Innlent

Þriggja bíla árekstur í Hólahverfinu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Svo virðist sem Corollan hafi farið á öfugan vegarhelming.
Svo virðist sem Corollan hafi farið á öfugan vegarhelming. mynd/ emil sævarsson
Þriggja bíla árekstur varð á gatnamótum Vesturhóla og Höfðabakka í morgun. Svo virðist vera sem Toyota Corolla bíll hafi runnið yfir á öfugan vegarhelming og farið utan í bíl sem kom úr gagnstæðri átt. Einn bíll var fluttur með krana úr árekstrinum. Sjúkralið var kvatt á staðinn en sem betur fer þurfti ekki að flytja neinn burt með honum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×