Innlent

Leituðu að manni við Helgafell

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Björgunarsveitir leituðu manns á Helgafelli.
Björgunarsveitir leituðu manns á Helgafelli. mynd/ vilhelm.
Maðurinn sem þyrla Landhelgisgæslunnar og björgunarsveitamenn leituðu að við Helgafell í dag er fundinn.. Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni var þyrlan að koma úr eftirlitsflugi þegar óskað var eftir að hún aðstoðaði við leitina. Áhöfn þyrlunnar fann hann fljótlega. Sigmaður og læknir sigu niður til hans. Þyrlan þurfti síðan frá að hverfa til að taka eldsneyti og samkvæmt tilkynningu frá Landhelgisgæslunni var hún komin aftur á staðinn um klukkan fimm til þess að sækja hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×