. 12.1.2012 17:54
Hvað á að gera til að koma í veg fyrir vatnstjón? Rigningartíðin sem von er á næstu daga þýðir að fólk þarf nú að undirbúa sig fyrir leysingarnar. Tryggingafyrirtækið Sjóvá hefur sent frá sér leiðbeiningar til fólks hvernig best sé að bera sig að til þess að koma í veg fyrir vatnstjón. 12.1.2012 16:51
Leituðu að manni við Helgafell Maðurinn sem þyrla Landhelgisgæslunnar og björgunarsveitamenn leituðu að við Helgafell í dag er fundinn.. Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni var þyrlan að koma úr eftirlitsflugi þegar óskað var eftir að hún aðstoðaði við leitina. Áhöfn þyrlunnar fann hann fljótlega. Sigmaður og læknir sigu niður til hans. Þyrlan þurfti síðan frá að hverfa til að taka eldsneyti og samkvæmt tilkynningu frá Landhelgisgæslunni var hún komin aftur á staðinn um klukkan fimm til þess að sækja hann. 12.1.2012 16:18
Bjartsýni ríkir vegna barna á Haítí - Tvö ár frá jarðskjálftanum Tvö ár eru í dag liðin frá jarðskjálftann mikla á Haítí 12. janúar 2010 sem kostaði eyðileggingu af áður óþekktri stærðargráðu. UNICEF hefur staðið fyrir umfangsmiklu uppbyggingarstarfi í landinu. 12.1.2012 16:15
Keppt um hönnun á Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur Auglýst hefur verið samkeppni um hönnun nýbyggingar og lóðar fyrir Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum við Háskóla Íslands. Í tilkynningu frá Framvkæmdasýslu ríkisins segir að áætlað sé að byggingin verði um 4000 m², en þar af er um 1000 m² bílageymsla neðanjarðar. Byggingin mun rísa á horni Suðurgötu og Brynjólfsgötu í Reykjavík og munu göng undir Suðurgötu tengja bygginguna við Háskólatorg. 12.1.2012 15:40
Búist við mun meiri leysingum en síðast Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir að vatnsveðrið sem búist er við að hefjist á höfuðborgarsvæðinu í kvöld og næstu daga verði mun meira en um síðastliðna helgi, sem mörgum þótti nú nóg um. Í tilkynningu frá tryggingafélaginu VÍS er haft eftir Einari og úrkoman gæti fram á laugardag numið 30 til 40 millimetrum og jafnvel meiru í efri byggðum. 12.1.2012 14:51
Bruggari á þriggja mánaða skilorð Þrjátíu og sex ára gamall karlmaður var í dag dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa framleitt gambra og landa í september síðastliðnum. Í húsnæði sem hann hafði til leigu fundust ríflega 900 lítrar af gambra og 84 lítrar af landa. Áfengið fannst þegar lögreglan gerði leit í húsnæðinu. Maðurinn játaði brot sín fyrir dómi. Hann hefur ekki áður gerst brotlegur við lög. 12.1.2012 13:49
Styðja friðun svartfugla Fuglavernd styður eindregið niðurstöðu meirihluta svartfuglanefndar Umhverfisráðuneytisins, sem hefur lagt til að friða eigi fimm tegundir af svartfuglum. 12.1.2012 13:40
Óvenjumargir bensínlausir í borginni Óvenjumörg dæmi hafa komið upp að undanförnu í borginni þar sem menn verða bensínlausir á miðri leið. Lögregla bendir á að gerist þetta á stofnbrautum geti hætta beinlínis verið á ferðum, ekki síst í skammdeginu. 12.1.2012 13:06
Gylfi segir launamálin klúður frá upphafi Forseti ASÍ segir ákvarðanir stjórnvalda sem snúa að launum seðlabankastjóra og annarra háttsettra embættismanna vera klúður frá upphafi. Hann segir lögsókn seðlabankastjóra gagnvart seðlabankanum hafa mjög slæm áhrif á trúverðugleika bankans. 12.1.2012 12:06
