Innlent

Keppt um hönnun á Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur

Auglýst hefur verið samkeppni um hönnun nýbyggingar og lóðar fyrir Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum við Háskóla Íslands. Í tilkynningu frá Framvkæmdasýslu ríkisins segir að áætlað sé að byggingin verði um 4000 m², en þar af er um 1000 m² bílageymsla neðanjarðar. Byggingin mun rísa á horni Suðurgötu og Brynjólfsgötu í Reykjavík og munu göng undir Suðurgötu tengja bygginguna við Háskólatorg.

„Byggingin verður vettvangur fræðslu og upplifunar," segir í tilkynningunni. „Með byggingunni verður sköpuð aðstaða fyrir starfsemi alþjóðlegrar tungumálamiðstöðvar sem mun starfa undir formerkjum UNESCO. Sköpuð verður aðstaða til kennslu, rannsókna og miðlunar þekkingar um tungumál og menningu til almennings og vísindasamfélagsins."

Samkeppnin fer fram í samvinnu við Arkitektafélag Íslands og er auglýst á evrópska efnahagssvæðinu. Skilafrestur tillagna í samkeppninni er 22. mars 2012. Gert er ráð fyrir að hönnun verði lokið og útboðsgögn tilbúin í janúar 2013 og að framkvæmdir hefjist í maí 2013 og þeim verði lokið í ágúst 2014.

Formaður dómnefndar er Inga Jóna Þórðardóttir en aðrir dómnefndarfulltrúar eru Auður Hauksdóttir og Ingjaldur Hannibalsson sem tilnefnd eru af verkkaupa, Háskóla Íslands og Halldór Gíslason og Helgi Mar Hallgrímsson sem tilnefndir eru af Arkitektafélagi Íslands. Veitt verða þrenn verðlaun að heildarfjárhæð 10 milljónir kr. Framkvæmdasýsla ríkisins er umsjónaraðili samkeppninnar fyrir hönd verkkaupa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×