Innlent

Óveðrið ekki búið - flughált og versnandi veður í nótt

Margir hafa setið fastir í bílum sínum undanfarna daga.
Margir hafa setið fastir í bílum sínum undanfarna daga. mynd/HAG
Uppáhald okkar Íslendinga, veðrið, fer versnandi suðvestan- og vestanlands í kvöld og nótt. Seint í kvöld verður hríðarbylur á Hellisheiði og Þrengslum og það mun svo hlána og fer svo fljótlega í slyddu og rigningu, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Svipað verður á öðrum fjallvegum vestan- og norðvestantil, snjókoma í fyrstu í nótt en sían gerir leysingu um land allt. Flughált verður víða á vegum fljótlega eftir að nær að hlána í nótt og í fyrramálið, er haft eftir veðurfræðingi í tilkynningunni.

Þar segir einnig að hálka sé á Hellisheiði, Sandskeiði og í Þrengslum og á flestum öðrum leiðum á Suðurlandi. Á Vestfjörðum er einnig hálka á flestum leiðum.

Hægt er að sjá hér nánar hvað eigi að gera til að koma í veg fyrir vatnstjón.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×