Búist við mun meiri leysingum en síðast 12. janúar 2012 14:51
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir að vatnsveðrið sem búist er við að hefjist á höfuðborgarsvæðinu í kvöld og næstu daga verði mun meira en um síðastliðna helgi, sem mörgum þótti nú nóg um. Í tilkynningu frá tryggingafélaginu VÍS er haft eftir Einari og úrkoman gæti fram á laugardag numið 30 til 40 millimetrum og jafnvel meiru í efri byggðum. Mest verður úrkoman að sögn Einars á vestan- og sunnanverðu landinu og hitinn allt að 7°C. Einar segir að mesta úrkoman verði í nótt og aftur snemma á laugardagsmorgun. Við það bætist að nýi snjórinn, sem ætla má að sé um 7-10 cm þykkur, bráðni fljótt við þessar aðstæður. Klakinn haldi betur, en hann sé hins vegar prýðis vatnsfarvegur sem geti beint rigningar- og leysingavatni í aðrar áttir en æskilegt sé með tilheyrandi skemmdarmætti. Í tilkynningu VÍS segir að um liðna helgi hafi borist 130 símtöl í neyðarnúmer VÍS eða fimmfalt fleiri en alla jafnan um helgar. „Þriðjungur þeirra sem hringdi vegna vatns átti við leka að stríða frá þaki eða svölum. Það eru ekki bótaskyld tjón og geta reynst viðkomandi dýr. Til að fyrirbyggja þau eftir föngum þarf að moka af svölum, berja klaka úr þakrennum og hreinsa þök eftir megni svo fremri sem það er hægt án þess að setja sig í hættu." „Kostnaður við viðgerðir getur hlaupið á hundruðum þúsunda og forvarnirnar eru því fljótar að skila sér í heimilisbókhaldinu. Þá er nauðsynlegt að hreinsa vel frá niðurföllum og bræða klaka ofan af þeim og úr, áður en vatnsveðrið byrjar þar sem mun erfiðara er að standa í slíku þegar allt er komið á flot."
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Sjá meira