Innlent

Már ekki í deilu við Seðlabankann - heldur við kjararáð

Lögmaður seðlabankastjóra segir málaferli hans vegna launakjara ekki vera deilu við Seðlabankann sjálfan heldur kjararáð sem hafi skort lagaheimild til að úrskurða um laun. Í lagarökum segir að ekki fái staðist að Már njóti ekki sömu réttinda á aðrir embættismenn.

Í lok júní 2009 skipaði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra Má Guðmundsson í embætti seðlabankastjóra. Hann tók við störfum tuttugasta ágúst sama ár en þann sama dag voru samþykkt frá Alþingi lög um að kjararáði væri heimilt að ákvarða laun seðlabankastjóra og dagvinnukaup ætti ekki að vera hærra en föst laun forsætisráðherra.

Laun seðlabankastjóra við ráðningu Más voru 1575 þúsund krónur. Stuttu síðar úrskurðaði Kjararáð hisn vegar að laun hans skyldu miðast við 860 þúsund krónur í dagvinnu auk fastrar yfirvinnu svo þau urðu að lokum um 1262 þúsund krónur.

Þetta er sá úrskurður sem Már vill meina að hafi verið ólögmætur samkvæmt yfirliti yfir lagarök sem Andri Árnason lögmaður Más sendi fréttastofu. Hann segir að búið hafi verið að semja um launakjör við skipun í embætti og því eigi ákvörðun kjararáðs ekki við í hans tilfelli. Már vill því að héraðsdómur hnekki þeirri ákvörðun.

Andri vill hins vegar ekki meina að Már sé í deilum við Seðlabankann sjálfan heldur einungis við Kjararáð. Hann þurft að beina stefnunni að Seðlabankanum þar sem hann er launagreiðandi Más.

Hvorki forsætisráðherra né efnahags- og viðskiptaráðherra vildu tjá sig um málefni seðlabankastjóra þegar fréttastofan leitaði viðbragða í dag. Aðstoðarmenn beggja ráðherra vísuðu hvor á annan vegna málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×