Mörður hvetur Steinþór til að segja upp Mörður Árnason alþingismaður hvetur Steinþór Pálsson bankastjóra Landsbankans til að segja upp störfum. Tilefnið er umsögn bankaráðs Landsbankans við frumvarpi um kjararáð þar sem lagt er til að bankaráðið úrskurði um laun Landsbankastjóra en ekki kjararáð. Þetta er í samræmi við skoðun Steinþórs sem hann lét ljósa í Klinkinu á Vísi á dögunum en þar sagði Steinþór að laun sín væru ekki samkeppnishæf. Laun Steinþórs eru um þriðjungur af launum bankastjóra hinna bankanna, Arion og Íslandsbanka. 12.1.2012 11:38
Lífshættulegt fyrir kjúklinga að fara í sláturhús Um tvö þúsund kjúklingar lentu í lífsháska þegar þeir runnu út úr bíl sem var á leið með þá í sláturhús á Hellu í morgun. Um var að ræða kjúklinga frá kjúklingabúinu á Ásmundarstöðum. Kjúklingarnir voru í á annað hundrað kössum sem voru svo fluttir á bíl í sláturhúsið. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Hvolsvelli vildi ekki betur til en svo að hleri á bílnum opnaðist með þeim afleiðingum að kassarnir runnu út. Bílstjórinn áttaði sig hins vegar ekki á atvikinu fyrr en hann var kominn á staðinn. Fóru þá menn frá sláturhúsinu og frá hænsnabúinu til þess að bjarga málum. 12.1.2012 11:17
Umferð dróst saman um 5,3% Umferð hefur aldrei dregist meira saman á einu ári síðan mælingar Vegagerðarinnar á völdum stöðum hófust árið 2005. 12.1.2012 11:00
Skaðsemi púðanna rannsökuð í Evrópu Þúsundir íslenskra kvenna eru með sílíkonpúða í brjóstunum. Greinilegt er að aðgerðin nýtur mikilla vinsælda og virðast lýtalæknar almennt sammála um að fyllingarnar geti hjálpað konum við að öðlast sjálfstraust og líða betur með líkama sinn. 12.1.2012 10:30
Vill að Rúmenía og Búlgaría fái aðild að Schengen á árinu Morten Bødskov, dómsmálaráðherra Danmerkur, ætlar að beita sér fyrir að samkomulag náist á fyrri hluta ársins um að Rúmenía og Búlgaría fái aðild að Schengen-vegabréfasamstarfinu. Danmörk er nú í forsæti Evrópusambandsins. 12.1.2012 10:30
Köstuðu af sér vatni á látna Afgana Myndir og myndband sem sýnir bandaríska hermenn kasta af sér vatni á lík nokkurra manna í Afganistan hefur vakið mikla reiði um heim allan. Landgöngulið Bandaríkjahers segir að verið sé að rannsaka málið og uppruna myndbandsins sem virðist hafa verið sett á Netið í gær. 12.1.2012 10:22
Þriggja bíla árekstur í Hólahverfinu Þriggja bíla árekstur varð á gatnamótum Vesturhóla og Höfðabakka í morgun. Svo virðist vera sem Toyota Corolla bíll hafi runnið yfir á öfugan vegarhelming og farið utan í bíl sem kom úr gagnstæðri átt. Einn bíll var fluttur með krana úr árekstrinum. Sjúkralið var kvatt á staðinn en sem betur fer þurfti ekki að flytja neinn burt með honum. 12.1.2012 10:19
Eyjaklasi á Breiðafirði boðinn á 195 milljónir Vinahjón sem átt hafa Svefneyjar á Breiðafirði í tuttugu ár bjóða eyjaklasann til sölu. Uppsett verð er 150 til 195 milljónir og þá fylgir tíu manna hraðbátur. Lenda má flugvél í heimatúninu. Hentar í ferðaþjónustu segir fasteignasali. 12.1.2012 09:30
Krefst 2,6 milljóna eftir árás Karlmaður um tvítugt hefur verið krafinn um rúmlega 2,6 milljónir króna af manni sem hann réðst á árið 2010 fyrir utan skemmtistað í Vestmannaeyjum. 12.1.2012 09:00
"Stjórnarskráin ver okkur fyrir Þór Saari“ Óðinn Sigþórsson, formaður Landssambands veiðifélaga, gerir alvarlegar athugasemdir við að Þór Saari, alþingismaður Hreyfingarinnar, setji „eignarrétt veiðiréttareigenda á veiðihlunnindum innan gæsalappa og tali eins og ríkisvaldið hafi það í hendi sér að gera þau upptæk“. 12.1.2012 08:30
Segja ekki sýnt fram á réttmæti kröfu Skilanefnd Glitnis tókst ekki að sýna fram á réttmæti kröfu um kyrrsetningu eigna Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Lárusar Welding þegar krafan var lögð fram hjá sýslumanni. 12.1.2012 08:00
Gera ráðstafanir vegna díoxíns Sorpsamlag Þingeyinga hefur gripið til ráðstafana eftir að magn díoxíns og köfnunarefnisoxíðs reyndist yfir viðmiðunarmörkum þegar útblástur frá stöðinni var mældur í september 2011, en niðurstöður mælinganna bárust 5. janúar síðastliðinn. 12.1.2012 08:00
Danir eru hæstánægðir með Margréti Þórhildi drottningu sína Ný könnun sýnir að Danir eru hæstánægðir með Margréti Þórhildi drottningu sína og telja að hún hafi staðið sig með afbrigðum vel sem æðsti þjóðhöfðingi landsins. 12.1.2012 07:42
Tekinn dópaður undir stýri Lögregla stöðvaði ökumann á Hverfisgötu í Reykjavík í nótt, grunaðan um akstur undir áhrifum fíkniefna. 12.1.2012 07:38
Verið að bjarga fimm tonna fiskibát undir Grænuhlíð Leki kom að fimm tonna fiskibáti, þegar hann var staddur undir Grænuhlíð við Ísafjarðardjúp á sjötta tímanum í morgun og óskuðu bátsverjarnir tveir eftir aðstoð. 12.1.2012 07:37
Fundu minnsta frosk í heimi á Papúa Nýju Guineu Hópur bandarískra vísindamanna hefur fundið minnsta frosk heimsins á afskekktu svæði á Papúa Nýju Guineu. 12.1.2012 07:28
Verkalýðsfélög segja ríkisstjórnina hafa svikið mikilvæg loforð Ríkisstjórnin hefur svikið mikilvæg loforð, meðal annarra um bætt kjör handa þeim, sem minnst bera úr býtum og ekkert bólar á fjárfestingum eða aðgerðum, sem væntingar voru uppi um vin undirritun kjarasamninga, segir í ályktun fundar samninganefndar Bárunnar og Verslunarmannafélags Suðurlands, sem haldinn var í gærkvöldi. 12.1.2012 07:26
Hver einasta stjarna er með plánetu á braut um sig Með nýrri tækni hefur hópur alþjóðlegra stjarnvísindamanna komist að því að hver einasta stjarna í Vetrarbrautinni er með að minnsta kosti eina plánetu á braut um sig. 12.1.2012 07:23
Bandaríkin senda fleiri flugmóðurskip til Arabaflóans Bandaríkjastjórn hefur sent flugmóðurskipið USS Carl Vinson til Arabaflóans. Skipinu er ætlað að leysa af annað flugmóðurskip. USS John Stennis, sem þegar er á svæðinu. 12.1.2012 07:20
Nakin kona í Sherlock Holmes þáttum BBC vekur reiði Ný þáttaröð BBC sjónvarpsstöðvarinnar um hinn þekkta einkaspæjara Sherlock Holmes hefur vakið reiði fjölmargra foreldra á Bretlandseyjum. 12.1.2012 07:10
Fundu 14 kíló af heróíni í Kaupmannahafnarháskóla Lögreglan í Kaupmannahöfn fann tæp 14 kíló á brúnu heróíni í húsakynnum Kaupmannahafnarháskóla á Austurbrú. 12.1.2012 06:58
Tíu spádómar fyrir 100 árum reyndust vera réttir Árið 1900 setti bandaríski verkfræðingurinn John E. Watkins fram ýmsa spádóma um tækniþróunina á næstu 100 árum. Hann hafði rétt fyrir sér í 10 tilvikum af 29. 12.1.2012 06:54
Teknir við kannabisræktun á tveimur stöðum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu upprætti kannabisræktun á tveimur stöðum í austurborginni í gærkvöldi og lagði hald á plöntur og tæki til ræktunar. Nokkrir menn af asískum uppruna stóðu að þessari ræktun. 12.1.2012 06:45
Gengið frá leigusamningi Leigusamningur fyrir Þverá og Kjarrá í Borgarfirði var undirritaður í gær. Samningurinn er til fimm ára eða frá næsta sumri til ársins 2017. 12.1.2012 06:45
Heimila nýjar lóðir í Flatey Skipulagsnefnd Reykhólahrepps hefur samþykkt fjórar nýjar lóðir fyrir sumarhús í Flatey. 12.1.2012 06:15
"Mannlífið heldur áfram – markaðir eru opnir og börn ganga í skóla“ Tvö ár eru liðin frá því að öflugur jarðskjálfti reið yfir Haítí og kostaði á þriðja hundrað þúsund mannslífa. Uppbyggingarstarfið hefur gengið hægt en UNICEF segir mikil tækifæri til langtímaþróunar samfélagsins. 12.1.2012 06:00